Vikan


Vikan - 28.12.1987, Side 7

Vikan - 28.12.1987, Side 7
Vikan dró níu milljónimar fyrir SauÓkrældingiiui Á næsta ári gætu einhverjir fengiö 45 milljónir króna í sinn hlut í Happdrætti Háskóla íslands Tekið er á móti vinningsnúm- erum úr tölvuprentara. Drátt- urinn tekur ekki nema rúmar tiu mínútur, en óneitanlega er ólíkt minni sjarmi yfir þessu. Vikan brá sér niður í Happdrætti Háskólans fyrr í mánuðinum þegar stærsti dráttur ársins fór fram. Það kom blaðamanni á óvart hversu Iítið var um að vera. Nokkrir starfsmenn happ- drættisins og fulltrúar Happ- drættisráðs sem skipað er af dómsmálaráðuneytinu voru á staðnum og spenningur- inn virtist ekki vera mikill. Fyrst voru valdar talnarunur með teningakasti og þær síð- an mataðar inn í tölvu eina eigi alllitla sem síðan dró á einhvern dularfullan hátt og var snögg að. Drátturinn sjálfúr tók ekki nema rúmar tíu mínútur. Gera má þó ráð fyrir því að spenningurinn hafi verið meiri hjá hinum fjölmörgu sem spila í happdrættinu þar sem stærstu vinningar ársins voru dregnir út. Eins og nærri má geta munar meðaljóninn þó nokkuð um eins og nokkrar milljónir í jóla- mánuðinum þegar fjárhagurinn stefnir almennt óðfluga niður á við. Níu milljónir á Sauðárkrók Það kom líka í ljós að nokkrir fengu allverulega búbót að drætti afstöðnum. Hæsti vinn- ingurinn var níu milljónir sem fóru á Sauðárkrók. Það var einn- ar milljón króna vinningur sem lenti á áttföldum miða, en mest geta miðarnir verið nífaldir. Á næsta ári verða vinningarn- ir veglegri en nokkru sinni fyrr. Hæsti vinningur verður 5 millj- ónir og verða níu slíkir dregnir út. Ef þeir lenda á margföldum miða margfaldast vinningarnir sem því svarar. Þannig verður vinningurinn á trompmiða 25 milljónir, en hæsti vinningur sem hægt verður að fá á einn miða er 45 milljónir króna, það ætti að vera hægt að leyfa sér ýmislegt fyrir þá upphæð. Blaðamaður Vikunnar var tek- inn til handargagns og látinn snúa hjólinu sem teningarnir eru inni í. Við borðið situr Höskuldur Jónsson, „Rikis- stjóri“, og skráir niður tölum- ar, en hann er einn fulltrúa happdrættisráðs sem voru við- staddir dráttinn. Að sögn starfsmanna happ- drættisins er stemmningin mun minni nú en hér áður fyrr þegar dregið var handvirkt. Þá voru vinningsnúmerin fyrst dregin úr stórri tromlu og vinningarnir síðan úr annarri. Drátturinn tók megnið úr deginum og oft var fjöldi manns mættur til að fylgj- ast með og spennan var gífurleg þegar verið var að draga vinn- ingana. Þó að drátturinn sjálfúr sé kannski ekki jafn spennandi nú og áður fyrr má fullyrða að spenningur þeirra sem eiga miða sé engu minni þegar drátt- urinnmegniðafdeglnum ur nálgst. Ekki síst nú þegar vinningar eru orðnir svo háir sem raunin er. Alls reiknar Happdrætti Háskólans með því að úthluta 135.000 vinningum á næsta ári, en heildarupphæðin á að verða 1.360.800.000, eða tæplega einn og hálfur milljarð- ur króna. Verði ykkur að góðu. AE. VIKAN 7

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.