Vikan - 28.12.1987, Qupperneq 16
Ekki aðeins af því að hún
hefúr svo mikinn meirihluta á
þingi, heldur einnig þrátt íyrir
þennan meirihluta, sem gefúr
henni möguleika á að vera
hvort tveggja í senn, stjórn og
stjórnarandstaða.
Þingmenn geta þannig
skipst í tvo eða fleiri hópa,
meðan umræður um mikilvæg
mál standa yfir og gefa stjórn-
inni þannig visst aðhald innan-
frá, úr röðum stuðningsmanna.
Stjórnarandstaðan er því að
vissu leyti óvirkari en áður var.
Sterkustu menn stjórnarinn-
ar verða enn um sinn flokks-
formennirnir þrír, Þorsteinn
Pálsson, Steingrímur Her-
mannsson og Jón Baldvin
Hannibalsson.
Ég sé einnig fyrir mér aukna
tiltrú fólks á Þorsteini Pálssyni
og mun það verða staðfest í
skoðanakönnun, er líður nær
vordögum. - Ráðherrar hans,
þeir Birgir ísleifúr og Friðrik
Sóphusson, sem mun verða
farsælir í störfum eiga ekki síst
þátt í því að styrkja stöðu
forsætisráðherra og flokks
hans í heild.
Birgir ísleifúr Gunnarsson
mun vekja athygli fyrir snjalla
og skjóta Iausn í viðkvæmu
máli, sem upp kemur á árinu í
sambandi við framkvæmd
grunnskólalaganna.
Iðnaðar- og orkumál verða
mjög í sviðsljósinu, er líður
fram á sumar og mun iðnaðar-
ráðherra senda hóp sérfræð-
inga til tveggja heimsálfa með
sérstakt kynningarprógram er
Birgir ísleifur mun vekja at-
hygli fyrir.. .
varðar uppbyggingu á eftir-
sóttri aðstöðu hér á landi og
lýtur að velferð einstaklinga.
Gæti verið í sambandi við
heilsuhæli eða annað sem
þeim tengist, því þetta sé ég
svo óljóst vegna hitaupp-
streymis í sýninni.
Hjá Framsóknarflokknum
eru talsverð umskipti fram-
undan. En þar nýtur formaður-
inn, Steingrímur einnig traustra
vinnubragða ráðherranna Hall-
dórs Ásgrímssonar og Guð-
mundar Bjarnasonar.
Ég sé hins vegar breytingar
á þingliði þessa flokks á árinu,
vegna uppstokkunar í embætt-
um þeim, er framsóknarmenn
ráða yflr.
Valdsvið utanríkisráðherra
mun aukast verulega með ný-
Jóhanna mun taka af skarið...
breytni í ráðuneyti hans og
nýjum verkefhum, sem varða
aukna kynningu á íslenskum
útflutningsvörum og eftirlit
með þeim. Sendiráð okkar er-
lendis mun verða betur nýtt
en áður á þessu sviði.
Ráðherrar Alþýðuflokksins
munu áfram verða mikið í
sviðsljósinu, embætta sinna
vegna og ná nokkurri og var-
anlegri fótfestu, hver fyrir sig, í
viðamiklum málaflokkum.
Ég get nefnt ykkur sem
dæmi, að dómsmálaráðherra
mun standa að og koma í fram-
kvæmd mikilvægri breytingu í
umferðarlögum, sem al-
menningur mun fagna mjög.
Jóhanna Sigurðardóttir mun
einnig auka vinsældir sínar
verulega á árinu, þegar hún
Flokkur Ólafs með daufasta
móti...
tekur af skarið og breytir um-
deildum ákvæðum í húsnæðis-
lögunum. Þetta gerir hún milli
þinga í sumar og leggur breyt-
ingu þessa fýrir Alþingi í þing-
byrjun, næsta haust.
Formaður Alþýðuflokksins
mun heimsækja erlenda stofn-
un tengda stjórnun peninga-
mála og koma þaðan með
mikilvægar fréttir, sem leiða til
uppstokkunar á gjaldmiðli
okkar. — Gæti verið um að
ræða enn eina gjaldmiðils-
breytingu, t.d. eins og gerð var
hér síðast með því að taka núll
aftan af krónunni, eða eitthvað
enn áhrifaríkara.
Alþýðubandalagið verður
með daufasta móti þetta árið.
Formaður flokksins mun þó
gera tilraunir til að blása lífi í
glæðurnar og m.a. með því að
ffiðmælast við svo kallað
flokkseigendafélag, sem fór út
í kuldann með formannskjör-
inu.
Út á við nær málefnakynn-
ing flokksins ekki eyrum
fólksins. Skoðanakannanir
munu sýna áframhaldandi fylg-
ishrun hjá flokknum, og mikill
skoðanaágreiningur mun
verða áberandi hjá þingmönn-
um flokksins á Alþingi, er nær
dregur þingslitum í vor. —
Þetta mun koma Kvennalistan-
um svo og Borgaraflokki til
góða.
Það mun koma upp ágrein-
ingur innan Borgaraflokksins
um tiltekið mál og verður til
þess, að einn þingmaður hans
dregur sig í hlé. Þetta verður
til þess, að margir af núverandi
stuðningsmönnum flokksins
Ófyrlrsjáanlegur vandi mun koma upp í sambandi við byggingu ráðshússins við Tjörnina. Kostn-
aður mun hærri en áætlaður í dag.
16 VIKAN