Vikan - 07.11.1985, Blaðsíða 57
ELANCYL BRJÓSTAMEÐFERÐIN
Slit á húö kemur oftast fram sem
mjóar, bleikar eöa rauðleitar rákir á
yfirborði húðarinnar. Slit geta komið
fram hjá konur og körlum en algengast
er það hjá konum eftir barnsburð.
Einnig getur slit komið eftir hraða
grenningu eða ef fólk fitnar óeðlilega
mikið á stuttum tíma. Einnig getur of-
framleiðsla ákveðinna hormóna valdiö
sliti á húð.
Algengast er að sjá þessar bleiku
rákir á maga, brjóstum kvenna,
mjöðmum og efst á lærum.
Til að hjálpa konum að viöhalda fall-
egu útliti og til að halda stinnleika og
þenslu húðarinnar hefur ELANCYL til-
raunastofan í Frakklandi búið til EL-
ANCYL „STRETCH MARK BEAUTE
CREAME” eöa SLIT-KREM.
Kremið inniheldur m.a. aminó-sýr-
ur, eggjahvítuefni, A-vítamín, E-víta-
mínog F-vítamín.
Framkvæmdar hafa verið víðtækar
tilraunir með þetta slit-krem. Ötrúleg-
ur árangur náðist hjá meirihluta þeirra
kvenna er tók þátt í tilraununum og í
mörgum tilfellum hvarf slit alveg.
NOTKUNARREGLUR:
Fyrirbyggjandi aðgerðir:
Tvisvar á dag er ELANCYL SLIT-
KREMIÐ borið á umrœdd svœði með
hringlaga hreyfingum þar til kremið
hverfur alveg inn í húðina. Barnshafandi
konur œttu að byrja notkun á SLIT-
KREMINU eigi síðar en i lok þriðja mán-
aðar meðgöngutímans.
Til að draga úr sliti sem er til staðar:
Notið kremiö tvisvar á dag á slit-
svæðin þar til náðst hefur viðunandi
árangur.
Trúlega er enginn hluti konulíkam-
ans eins áríðandi fyrir hverja konu eins
og brjóstin, en samt sem áður vita fæst-
ar konur mikið um uppbyggingu
þeirra.
Brjóstin eru líffæri húðarinnar og
geyma mjólkurkirtlana. Brjóstin eru
ekki styrkt af neinum vöðvum heldur
er það húðin sem er ábyrg fyrir
spennu og styrkleika þeirra. Hverju
brjósti er haldið á sínum stað af húð-
ræmu sem nær frá neðri mörkum háls
og axlar og umlykur brjóstið. Styrk-
leiki húðarinnar og spenna skorða
brjóstin á sínum stað.
Margar ástæður geta verið fyrir af-
lögun brjóstanna, svo sem barnsburö-
ur, of hröð grenning og það aö húðin
missir þenslu æskuáranna með aldrin-
um. Fyrir konur með stór brjóst getur
það einnig valdið skaða ef þær ganga
án brjóstahalda.
ELANCYL brjóstameðferðin inniheldur
mikilvæg efni úr fylgju, aminó-sýrur,
eggjahvítuefni og vítamín, sem styrkja
húðina og gera hana stinnari með því að
næra húðfrumumar.
Brjóstin þurfa sérstaka umönnun og
meðhöndlun eigi þau aö vera stolt kon-
unnar. Það er því mikilvægt að byrja
meðhöndlun sem fyrst, eigi að halda
fallegri lögun og stinnleika þeirra.
Fyrsta kvöld:
Berið innihald einnar ELANCYL amp-
úllu (glerhylkis) á brjóstin og barm-
inn og upp að hálsi með léttum fjaðr-
andi hreyfingum, þar til vökvinn hverf-
ur alveg inn í húðina. Vökvinn hefur
örvandi áhrif á starfsemi og endurnýj-
un húðfrumanna.
Annað kvöld:
Nuddið ELANCYL hrjóstakreminu
með léttum, hringlaga hreyfingum á
brjóstin og upp á barm. Kremið gefur
húðinni næringu og viðheldur stinn-
leika hennar.
Notið eina ampúllu og kremið til
skiptis sitt hvort kvöldið og haldiö
áfram í þrjár vikur samfellt. Það er
afar áríðandi að nota bæði ampúllum-
ar og kremið saman.
Eftir brjóstameðferðina ættu brjóst-
in að vera stinnari og styrkari, húðin
sjálf mýkri og heildaráhrifin verða
fallegri brjóst og ánægðari kona.
Þegar þriggja vikna meðferð lýkur
er ráðlegt að halda áfram notkun á
kreminu tvisvar í viku þar til næsti kúr
er tekinn.
ELANCYL ráðleggur konum að nota
ELANCYL brjóstameðferðina þrisvar
á ári til að viðhalda góöum árangri.
NB: ELANCYL brjóstameðferðin er
ekkí ætluð konum sem hafa barn á
brjósti.
ELANCYL
MEÐFERÐIN