Vikan

Eksemplar

Vikan - 16.01.1986, Side 48

Vikan - 16.01.1986, Side 48
„Hvaða eiguin?” spurði konan. „Nú, aðallega þá skart- gripina.” „0.” Hanna brosti. „Hún gaf mér þá alla,” sagði hún hljóð- lega. Goddard stillti sig um aö hrópa upp. Hjartaö sló órólega en hann var strangur í tali. „Hvenær?” „Rétt áöur en hún dó — úr magasári,” sagði konan. Það varð löng þögn. Hann snerí sér við og lokaði kommóðuskúff- unum vandlega en vélrænt. Spegillinn sýndi honum hvað hann var fölur og hann sneri sér ekki viö þegar hann talaði. „Þá er það í lagi,” sagði hann rámur. „Ég vildi bara vita hvað var orðið af þeim. Mér datt í hug að Milly hefði kannski...” Hanna hristi höfuðið. „Þaö er allt í lagi með Milly,” sagði hún með undarlegu brosi. „Hún er jafnheiðarleg og við. Er eitthvað fleira sem þér óskiö, herra?” Hún lokaði á eftir sér, jafn- hljóðlega og vel æfðra þjóna er siður. Goddard studdi sig við rúmgrindina og stóð og horfði inn í framtíðina. II Dagarnir liðu í tilbreytingar- leysi, einn af öðrum, líkt og hjá manni í fangelsi. Frelsiskenndin var horfin og hugmyndin um opnari lífshetti. I staö fanga- klefa var tíu herbergja hús — en Hanna, fangavörðurinn, gætti þeirra allra. Hún var auðmjúk og full umhyggju, fyrirmyndar- þjónn, en í hverju orði hennar heyrði hann ógnun við frelsi sitt — við líf sitt. Úr fýldu andlitinu og köldum augunum las hann vissu hennar um vald; úr um- hyggju hennar fyrir bægindnrn hans og samþykki kaldhæðinn brandara. Þetta var húsbóndinn sem þykist vera þjónn. Ár tregr- ar þjónustu voru liðin en hún fetaði sig gætilega áfram meö óendanlegum eldmóöi í leiknum. Brengluð og beisk, gædd klók- indum sem höfðu aldrei áður fengið tækifæri til að njóta sín, var hún núna komin í sitt konungdæmi. Hún tók það smátt og smátt, naut til fullnustu hvers munnbita „Ég vona að ég hafi breytt rétt, herra,” sagði hún einn morguninn. „Eg er búin að reka Milly.” Goddard leit upp úr blaði„u sínu. „Er hún ekki nógu góð?” spurði hann. „Það finnst mér ekki, herra,” sagði konan. „Og hún segist ætla að koma og tala viö yður um þetta. Ég sagði henni að það kæmi ekki að neinu haldi.” „Það er best að ég tali við hana og viti hvað hún hefur að segja,” sagði húsbóndi hennar. „Að sjálfsögðu, ef þér óskið þess,” sagði Hanna. „Það er bara það að ef hún fer ekki eftir að ég er búin að reka hana þá fer ég. Mér þætti fyrir því að fara héðan — ég hef haft það mjög þægilegt hérna — en það er annaðhvort hún eða ég.” „Mér þætti leitt að missa þig,” sagði Goddard vonlaus. „Þakka yður fyrir, herra,” sagði Hanna. „Eg veit að ég hef reynt að gera mitt besta. Ég er búin að vera hjá yður um tíma — og ég þekki allar kenjar yðar. Ég held að ég skilji yður betur en nokkur annar myndi gera. Ég geri allt sem ég get til að vel fari umyður.” „Gott og vel, ég læt þig um þetta,” sagði Goddard meö rödd sem hann reyndi að gera hressi- lega og bjóðandi. „Þú hefur leyfi mitt til að reka hana.” „Það er annað sem ég vildi nefna við yður,” sagði Hanna. „Launin mín. Ég ætlaði aö biðja um kauphækkun þar sem ég er eiginlega orðin ráöskona hérna núna.” „Vissulega,” sagði húsbóndi hennar og velti vöngum yfir þessu. „Það virðist vera sann- gjarnt. Látum okkur sjá — hvað færðunúna?” „Þrjátíuog sex.” Goddard velti þessu fyrir sér um hríð og sneri sér svo að henni með góðlegu brosi. „Gott og vel,” sagði hann hjartanlega, „ég hækka það í fjörutíu og tvö. Það er tíu shillingum meira á mánuöi.” „Ég var að hugsa um hundrað,” sagði Hanna þurr- lega. Hann var hrelldur yfir því sem bjó að baki þessari kröfu. „Það er nokkuð stórt stökk,” sagði hann loks. „Ég veit ekki hvort ég...” „Það skiptir ekki máli,” sagði Hanna. „Eg hélt að ég væri þess virði — fyrir yður — það er allt og sumt. Þér vitið þetta best. Sumum kynni að þykja ég vera tveggja hundraða virði. Það er stærra stökk en þegar allt kemur til alls er stórt stökk betra en. . . ” Hún þagnaöi og flissaði. Goddard horfði á hana. „. .. enstórtfall,” botnaðihún. Andlit húsbónda hennar varð hörkulegt. Varænar hurfu næst- um og í föl augun kom svipur sem var viðurstyggilegur. Hann horfði á hana meðan hann stóð á fætur og gekk til hennar. Hún stóð kyrr og mætti augnaráði hans. „Þú ert kát,” sagði hann loks. „Stutt líf og skemmtilegt,” sagði konan. „Mitt eða þitt?” „Kannski bæði,” varsvarið. „Ef — ef ég læt þig fá hundrað,” sagði Goddard og vætti varirnar, „þá ætti lífið að minnsta kosti að verða skemmti- legra.” Hanna kinkaði kolli. „Kannski skemmtilegt og langt,” sagði hún hægt. „Eg er gætin, vitið þér — ákaflega gætin.” „Ég er viss um það,” sagöi Goddard og það slaknaöi á and- liti hans. „Gætin með hvað ég borða og drekk, á ég við,” sagði konan og horföi einbeitt áhann. „Það er gáfulegt,” sagði hann hægt. „Það er ég líka — þess vegna greiði ég góðri eldabusku há laun. En gakktu ekki of langt, Hanna; slátraðu ekki gæsinni sem verpir gulleggjunum.” „Það eru litlar líkur á að ég geri það,” sagði hún hneyksluð. „Liföu og leyfðu öðrum að lifa; það eru einkunnarorð mín. Sum- ir eiga sér önnur einkunnarorð. En ég er gætin; það kemur eng- inn mér að óvörum. Ég skildi eftir bréf hjá systur minni, svona til að vera viss.” Goddard sneri sér hægt við og lagfærði kæruleysislega blóm í skál á borðinu, reikaöi svo að glugganum og horfði út. Andlit hans var aftur fölt og hendurnar skulfu. „Það á að opna það ef ég dey,” hélt Hanna áfram. „Ég hef ekki trú á læknum — ekki eftir það sem ég hef séð til þeirra — ég held að þeir viti ekki nógu mik- ið; þannig að ef ég dey verð ég krufin. Eg hef gefið gildar ástæöur fyrir því.” „Og hugsum okkur nú,” sagði Goddard og gekk frá gluggan- um, „hugsun okkur aö hún sé forvitin og opni bréfið áður en þú deyrð?” „Við verðum að hætta á það,” sagði Hanna og yppti öxlum, ,,en ég hef ekki trú á að hún geri það. Eg innsiglaði það með vaxi og setti merki á það.” „Hún gæti opnað það og þagað yfir því," þráaðist húsbóndi hennar viö. Sjúklegt bros breiddist liægt yfir andlit Hönnu. „Eg myndi vita það undir eins,” tilkynnti hún montin, „og það sama á við um aðra. Drottinn minn, hvilík læti það yrðu! Chidham hefði nóg að tala um, svona einu sinni. Við yrðum í blöðunum — bæði." Goddard neyddi sig til að brosa. ,,Ja hérna!” sagði hann blíðlega. „Penninn þinn lítur út fyrir að vera hættulegt vopn, Hanna, en ég vona að það verði engin þörf á að opna bréfið næstu fimmtíu árin. Þú virðist vera heilbrigð og sterk.” Konan kinkaði kolli. „Ég hirði ekki um vandamálin fyrr en þau koma,” sagði hún með ánægju- svip. „En það skaðar ekki að reyna að varna því að þau komi. Það er betra að byrgja brunn- inn. . . ” „Einmitt,” sagði húsbóndi hennar. „Og heyrðu mig annars, það þarf enginn annar að vita um þetta litla f járhagslega sam- komulag okkar. Eg yrði kannski óvinsæll hjá nágrönnunum fyrir slæmt fordæmi. Að sjálfsögðu greiði ég þér þessa upphæð vegna þess að mér finnst þú raunverulega hennar virði.” „Það er ég viss um að yður finnst,” sagði Hanna. „Eg cr ekki viss um að ég sé ekki meira virði, en þetta ætti að duga í bili. Eg fæ stúlku fyrir minna en við greiðum Milly og þar vcrður svolítið aukreitis fyrir mig." „Auðvitað,” sagði Goddard og brosti aftur. „Nú, úr því að ég nefndi það,” sagði Hanna og staðnæmdist við dyrnar. „Eg er ekki viss um að ég ráði neina aðra; þá verður meira en nokkru sinni fyrir mig. Ef ég vinn allt verkið got ég :i!lt eins fengið alla greiðsluna!” 48 Vikan 3. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.