Vikan


Vikan - 05.11.1987, Qupperneq 62

Vikan - 05.11.1987, Qupperneq 62
Myndbandasnúðar í gervihnattasjónvarpi Þeir sem hafa haft aðgang að gervihnattasjónvarpi hafa án efa rekið augun í stöð sem kall- ast Music Boxá ensku og sjón- varpar eingöngu tónlistar- böndum allan sólarhringinn. Þessi stöð er í tengslum við MTV í Bandaríkjunum og sam- an eru þær stærsti sjónvarp- andi tónlistarefnis í heimi. Music Box byggir sína dagskrá upp á klukkutíma löngum þáttum þar sem einhver ákveðin stefna er tekin fyrir í hverjum þætti, og hver þáttur hefur sinn fasta um- sjónarmann. Þessir umsjónar- menn eru hin nýja kynslóð út- varpsplötusnúða (discjockeys) þar sem þeir þurfa ekki bara að hafa góða rödd, eins og áður var þegar snúðarnir sáust ekki, held- ur verður útlitið líka að falla í kramið hjá börnunum og ungling- unum sem eru langstærsti hluti áhorfendanna. Tveir af þessum nýju sjón- varpsplötusnúðum eru Nino Firr- etto og Simon Potter. Nino, sem ætlaði að verða íssali, hellti sér út í popptónlistina þegar hann bar sigur úr býtum í plötusnúða- keppni sem lúxembúrgska út- varpið hélt, en árum saman var það Mekka tónlistarmanna í Evr- ópu. Eftir sigurinn í keppninni stóðu honum flestar dyr opnar í útvarpsheiminum og hann varð fljótlega vinsæll fyrir hressileika sinn í útsendingu. Einhver snið- ugur útvarpsmaður lét sér detta í hug að láta Nino stjórna barna- þætti og skyndilega var hann orð- inn stjarna. Einstakt lag hans og tilgerðarleysi við börn varð þess valdandi að hann varð einn vin- sælasti stjórnandi barnaefnis í Bretlandi. Þegar stjórnendur Music box höfðu samband við hann og buðu honum að stjórna þætti fyrir yngstu áhorfendurna hugsaði hann sig ekki tvisvar um, og í dag eru þættirnir hans einir vinsæl- ustu þættirnir á stöðinni. Hann er alltaf með einhverja krakka með sér í útsendingu og er í mjög góðu sambandi við áhorfendur sem hringja og skrifa af miklu kappi. Simon Potter miðar sína þætti, Chart Attack við eldri áhorfendur. Þættir hans eru líka daglega og í þeim spilar hann myndbönd af vinsældalistum út um allan heim. Hann gerir líka mjög mikið af því að fá vinsæla tónlistarmenn í við- töl og er þá ekkert að skafa utan af hlutunum við þá. Þetta eru þættir sem hafa náð geysilegum vinsældum meðal áhorfenda og miðað við útbreiðslu þessa miðils núorðið er augljóst að það hlýtur að vera plötuframleiðendum mik- ið keppikefli að fá umfjöllun í þeim. 62 VIKAN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.