Vikan - 28.12.1987, Side 15
Ástandið á vinnumarkaðinum: Harðar vinnudeilur eða liprir samningar? Hvað gerir Jón Baldvin?
Völvan sér það fyrir.
„Hver ætli húsaleigan sé á Spáni?" Skattalagabreytingamar munu
leiða til þess, að margur launþeginn mun ákveða að taka sér frí
tvo til þrjá mánuði á ári.
stærsta máli þjóðarinnar firá
Iýðveldistöku.
Verkföll eða
vinnufriður
Það mun fljótlega koma í
ljós á nýbyrjuðu ári, að verka-
lýðshreyfingin og fýrirliðar
hennar sumir hverjir hafa fúll-
an hug á að láta til sín taka í
launabaráttunni.
En á sama tíma hafa veður í
lofti skipast þannig, að ríkis-
stjórnin mun tilbúin að bjóða
aðstoð við lausn kjaramála á af-
mörkuðu sviði. Því mur. þann-
ig fyrir komið, að ríkisstjórnin
gengst í eins konar ábyrgð fýr-
ir því, að fólk í lægstu launa-
flokkunum fái umtalsverða
ieiðréttingu á kjörum sínum.
Ákveðnir aðilar innan verka-
lýðshreyfingarinnar munu
einnig, þrátt fyrir allt ekki
verða ýkja hrifnir af að þurfa
að leggja út í langa verkfalls-
baráttu, þegar hér er komið
sögu og því munu þessir aðilar
leggja áherslu á vinnustaða-
samninga, sem markmið næsta
samningatímabils.
Starfsgreinasamningar á hin-
um almenna vinnumarkaði
verða einnig mjög til umræðu
og leysa af hólmi hina hefð-
bundnu samningagerð.
Gagnstætt því sem fólk ótt-
aðist síðari hluta desember-
mánaðar, að verkföll yrðu löng
og harðvítug, munu Iaunadeil-
ur verða með allra minnsta
móti á árinu 1988.
Breytingar á
vinnumarkaði
Það mun koma í ljós, að
ríkisstjórnin þarf ekki endilega
að harma það svo mjög, þótt
einhverjar launahækkanir
verði á hinum almenna vinnu-
markaði. — Auknar launa-
greiðslur hjá öllum almenn-
ingi munu líka koma ríkinu til
góða í aukinni skattheimtu og
fækka þeim gjaldendum, sem
annars verða undir skattleysis-
mörkum.
Og það er einmitt þetta sem
orsakar það, að á árinu munu
margir vilja takmarka vinnu
sína verulega til að fara ekki
upp fýrir „skattamörkin" eins
og það verður kallað.
Eins kemur að því á þessu
ári, að menn munu, og þeir
verða margir, óska eftir því að
draga úr vinnu sinni og taka
sér frí, kannski einn, tvo eða
fleiri mánuði ársins. Gera
eitthvað sem þá hefúr lengi
langað til að gera, en ekki get-
að leyfit sér áður.
Þarna á ég við að nýja stað-
greiðslukerflð gerir mörgum
kleift að hætta vinnu, án þess
að þurfa að standa í skilum
með mánaðarlegar skatta-
greiðslur eins og áður þurfti,
þótt menn ynnu ekki.
Þetta leiðir svo aftur til þess,
að eftirspurn eftir vinnuafli
eykst til muna fýrst í staða, en
þetta jafnar sig á ný, þegar
fýrirtæki bregða á það ráð að
draga saman, t.d. í framleiðslu
og rekstri almennt. Allt verður
þetta síðan til þess að spennan
á vinnumarkaðinum minnkar
og þar með þenslan í þjóðlíf-
inu.
Við getum þess vegna farið
að bera okkur saman við aðrar
þjóðir, þar sem okkur hefur
virst lífið vera afslappaðra en
hér hefúr verið um langan
tíma.
Stjórnmál og
straumar
Ég vil bara segja ykkur það
strax, svo ég byrji á réttum
enda, að um leið og þessi ríkis-
stjórn tók við völdum, sá ég
fyrir mér einhverja þá sterk-
ustu ríkisstjórn, sem hér hefúr
setið, sennilega allt ffá árinu
1944.
VIKAN 15