Vikan


Vikan - 05.11.1987, Side 39

Vikan - 05.11.1987, Side 39
Hvernig leysa foreldrar unglingovandamálið í Vikunnl íyrir stuttu gáfu tveir unglingar ráð við for- eldravandamálinu. Að þessu sinni eru það foreldrar sem Þór Hannes Axelsson faðir 18 ára stúlku Fyrsta regla er að treysta þeim. Á 12-13 ára aldrinum á alls ekki að leyfa það að vinkonur fái að sofa hjá hver annarri, við það tapast öll yfirsýn yflr „kerfið" og ekki nokkur leið að vita hvað er að gerast. Eg hef alltaf litið á íslenska leigubílstjóra sem mikilvægasta hlekkinn í því að unglingar komist heim til sín. Ég hef það alltaf fyrir reglu að láta pening sem ætlaður er fyrir leigubíl heim fylgja með þegar verið er að fara eitthvað; Pening sem ekki má nota til neins annars. Síðan er það grundvallaratriði að geta rætt við unglinginn og sérstaklega mikilvægt að muna að við vorum einu sinni ung. gefa ráð við unglinga- vandamálinu. Það fyrsta sem báðir viðmælendur okkar sögðu var: ÞETTA ER HRÆÐILEGA ERFITT og áttu þá við að vera foreldri unglings. Anna Alfreðsdóttir móðir 14 ára stúlku og 15 ára stráks Það er erfitt að vera gott for- eldri, en maður er alltaf að reyna sitt besta. Til að samskipt- in geti gengið sem best finnst mér að það verði í fyrsta lagi að sýna börnunum ást og um- hyggju. I öðru lagi er bráðnauðsyn- legt að tala við þau og hlusta á það sem þau eru að segja. Þeim verður að sýna traust. Mér finnst um að ger* að reyna að halda sem mest í þau og vita alltaf hvað þau eru að gera þeg- ar þau eru að heiman. Síðan má ekki gleyma því að maður verður að sýna gott for- dæmi sjálfur, það gengur auðvit- að ekki að banna eitthvað vegna þess að það er rangt en gera það síðan sjálfur. —B.K. VIKAN 5. -12. NÓVEMBER 1987 Hrúturinn 21. mars - 20. apríl Það er ekki um annað að ræða en taka því að þessi vika verður heldur dapurleg. Gerðu ekkert nema það bráðnauðsynleg- asta þar til rofartil. Kannski þarftu að hvíla þig meira? Nautið 21. apríl - 21. maí Allt bendir til þess að vikan verði góð. Ástin, fjölskyldulífið og öll önnur samskipti við fólk verða eins og best verður á kosið. Tvíburarnir 22. maí - 21. júní Sköpunargleðin er i há- marki; nýttu þér það vel. Gættu þess að þó á vegi þínum verði ein- hver nýr og spennandi þá máttu ekki snúa baki við gömlu félögun- um. Krabbinn 22. júní - 22. júlí Fjölskyldan er frek á þig þessa vikuna. Skipuleggðu vel það sem þú ætlar að taka þér fyrir hendur - líka peningamálin - og þá mun allt takast vel. Ljónið 23. júlí - 23. ágúst Allt getur gerst í vikunni, en til þess að hlutirnir gangi vel þarftu að gefa þér tíma til að skoða möguleikana. Notaðu tæki- færin vel. Meyjan 24. ágúst-23. september Þessi vika verður þér mjög góð. Allt bendir til þess að ást og vinskapur blómstri. Nú er tækifær- ið, þegar allt leikur í lyndi, til að framkvæma þau verk sem þú hef- ur lengi ætlað þér. Vogin 24. sept. - 23. okt. Þú færð gott tækifæri til að gera það sem þig hefur lengi langað til, en gættu þess að of- keyra þig ekki. Taktu ekki persónu- leg áhugamál fram yfir fjölskyld- una. Sporðdrekinn 24. okt. - 22. nóv. Þetta getur orðið spenn- andi vika ef þú notar vel þau tæki- færi sem þér bjóðast, slepptu samt ekki alveg fram af þér beislinu þú gætir hneykslað þá sem eru ( kringum þig. Bogamaðurinn 23. nóv. - 21. des. Tilfinningalega verður þetta góð vika fyrir þig, en reyndu samt að hleypa vinum þínum dá- lítið nær þér. Farðu varlega í pen- ingamálum og hugsaðu þigX'el um áður en þú eyðir. Steingeitin 22. des. - 20. janúar Ástin hefur klófest þig og ekki annað en gott um það að segja. Njóttu þess og láttu skyld- urnar bíða í smá tíma, það kemur ekki að sök. Vatnsberinn 21. janúar - 18. febrúar Orkan er í hámarki og þú getur afkastað mjög miklu. Nýttu þessa orku í að framkvæma eitt- hvað skynsamlegt - það er áreið- anlega eitthvað sem þú hefur lengi ætlað þér að gera! Fiskarnir 19. febrúar - 20. mars Þér til mikillar gleði er að færast líf í hlutina aftur. Þér líður vel líkamlega og ættir því að geta notið þín vel. Þessi góði tími kem- ur bæði þér og þínum nánustu til góða. VIKAN 39 STJÖRNUSPÁ

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.