Vikan


Vikan - 28.12.1987, Side 17

Vikan - 28.12.1987, Side 17
Mynd frá því þegar Simon heitinn Spies gekk að eiga hina ungu Janni. Breytingar munu verða á heimilishögum hennar á árinu að sögn völvunnar. .. Karlar geta glaðst - ef tískuspá völvunnar rætist. munu flytja sig yfir til Sjálf- stæðisflokksins. Þar af leiðandi stendur fylgi Borgaraflokksins meira og minna í stað. Ekki get ég séð breytingar á þingsetu þingkvenna Kvenna- listans, þegar þing kemur sam- an næsta haust. Ráðhús í „deiglu“ og vísindi í Reykjavík Ég sé Ráðhúsbygginguna í „deiglunni" í þess orðs fyllstu merkingu. Jarðrask við Tjörn- ina mun hefjast síðar en áætlað var. Vegna staðarvalsins verða einhverjir erfiðleikar í upphafi við undirstöðu hússins, vandi sem ekki var fyrirsjáanlegur. Kostnaður verður mun meiri en áætlaður var, og andóf tefúr fyrir. Deilur munu magnast er liða tekur á sumar- ið, en húsið mun rísa. Ekki sér þó fyrir endann á þeirri bygg- ingu á árinu, og máske ekki á því næsta. Frægt fólk mun setja svip sinn á borgina á árinu og munu fjölmiðlar hafa í nógu að snúast. Vísindastofnun í Reykjavík mun verða í heimsfréttum, vegna nýstárlegrar uppgötvun- ar. — Frægur íslendingur mun falla ffá og annar landi okkar fær viðurkenningu erlendis fyrir hæfhi sína á íþróttasviði. Fyrirtæki munu leggja upp laupana og ég sé fjárfestingar- „Vísindastofnun í Reykjavík mun verða í heimsfréttunum vegna nýstárlegrar uppgötvunar...“ félög í vanda stödd. — Sér- kennilegt brúðkaup hér á landi mun vekja athygli landsmanna, og verður þess getið í heims- pressunni. Ung kona mun vekja athygli, vegna afskipta sinna í fjármála- heiminum. Breytingar verða í flugmálum og ferðamöguleik- um milli landa. Þar virðist mér verða fleiri valkostir og fleiri flugfélög bjóða þjónustu sína. — En fólk mun draga úr ferða- lögum sínum til annarra landa, vegna þess að nú fáum við þriðja góðvirðissumarið. Tíska og tiltrú Tískan mun verða byltinga- kennd með vorinu, þannig að mikill hluti fataeignar lands- manna þarf endurskoðunar við. Ég sé allar konur stutt- klæddar og karla í einhvers- konar Iéreftsfötum. Við munum verða bless- unarlega laus að miklu leyti við innflúensur og umgang- spestar á komandi ári. — í eitt af æðstu embættum landsins mun ráðast nýr maður og er eins og um harða samkeppni verði að ræða, og undir loldn, sérstaklega milli tveggja manna. Eitthvert gos sé ég fýrir á Suðurlandi, þó verða ekki af því mannskaðar, en Almanna- varnir koma þar við sögu. — Hópferðir innanlands verða vinsælar, og til ótrúlegustu staða! Tiltrú fólks á bankainnistæð- um mun aukast og því mun streymi fjármagns aukast til þessara stofnana. — Vandamál vegna staðgreiðslukerfis skatta mun koma upp um mitt árið og verða skringilegar ráðstaf- anir gerðar þar að lútandi. Ungt ljóðskáld mun vekja at- hygli og hópur tónlistarmanna vinnur til verðlauna á erlendri grund. - Útvarpsstöð mun ljúka göngu sinni á árinu. Orkuauðlind mun verða uppgötvuð á Norðurlandi og þarf ríkisvaldið að skera úr um eignarhald á henni, eftir tals- vert harkalegar deilur. Byggðastofnun tekur undir hugmyndir um þjóðvegakerfi yfir hálendi landsins og lætur gera könnun á tengingu byggðasvæða með slíku kerfi. Erlendir viðburðir í læknavísindum verður ffamhald á eyðnirannsóknum og nýtt lyf kemur á markaðinn og gefur góðar vonir í barátt- unni. Þetta lyf kemur frá Bandaríkjunum og gagnast einnig gegn ákveðinni tegund krabbameins. Ronald Reagan fer til Sovét- ríkjanna á árinu og gerir stans í Evrópu í leiðinni. Á fundi með nokkrum Evrópuleiðtogum verður skýrt firá afdrifaríkum viðræðum þeirra Gorbastjovs í Moskvu. í Bandaríkjunum verður mikill undirbúningur, vegna fótspor forvera sinna og bæla niður uppreisn í Austur-Þýska- landi með vopnavaldi? Völvan sér þar fyrir mögnuð átök. ffamhalds geimferðaráætlunar og verður stefht að því að senda upp mannað geimfar, meðan á ferð Bandaríkjafor- seta til Sovétríkjanna stendur. En við íslendingar munum einnig eiga von á fleiri fféttum ffá Bandaríkjunum, því hval- friðarsinnar munu enn verða á ferðinni og gera atlögu að hagsmunum okkar íslendinga þar vestra. — Þetta leiðir til þess, að öll hvalveiði verður stöðvuð hér við land á árinu og lýkur þar með hvalveiði- deilum okkar við aðrar þjóðir. Frakkar munu afnema vega- bréfsáritun til lands síns fýrir ferðamenn ffá Evrópulöndum, — og þekkt ffönsk kvikmynda- leikkona verður í heimsffétt- um um mitt árið. í Vestur-Þýskalandi verður mikil spenna að loknum fundi leiðtoga stórveldanna, og niðurstöðu viðræðna þeirra, sem gjörbreytir fyrirætlun Þjóðverja og Frakka um að koma á fót sameiginlegum her með þátttöku fleiri þjóða. í Austur-Þýskalandi verður gerð uppreisn, sem byrjar í Austur-Berlín en breiðist út og eiga yfirvöld við mikinn vanda að etja, einkum þar sem öflug- ur siðferðislegur styrkur berst uppreisnarmönnum erlendis frá. Á Norðurlöndunum, eink- um í Danmörku verða miklar umræður um Evrópubandalag- ið, og munu Danir þrýsta á um inngöngu Svía og Norðmanna. Því verður haldið á lofti, að innganga Svía og Norðmanna geti ráðið úrslitum um ffamtíð bandalagsins. - Þetta verður útkljáð í febrúar eða marsmán- uði. Hin auðuga Janni Spies VIKAN 17

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.