Vikan - 28.12.1987, Side 32
Hrúturinn
21. mars - 20. apríl
Á árinu mun flest ganga hrútum í
haginn og hlutirnir vinnast jafnt og
þétt, þó munu koma upp tilfelli þar
sem eitthvað fer úrskeiðis. Það
sem að ástinni snýr verður allt í
himna lagi og jafnvel má búast
við að eitthvað nýtt gerist í þeim
málum. Einnig virðist allt sem við-
kemur starfinu ætla að þróast á
besta veg. Gott tækifæri býðst til
að eiga virkilega ánægjulegt frí,
án þess að það kosti mikið, sem
kemur sér vel því á árinu er nauð-
synlegt að fara betur með pening-
ana en gert var á síðasta ári.
Hvernig verður fjárhagur
aeirra sem fæddir eru í
<rabbamerkinu? Blómstrar
ástin hjá fiskunum á komandi
ári? Fer fríið hjá hrútunum
í hundana? Er tímabært fyrir
vogina að leita sér að nýrri
vinnu? Missir sporðdrekinn
af góðu tækifæri sem hann
er búinn að bíða lengi eftir?
Vikan birtir stjörnuspá fyrir
allt árið '1988.
Vogin
24. sept. - 23. okt.
Tilfinning vogarinnar fyrir jafn-
vægi, réttlæti og reglusemi gerir
það að verkum að þú finnur réttu
leiðina í gengnum lífið á árinu.
Ekki síst á þetta við um ástina!
Starfið veitir þér tækifæri til að
víkka sjóndeildarhringinn og þú
með þína reynslu og hæfileika
notfærir þér það á ánægjulegan
hátt. í fríinu ferðu aftur á stað
sem þér líkaði einstaklega vel
við. I flestum tilfellum munu pen-
ingamálin vera í góðu lagi. Nokk-
ur tilfelli koma upp þar sem heldur
þrengist um, en þú hefur lag á því
að láta það ekki fara í skapið á
þér og það kemur þér í gegnum
þetta heilum á sinni.
Nautið
21. apríl-21. maí
Það verður margt að gerast í
kringum þig árið 1988. Á margan
hátt verður það ólikt fyrra ári, en
þitt hressa skap gerir það að
verkum að þér tekst að nýta tæki-
færin á heppilegastan máta. Til-
finningalífið verður ríkt og jafnvel
koma upp tilfelli þar sem ástin
skipar of stóran sess í þínu dag-
lega lífi. Gættu þess að annríkið í
vinnunni gera það ekki að verkum
að þú missir yfirsýnina. Allt bendir
til þess að fríið í ár verði einstak-
lega vel heppnað og að þar gerist
eitthvað óvænt. Fjármálin eru
stöðug. Meiri peningar væru auð-
vitað æskilegir, en þú hefur hæfi-
leika til að gera mikið úr því sem
þú hefur úr að spila.
Sporðdrekinn
24. okt. - 23. nóv.
Þó þetta ár verði á margan hátt
líkt árinu á undan, þá skaltu vera
vakandi fyrir þeim góðu tækifær-
um sem bíða þín. Ástin mun
blómstra í sumar. í vinnunni
býðst gott tækifæri, en það er
mikilvægt að þú takir ekki fljót-
færnislega ákvörðun. Loksins
muntu hafa ráð á að fara í fríið
sem þig hefur langað í. Fjárhag-
urinn virðist ætla að vera nokkuð
hagstæður, en það væri
skynsamlegt að taka ekki óþarfa
áhættu og láta ekki bjarsýnina
leiða þig út í fjárfestingar sem
gætu reynst tvísýnar.
32 VIKAN