Vikan


Vikan - 28.12.1987, Page 35

Vikan - 28.12.1987, Page 35
menn í lið með sér, sem voru sama sinnis og hann sjálfur, að afhending handritanna til ís- lands væri stórt skref í áttina að sjálfseyðingu danska ríkisins! Áætlun hans gerði ráð fyrir því að handritunum yrði rænt með vopnavaldi úr Árnasafhi og sett á tryggan felustað. Þar á eft- ir átti að þvinga ríkisstjórnir ís- lands og Danmerkur til að ábyrgjast að handritin yrðu áfram í Danmörku, að öðrum kosti myndu ræningjarnir halda þýfinu sjálfir. Þetta hljómar allt nokkuð fáránlega, en ræningjarnir vænt- anlegu tóku sig háalvarlega og undirbjuggu ránið vandlega. Ætlunin var að nota tvær skammbyssur til að yfirbuga starfsfólk saíhsins. Önnur átti að vera hlaðin með púðurskotum, en hin raunverulegum föstum skotum. Byssuna með púður- skotunum átti að nota til að hræða starfsfólkið ef það yrði með einhverjar mótbárur, en enn er óljóst hvort samsæris- mennirnir voru tilbúnir til að beita föstu skotunum, ef mót- spyrnan hefði orðið meiri en þeir áttu von á. Heimsóknir Hetlers í Árna- safn sannfærðu hann um að besti tími til ránsins væri í há- deginu, þegar starfsfólk safnsins væri í mat og aðeins væri einn- maður eftir á staðnum til að gæta fjársjóðsins. Þá myndu ræningjarnir legga til atlögu, læsa byggingunni, yfirbuga starfsmanninn og binda hann svo rækileg að hann gæti ekki gert viðvart er þeir hyrfu á brott með ránsfenginn. Uppdráttur Hans Hetlers af safhinu átti að vera til hliðsjónar við aðgerðina, svo ræningjarnir gætu gengið beint að dýrmæt- ustu safngripunum. Handritin áttu síðan að pakkast niður í kassa sem ræningjarnir hefðu meðferðis og síðan skyldu þau borin út í tvo bíla sem áttu að standa ferðbúnir fyrir utan. Flóttinn undirbúinn Dulbúningur ræningjanna átti að vera venjulegir einkennis- búningar frá flutningabílafyrir- tæki í Kaupmannahöfh. ÖIl að- gerðin átti að taka 20-25 mín- útur. Bílarnir fyrir utan áttu að vera Citroén kassabíll og Morris Mini með óþekkjanlegum núm- eraplötum. í nágrqnni Árnasafns skyldi síðan standa stór flutningabíll, sem litlu bílunum yrði ekið inn í og síðan átti leiðin að liggja til úthverfisins Skovlunde, vestan Kom prófessor Jón Helgason í veg fyrir fífldjörf áform handrita- ræningjanna? við borgina, þar sem tveggja hreifla einkaflugvél beið þeirra. Handritunum skyldi síðan flogið til Hamborgar í V-Þýskalandi. Einn félaga Hetlers hafði flug- mannsréttindi og hafði hann séð um að leigja vélina. í Hamborg stóðu samsæris- mennirnir í sambandi við mann, sem hafði til umráða kjallara, þar sem átti að geyma handritin. Kom prófessor Jón Helgason í veg fyrir ránið í ágúst 1961, voru samsæris- mennirnir tilbúnir til að láta til skarar skríða, en Hans Hetler taldi réttast að leggja leið sína enn einu sinni í Árnasafn og kanna aðstæður. Þar hitti hann fyrir íslenskan mann, sem svar- aði spurningum hans varðandi handritin af kurteisi. Maður þessi var uppfullur af fróðleik um þennan íslenska þjóðarauð og samkvæmt lýsingum Hetlers getur varla hafa verið um annan mann að ræða en prófessor Jón Helgason. íslenski ffæðimaðurinn hafði að sjálfsögðu enga hugmynd um fyrirætlanir Hetlers, en nokkur ummæli hans ollu þó að tvær grímur runnu á ræningjaforingj- ann. Jón Helgason hefúr væntan- lega haldið að hann væri að fræða einhvern saklausan áhuga- mann, þegar han tjáði Hans Hetler að handritin væru ákaf- lega viðkvæm fyrir allri með- höndlun sökum elli og það þyrfti að geyma þau við sérstakar að- stæður. Loftraki og hitastig þyrftu að vera af réttri blöndu svo dýrgripirnir skemmdust ekki. Jóni varð tíðrætt um að ef handritin væru geymd í lengri tíma við slæmar aðstæður mætti búast við að þau yrðu með öllu ónýt. Samsærismennirnir funduðu lengi um möguleikann á að inn- rétta kjallarann í Hamborg, þannig að hann uppfyllti kröf- umar um geymsluaðstæður fyrir gömul og lúin handrit. Aðstæð- ur í kjallaranum voru ekki hinar bestu, upphitun af lakasta tagi og loftraki mikill, þannig að stórhætta var á að handritin myndu hreinlega grotna þar niður á skömmum tíma. Hvernig sem samsæris- mennirnir reyndu, gátu þeir ekki fundið lausn á þessu vanda- máli. Þeir höfðu ekki ijárntagn til að leggja í kostnaðarsamar breytingar á kjallaranum og þeir óttuðust jafnframt að slíkt myndi vekja grunsemdir, þar sem þeir hefðu orðið að ráða sérstakt fagfólk til framkvæmd- anna. Annar geymslustaður en kjall- arinn virðist hins vegar ekki hafa komið til greina hjá þeim félögum. Fífldjarfar áætlanir þeirra höfðu þrátt fyrir allt ekki gert ráð fyrir að þeir myridu hugsan- lega eyðileggja íslensku handrit- in, þótt þeir vildu koma í veg fyrir að þau yrðu afhent Islend- ingum. Þessar óyfirstíganlcgu hindr- anir gerðu það að verkurn, að Hans Hetler ákvað á- síðustu stundu að hætta við hið fífldjarfa rán. Dönsk yfirvöld uppgötvuðu ekki þessar áætlanir fyrr en 14 árum seinna, árið 1975, þegar dagblaðið Ekstra Bladet birti greinar sem ljóstruðu upp um málið. Þáverandi dómsmálaráð- herra Orla Möller virtist ekki hafa mikinn áhuga á að gera neitt í málinu en hann sagðist þó álíta að lögreglan hlyti að rannsaka sannleiksgildi frásagn- ar blaðsins. Rannsóknarlögregla Kaup- mannahafnar ákvað að hafa tal af Hetler, sem var óhræddur við að játa þátt sinn í málinu við yfirheyrslu. í yfirheyrslunum sagði Hans Hetler m.a.: „Með ráninu á handritun- um ætluðum við að þvinga ríkisstjórnina og þjóðþingið til að koma í veg fyrir að handritin yrðu send aftur til íslands. Ég lít á handritin sem danska þjóðareign og lít því á afhendinguna til ís- lands sem glæp. Þegar ég gekk svo langt að ákveða að leggja hald á handritin, var það m.a. vegna þess að ég samþykki ekki þá þing- skipun og þingræði sem við höfum í Danmörku. Það er úrkynjuð tegund lýðræð- is. Eina rétta tegund þing- skipunar er þingræði tveggja þingdeilda, efiri og neðri deildar." Það er nokkuð spaugilegt að Hans Hetler virtist í þessum yfirheyrslum ekki hafa gert sér grein fyrir því að hans óskaþing- skipun er einmitt á íslandi. Orðinn njósnari og slapp við refsingu Þrátt fyrir að játning lá fyrir um yfirlýsta tilraun til vopnaðs ráns á handritunum íslensku og úreldingarfresturinn fyrir afbrot Hetlers var ekki útrunninn, slapp hann við ákæru af hendi hins opinbera,- Þegar hér var komið sögu hafði Hans Hetler nefriilega tengst öðrum og viðkvæmari málum, sem dönsk stjórnvöld kærðu sig lítt um að kæmust í há- mæli. Samkvæmt sérstökum samningi við leyniþjónustu danska hersins, var handrita- ræningjagengið óheppna, orðið að sérstökum njósnahring, sem stundaði ólöglegar persónu- njósnir um danska ríkisborgara. Uppljóstranir um það mál einu og hálfu ári eftir játning- arnar um handritaránstilraunina urðu að stórmáli í Danmörku, ícm m.a. leiddi til brottvísunar Orla Möller dórns- og varnar- málaráðherra úr ríkisstjórninni í október 1977. Heimildir: „Spionen der sladrede" Ekstra Bladet 1975 D.i iskar lögregluský VIKAN oö

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.