Vikan


Vikan - 07.11.1985, Blaðsíða 51

Vikan - 07.11.1985, Blaðsíða 51
Klukkan var sex á mánudags- morgni og gráleitt myrkur yfir öllu. ,,Þú ert meiri háttar,” sagði Tom. ,,Ég vil enga aðra og ekkert annað. En við skulum ekki segja neitt um þetta í vinn- unni, ha?” En vitanlega var það óhugs- andi. Á mánudaginn var Kata öll önnur, geislandi mannvera, ekkert lík þeirri fölu og um- komulausu Kötu sem hún hafði verið á föstudaginn. Tom hafði ekki látið sjá sig alla helgina. Júdý hafði skilið eftir heilmikið af skilaboðum til hans og varð sífellt æfári út í símsvarann hans. Hún hafði náð í hvorugt þeirra. Júdý ályktaði að þau hefðu verið saman alla helgina. Áður en mánudagurinn var liðinn hafði Kata spurt Júdý kæruleysislega hvernig kona Toms væri. ,,Hún er ofúr venju- leg, dæmigerð, bandarísk kona,” svaraði Júdý. ,,Hún er tuttugu og þriggja, með ljóst, glansandi hár og þvengmjó, ljómar alltaf eins og sólin, þann- ig kona. . . Nei, ég er að grínast. Hún er níutíu og fimm ára og kerlingar- greyið er eineygð, tannlaus og á öll þessi þrettán börn, alltaf svöng. . . ” Hún fór að tala í alvöru. ,,Satt að segja skildu þau Tom áður en ég kynntist honum. Það er allt I lagi með konuna hans fyrrverandi, ekkert athuga- vert við hana. Hún er bara dekurdúkka af auðugum gyð- ingaættum, síblaðrandi, öli á kafí í heilsufæði og merkilegum klúbbum. En strákarnir tveir eru reglulega sætir. Tom talar aldrei um þá en hann er eins mikið með þeim og hann getur. ’ ’ Þegar Tom og Kata voru saman fann hún til óstöðvandi og að því er virtist ólæknandi ástar á honum. Það var ekki eins og barnaleg ósk hennar eftir að giftast Robert hafði verið. Það var ekki eins og lotningarblandin hrifningin af Toby. Þetta var vaxandi blíða og ástúð. Henni fannst hún ekki þvinguð, ekki auðmýkt eða á nokkurn hátt undirgefín. Hana langaði ekki til að leggjast á hnén og tilbiðja hann og henni fannst ekki að hún væri með nokkurn leikara- skap til þess að gera honum til geðs. Hana langaði ekkert til að skrifa Kata Schwartz, frú Tom Schwartz eða Kata Ryan- Schwartz. Hana langaði bara til að vera með Tom hvenær sem hún gat, og fjandinn mátti eiga framtíðina. Allt í einu hætti hún að ganga í dökkbláu, snyrtilegu drögtunum og fór að mæta í grænblárri dragt frá Yves Saint Laurent og engri blússu innan undir. Þetta féll henni svo vel í geð að hún fór og keypti aðra eins, skærbleika. Skömmu síðar kom hún í vinnuna í appelsínu- gulum samfestingi. Það þurfti ekki að segja neinum að Kata væri ástfangin. Tom breyttist líka snögglega. Hann varð alúðlegur og eftirláts- samari. Hann sást brosa í vinn- unni og meinhæðnin varð ekki áberandi. Við Kötu var hann ótrúlega ástúðlegur, blíður og örlátur. Hann var sér vel meðvit- andi um að hann hafði orð á sér fyrir að vera maurapúki í vinn- unni og reyndi sífellt að sýna fram á hið gagnstæða við hana. Kata var mjög hrifín af því. En hún kærði sig ekkert um demanta, hún þarfnaðist ekki smaragða — það eina sem hún vildi varTom. Á fyrsta tölublaðinu á FJÖRI! var góð forsíða en það var ekki vel prentað. Kostnaðurinn fór langt fram úr áætlun og auglýs- ingar voru ekki margar. I öðru tölublaði var betri texti, betri myndir og stórgóð umfjöllun um fegrun og snyrtingu en aftur var blaðið illa prentað og auglýs- ingar af skornum skammti. En í þriðja tölublaðinu var forsíðuviðtal við Jane Fonda og grein sem hét Hvernig á að njóta karlmanns? ásamt skoðanakönn- un um hvað væri ánægjulegast við kynlífíð. Kata var hrædd við þessa nýju hamingju. Allt gekk of vel. Hún var hrædd við að verða aftur auð- særanleg. Hún vissi nú að það sem kveikti ást í brjósti hennar var gróf afneitun og þrælslega auðmjúk þörf fyrir velþóknun karlmannsins á sér. Hún vissi að um leið og hún féll fyrir karl- manni þá lá hún eins og útidyra- motta og bað um að sparkað væri framan í sig. Hún vissi að það síðasta sem hún þarfnaðist væri annar karlmaður sem léti hana fínnast sem enginn gæti elskað hana. Hún var því dauðhrædd við að viðurkenna fyrir sjálfri sér að hún væri ástfangin. Hún hikaði við að skuldbinda sig. Til þess'að láta reyna á tilfínningar sínar í garð Toms fór hún að fara út með öðrum karlmönnum í lík- ingu við það þegar sumar konur daðra við karlmenn sem þær hafa ekki nokkurn áhuga á fyrir framan augun á eiginmönnum sínum. Það var ekki erfítt fyrir Kötu að fínna aðra karlmenn því velgengnin hefur mikið kyn- ferðislegt aðdráttarafl. Þar fyrir utan voru ósýnilegir kyntöfrar Kötu jafnmiklir nú þegar hún var þrjátíu og níu ára og þegar hún var sextán ára. Næstu mán- uðina biðu tvífarar Burt Reyn- olds í röðum eftir henni í litla móttökurýminu hjá FJÖRI! Kata hætti við að hitta Tom á síðustu stundu og skyrtur og rakdót ann- arra karlmanna voru á áberandi stöðum þegar hann gisti heima hjáhenni. , _ Framhaldínæstablaði. Ármúla 7 Sími 91-68 7870 BONNY OG CLYDE Gamaldags skrautsími. Útlit frá gullaldarárum Bonny og Clyde. Sími sem hittir í mark. Póstsendum. RRFEInO SE 4S. tbl. Vtkan SI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.