Vikan - 28.12.1987, Síða 33
Tvíburarnir
22. maí -21. júní
Nýja áriö færir þér ný og spenn-
andi verkefni að takast á við sem
munu færa þér mikla ánægju.
Ekki þarf annað en samtal þar
sem talað er saman af skynsemi
til að laga það sem útaf hefur bor-
ið í rómantíkinni. I starfinu bíða
þín tækifæri sem . gefa meiri
möguleika en þig grunar. Þig hef-
ur dreymt um að fara í ævintýra-
legt frí ( mörg ár, frí sem væri allt
öðru vísi en önnur, nú er rétti tím-
inn til að láta drauminn rætast.
Fjárhagurinn verður í góðu lagi,
Þó þarftu að gæta þess að fjár-
festa af skynsemi, annars fer illa.
Bogamaðurinn
24. nóv. -21. des.
Þetta ár verður ekki eins auðvelt
fyrir þig og síðasta ár. Lfttu á
þetta sem reynslu sem á eftir að
koma sér vel. Á tilfinningasviðinu
er þörf á breytingum, en þær
verða að koma frá þér og þú átt
eftir að undrast hversu ánægju-
legan árangur þær munu gefa.
Fárra breytinga er að vænta í
starfinu, en vanalegu störfin
munu færa þér ánægju eins og
áður. Þú þarft að gera allt sem f
þfnu valdi stendur til að fríið í ár
heppnist. Fjárhagurinn verður aft-
ur á móti jafn og góður allt árið.
Krabbinn
22. júní - 22. júlí
Nýja árið fer rólega af stað, en
fyrr en varir verða breytingar á
kringumstæðunum og mjög
ánægjuleg reynsla verður byrjun-
in á einhverju nýju og góðu. Á-
kveðin rómantísk upplifun mun
verða byrjunin á tímabili sem ger-
ir þig mjög hamingjusama(n).
Endrum og eins hefurðu verið
óánægð(ur) með vinnuna, en nú
fara þau að koma skemmtilegu
verkefnin sem bíða þess að
verða leyst og þú munt leysa með
miklum sóma. Sumarfríið f ár
verður þér lengi minnisstætt.
Fjárhagurinn verður yfirleitt í
góðu lagi, en bíddu með allar
stærri fjárfestingar.
Steingeitin
22. des. - 20. janúar
Fyrir Steinaeitina verður árið sér-
lega gott. I ástamálum gildir að
þú verður kannski að sýna meiri
lit en þú gerðir á síðasta ári. Þú
þarft að halda rónni í vinnunni og
halda þig við jörðina og þá mun
allt fara vel. Allt bendirtil þess að
fríið í ár verði einkar vel heppnað,
kannski það besta sem þú hefur
farið f. Fjárhagurinn verður dálítið
knappur, en þú skipuleggur vel
og verður því ekki eins mikið var
við það og við hefði mátt búast.
Ljónið
23. júlí - 23. ágúst
Fyrir þá sem eru fæddir í Ijóns-
merkinu mun árið verða ánægju-
legt. Tilfinningarnar gera það að
verkum að þú freistast til að
endurvekja fyrra samband, en
margt hefur breyst og þér væri
fyrir bestu að láta fortíðina óá-
reitta. Breytingar verða á starfinu
og líkur á að þú finnir þér allt aðra
vinnu. Þú átt erfitt með að ráð-
stafa sumarfríinu í ár, en árang-
urinn verður að lokum góður.
Fjárhagurinn er nokkuð þröngur í
byrjun árs en fer batnandi þegar á
líður.
Vatnsberinn
21. janúar- 18. febrúar
Það Iftur út fyrir að hlutirnir ætli að
ganga of vel og of hratt hjá þér í
ár! Vertu þvf vel vakandi um
framvindu mála. Ástamálin ganga
ekki vandræðalaust fyrir sig, en
allt mun þó leysast farsællega að
lokum. Það er of snemmt fyrir þig
að ætla að finna mjög freistandi
starf, þú munt nefnilega ná lengra
með því að fá meiri reynslu í nú-
verandi starfi, alla vega í nokkurn
tíma enn. Þú ferð í gott frí á árinu.
Peningamálin munu ganga furðu
vel.
Meyjan
24. ágúst - 23. sept.
Þetta verður mikið gleðskaparár
og einkennist af miklum breyting-
um, sem verða meiri en oft áður.
Ástin á góða möguleika, en það
er ástæða til að vara við flagði
undir fögru skinni. Á árinu gerirðu
ákveðna áætlun sem á að stuðla
að því að skapa þér enn betri
framtíð. Tillaga um að fara í
sumarfrí með hóp af fólki er ekki
góð hugmynd og fjárhagurinn er
það góður að þér ætti að vera
óhætt að halda þig við þær áætl-
anir sem þú gerðir í upphafi. Þeg-
ar á heildina er litið þá verður fjár-
hagurinn betri í ár en í fyrra.
Fiskarnir
19. febrúar - 20. mars
Þetta verður gott og hamingjuríkt
ár. Ástarsamband byrjar á svo
einkennilegan hátt að það mun
taka þig langan tíma að gera þér
grein fyrir tilfinningum þínum. En
einmitt þessi hægi máti gefur
bestan árangur. Og nú hefst
yndislegur tími. Einnig verður allt
sem viðkemur starfinu mjög
ánægjulegt og snemma á árinu
muntu eiga velgengni að fagna.
Fríið verður friðsælt, eins og þú
vilt helst hafa það. Fjárhagurinn
verður rokkandi á árinu, en ást-
andið verður aldrei það alvarlegt
að ástæða sé til að hafa áhyggj-
ur.
VIKAN 33