Vikan - 05.11.1987, Side 60
Friðrik
Indriðason
Þegar útvarpið
gegndi hlutverki
Sjónvarpsins
Radio Days
★★★
Þessi nýjasta mynd Woody Allen sem sýnd er
í Ftegnboganum er bráðskemmtileg umfjöllun
um þann tlma er útvarpið gengdi sama hlut-
verki og sjónvarpið nú og sameinaði fjölskyld-
una seinni part dagsins.
Myndin hefur ekki eiginlegan söguþráð
heldur byggir á mörgum stuttum sögum af
einni venjulegri fjölskyldu í New York svo og
af nokkrum útvarpsstjörnum þessa tíma, þ.e.
stríðsáranna.
Mia Farrow fer með eitt aðalhlutverkið að
vanda hjá Allen en auk þess bregður hinni
gömlu vinkonu hans, Diane Keaton fyrir í
smáhlutverki.
KVIKMYNDIR
Woody Allen ásamt kvikmyndatökustjóranum Carlo Di Palma undirbúa töku atriðis fyrir
„Radio Days."
Sagan um Valens
La Bama
★★
Myndin La Bama í Stjörnubíói, fjallar um rokk
söngvarann Ritchie Valens sem fórst aðeins
17 ára gamall í flugslysi ásamt Buddy Holly.
Þrátt fyrir ungan aldur, hann var aðeins 17 ára
er hann lést, átti hann þá þegar þrjú lög á
vinsældalista þess tíma og hefði sennilega
náð langt á sínu sviði.
Framan af er myndin fremur dauf en huggu-
leg frásögn um dreng sem elskaði móður sína
en í seinni hlutanum hressist hún við er tón-
listin kemur meira við sögu.
Fyrir þá sem gaman hafa af gamla rokkinu
er tilvalið að eyða kvöldstund í Stjórnubíói.
Vönduð hrollvekja
Stjúpfaðirinn
★★★
Vandaðar og vel gerðar hrollvekjur eru ekki á
hverju strái en Stjúpfaðirinn sem Regnbog-
inn sýnir nú telst til þeirra.
í stað þess að demba yfir áhorfendur blóði
og ofbeldi frá upphafi til enda, byggir leikstjór-
inn Joseph Ruben myndina rólega upp og
magnar spennuna í henni stig af stigi þannig
að undir lokin eru áhorfendur farnir að öskra á
persónur myndarinnar sem er nokkuð óvenju-
legt.
Um söguþráinn er best að fjölyrða ekki mik-
ið en fyrir þá sem gaman hafa af gæsahúð í
hófi er þessi mynd hreint ómissandi.
STJÖRNUFRÉTTIR
Fréttir Stjörnunnar vekja athygli. Stjörnufréttir eru
alvörufréttir, fluttar á ferskan hátt. Fréttir fyrir
fólk.
Stjörnufréttir allan sólarhringinn: Kl. 8, 10, 12, 14,
16, 18 og 23 alla virka daga, kl. 10, 12 og 18 um
helgar, kl. 2 og 4 um nætur.
A
Skínandi fréttir
á FM 102 og 104
60 VIKAN