Vikan - 13.08.1987, Side 14
BUDDISMI
Hinn upprunalegi Gohonzon er geymdur i þessu
musteri búddista við rætur Fujifjalls i Japan.
Heimildarmenn:
Ásgeir Júlíus Ásgeirsson og
Mayumi Ásgeirsson
íslenskur búddistasöfnuður var stofnaður í
Hveragerði á þjóðhátíðardag okkar íslend-
inga árið 1980. í dag eru um 70 rnanns í
söfnuðinum en alls eru í heiminum um 20
milljónir rnanna sem tilheyra þessari grein
búddismans. Rekja má sögu trúarbragðanna
aftur um 2500 ár. Upphaflega komu þau frá
Indlandi en klofnuðu þar í tvennt og barst
önnur greinin til Thailands, Burma, Víetnam
og Sri Lanka. Hin festi rætur í Japan, Kína
og Kóreu.
Búddha Nichiren Soshu heitir sú grein
búddatrúarinnar sem náð hefur fótfestu hér
á landi og kemur hún frá Japan. Arið 1222
fæddist þar maður að nafni Nichiren Dais-
honin. Hann byrjaði ungur að kynna sér
búddismann og komst fljótlega að þeirri nið-
urstöðu að rétta aðferðin til að stunda
búddismann væri að kirja eftirfarandi orð
kvölds og morgna: NAM - MYOHO -
RENGE - KY O. Upp frá þessu hóf hann
að boða kenninguna og lagði áherslu á að
maðurinn ræktaði sjálfan sig en engin per-
sónu- eða guðadýrkun ætti sér stað.
Þeir sem kirja þuluna reglulega kalla fram
sitt innra búddaeðli en það er falið í öllum
mönnum samkvæmt kenningunni. Þeir sem
hafa laðað fram búddaeðlið gefast ekki upp
fyrir mótlæti og sætta sig aldrei við það næst-
besta. Þeir eru hamingjusamir og sáttir við lif
sitt og geta læknað sjúkdóma og aðra kvilla
með trúnni. Orð þulunnar eru ekki þýdd
vegna þeirrar skoðunar trúarhópsins að allar
þjóðir heimsins eigi að sameinast og eigi því
allar að kirja á sama tungumálinu. A þessum
grundvelli tók íslenski hópurinn sig saman á
Reykjavíkurfundi Reagans og Gorbatsjovs
og kirjaði heila nótt til þess að friðarviðræð-
urnar gengju vel.
Engin boð eða bönn eru í þessum trúar-
brögðum. Lífsmátinn takmarkast ekki af
vissum siðareglum heldur hagar fólk lífi sínu
algerlega eftir eigin höfði, nema hvað það
þarf að kirja þuluna NAM - MYOHO -
RENGE KYO reglulega til að ná hinu
æðsta ástandi, búddatigninni. Þulan er kirjuð
fyrir framan altari sem hver og einn hefur á
heimili sínu. í altarisskáp, sem hangir fyrir
ofan altarið, er geymd árituð örk, á kínversku
og sanskrít, með lögmálum þeim sem Nichir-
en Daishonin lagði þeim sem vilja ná hinu
æðsta hugarástandi. Órkin er kölluð Gohon-
zon. Þegar einstaklingur hefur skilið lögmál
Gohonzon til fulls öðlast hann búddatignina
og kallast þá Búddha.
Til heiðurs Gohonzon eru ávallt hafðar
grænar afskornar greinar á altarinu. Ásamt
þeim er Gohonzon vottuð virðing með því
að setja hrísgrjón og ávexti á altarið. Engin
regla er fyrir hversu oft það er gert heldur
færa menn Gohonzon þessar gjafir þegar þeir
vilja. Frumrit Gohonzon var skorið út í kam-
fóruvið fyrir u.þ.b. 700 árum af Nichiren
Daishonin. Útskurðurinn er nú geymdur í
aðalmusteri samtakanna við rætur Fujifjalls
í Japan.
Nú á síðustu árum hafa Nichiren Soshu-
trúarbrögðin breiðst hratt út i Japan. Það
gerðist þó ekki fyrr en trúfrelsi var gefið í
landinu. Síðan hefur trúin breiðst til meira
en 150 landa. Þó hefur hún enn mest ítök í
Japan. Ekkert skipulagt trúboð fer fram. Fjöl-
miðlar eða aðrar opinberar kynningarleiðir
eru ekki notaðar heldur segir hver meðlintur
sínum nánustu frá starfseminni og kynnir
þeim trúarbrögðin.
Sérstök athöfn fer fram þegar nýr meðlimur
er tekinn inn í söfnuðinn. Prestur framkvæm-
ir athöfnina og afhendir um leið Gohonzon-
lífslögmálin. Þegar einstaklingur hefur tekið
á móti lögmálinu er hann orðinti meðlimur í
söfnuðinum. Mikil prestaekla er um allan
heim vegna þess hversu hratt trúarbrögðin
hafa breiðst út. Enginn prestur er starfandi í
Evrópu. Ef framkvæma á trúarathöfn hér á
landi eða annars staðar í álfunni þarf að fá
prest frá Japan. Forstöðumaður íslenska safn-
aðarins, Ásgeir Ásgeirsson, hefur ekki réttindi
til að framkvæma trúarathafnir. Hann hefur
kirjað i átta ár en hefur enn ekki fengið nóga
reynslu til að gegna svo veigamiklu starfi.
Prestshlutverkið er mjög krefjandi og mun
það á fárra færi að sinna öllum þeim skyldum
sem því fylgja.
Búddistar trúa að þeir hali lifað áður í
öðrum líkama og á sama hátt trúa þeir að
lífið haldi áfram eftir dauðann. Líkaminn, sem
tekur við í næsta lífi, fer eftir kanna hvers
einstaklings; hann getur bæði orðið dýr eða
maður. Karma er orsakir og afieiðingar gerða
okkar úr fyrri lífum. Til að geta breytt karma
sínu þarf einstaklingurinn að stunda búdda-
trúarbrögðin og kirja. Með því getur hann
fengið upp á yfirborðið reynslu úr fyrri lífum
sem hann ekki vissi um áður. Gerðir hans úr
fortíðinni hafa áhrif á nútíðina og framtíðina
en þegar hann skilur karma sitt getur hann
tekið til við að breyta því og þannig breytt
örlögum sínum í þessu lífi og þeim næstu.
Áður en rnenn ná hinni svokölluðu búdda-
tign ganga þeir í gegnum níu önnur stig en
hún næst á tíunda stiginu. Þessi stig eða á-
stand mannsandans koma fram í ákveðinni
röð. Fyrstu sex stigin eru kölluð lægri heim-
arnir.
1. Víti: Þar liður einstaklingnum mjög illa.
Hann vill jafnvel gefast algerlega upp fyrir
því mótlæti og erfiðleikum sem hann verður
fyrir í lífinu._
2. Hungur: Ástand þar sem einstaklingurinn
hefur óhemjumikla þörf fyrir veraldleg gæði,
til dæmis mat, kynlíf, völd, ríkidæmi, frægð
og annað sem getur veitt honum tímabundna
ánægju.
3. Dýrseðli: Persóna á þessu stigi hugsar að-
eins um sjálfa sig og nútíðina en lætur sið-
ferðislegt gildismat eða afieiðingar gerða sinna
sig litlu skipta. Viðkomandi hræðist það stóra
og sterka en níðist á þeim sem eru minni
máttar.
4. Reiði: Á þessu stigi er manneskjan mjög
eigingjörn. Hroki, samkeppni og þörf fyrir
að skara fram úr er það sem einkennir far
hennar.
5. Rósemi: Þegar þessu stigi er náð er einstakl-
ingurinn mjög rólegur, sáttur við lífið og líður
yfirhöfuð vel. En um leið og eitthvað utanað-
komandi trufiar þetta ástand getur hann
komist á stig þar sem honum líður mjög illa.
6. Algleynti er sú tilfinning sem grípur fólk
þegar væntingum þess er fullnægt, til dæmis
14 VIKAN 33. TBL