Vikan - 28.12.1987, Side 24
Egill Ólafsson, Jóhann Sigurðarson, Ragnheiður Steindórsdóttlr og fleiri leikarar í hlutverkum sinum í „Vesalingunum".
Vinsælir vescriingar
Þrjátíu leikarar sem hver um
sig skreppa í mörg hlutverk
flytja „Vesalingana“, söng-
leik byggðan á samnefndri
skáldsögu franska skáldjöf-
ursins Victor Hugo og var
frumsýndur á öðrum degi
jóla. Sönglcikurinn er eftir
Alain Boublil og Claude-
Michel Schönberg, en sá síð-
arncfndi samdi tónlistina.
Böðvar Guðmundsson skáld
þýddi verkið fýrir Þjóðleikliús-
ið, Benedikt Árnason leikstý'rir
og Ingibjörg Björnsdóttir samdi
dansa.
Aðalhlutverkin eru í höndum
Egiis Ólafssonar, Jóhanns Sig-
urðssonar, Sigurðar Sigurjóns-
sonar, Sverris Guðjónssonar,
Aðalsteins Bergdal, Eddu Heið-
rúnar Backman, Sigrúnar
Waage, Ragnheiðar Steindórs-
dóttur og Lilju Þórisdóttur. Og
eins og sjá má af þessum glæsta
lista eru á ferðinni leikarar sem
þekktir eru af sönghæfileikum
sínum. „Vesalingarnir" hafa rok-
gengið í stórborgum álfanna
beggja megin Atlantshafsins —
og að því er Þjóðleikltúsið segir,
þá eru líkur á að svo fari einnig
hér á landi því 8000 miðar hafa
selst fyrirfram.
Söngleiksgerð „Vesalinganna“
birtist fyrst á fjölum í París árið
1980. Reyndar er varlegt að tala
um söngleik, því allur texti
verksins er sunginn, rétt eins og
um óperu væri að ræða, og höf-
undar beita mjög fýrir sig hefð-
bundnu óperuformi. í París var
sýnt í stórri íþróttahöll. Um hálf
milljón manna sótti sýningarn-
ar. The Royal Shakespeare Com-
pany frumsýndi verkið svo í
London árið 1985 í Barbican-
leikltúsinu og þá mjög breytt.
Það er eitt með öðru sem ýtir
undir vinsældir „Vesalinganna"
sem óperusöngleiks. Þar kemur
fyrst til hin kröffuga lciksaga
ættuð beint frá Hugo þar sem
slegið er á rómantíska strengi,
mannelska höfundar nýtur sín
og samúð með þeim sem minna
mega sín. Persónur verksins eru
velþekktar og það eins þótt all-
ur fjöldinn hafi kannski ekki les-
ið skáldsöguna: Afbrotamaður-
inn Jean Valjean (Jón Valjón),
Javert lögreglumaður og rnargir
fleiri. Þeir sem lesið hafa skáld-
söguna muna ævilangt lýsing-
arnar á undirheimum Parísar-
borgar, götubardögum og upp-
reisninni 1832. „Vesalingarnir"
er í senn glæpareyfari og víð-
feðm lýsing á þjóðlífi. Vonandi
skila þessir þættir sögunnar sér í
sýningu Þjóðleikhússins. - GG
Algjörl rugl í ttnó
„Svartur gamanleikur, segja
þau hjá Iðnó um leikritið
sem frumsýnt verður þann
'30. desember. .Algjört rugl“
ncfnist það í þýðingunni og
er eftir Christopher Durang,
ungan Bandaríkjamann sem
hóf feril sinn í bandarísku
leikhúslífi sem leikari.
„Ruglið" (Beyond therapy) er
skörp ádeila á lífshætti og við-
horf samtímamanna höfundar-
ins í Bandartkjunum og víðar;
grátbrosleg lýsing á nútímafólki
getum við sagt, því fólki sem í
angist leitar að lífsfýllingu, nær
aldrei áttum, finnur engan frið í
stressaðri sál sinni.
Leikurinn gerist á okkar „síð-
ustu og bestu tímaritatímum,"
segir í frétt frá Leikfélaginu — og
er væntanlega átt við glanstíma-
ritin sem eltast við einkalif
hinna tómlegu glansfígúra. Ekki
menningarleg rit á borð við
gömlu, góðu Vikuna.
Bríet Héðinsdóttir leikstýrir
„Ruglinu" en leikendur eru þau
Kjartan Bjargmundsson, Guð-
rún S. Gísladóttir, Valgerður
Dan, Harald G. Haraldsson,
Jakob Þór Einarsson og Þröstur
Leó Gunnarsson. - GG
24 VIKAN
UÓSM.: PÁLL KJARTANSSON