Vikan


Vikan - 28.12.1987, Page 39

Vikan - 28.12.1987, Page 39
Verkfalii mislólul Geislandi jólagotterí Það eru ekki aðeins ís- lensk böm sem eru dugleg við að troða í sig sælgæti fyr- ir jólin. í Vestur-Þýskalandi gekk líka í garð aðalvertíð sælgætisframleiðenda. Það em ekki aðeins fleiri tann- skemmdir sem fylgja með í kaupunum í ár, stór hluti sætindanna sem jólasveinn- inn færði Iitlu þýsku böm- unum í jólasokkinn nú tveimur ámm eftir Tschemobyl er a£ar geilsa- virkur. Þessar niðurstöður birti félag foreldra gegn kjarnorkuógnun í V-Þýskalandi, eftir að hafa rann- sakað geislavirkni í 300 teg. jólasætinda þegar jólavertíðin hófst í byrjun nóvember. Til- búnar vörutegundir, svo sem smákökur, súkkulaði og þess háttar innihalda allt að 150 Bq kílóið. Þessar tölur eru undir hættumörkum sem Efnahags- bandalag Evrópu ákveður (600 BQ/kíló) en þó hátt yfir mörkunum 10 Bq/kíló sem félag foreldra gegn kjarnorkuógnun telur að séu hættumörkin fyrir ófrískar konur og börn. Hnetur og möndlur tilheyra einnig jól- unum og eru samkvæmt rann- sókninni sérstaklega varhuga- verðar. Sá sem fær sér heslihnet- ur fyrir jólin má búast við að setja ofan í sig 300 Bq/kíló. Met- ið eiga raspaðar heslihnetur frá fýrirtæki sem Hansa heitir. Var- an inniheldur 646 Bq/kílóið sem er mikið meira en nóg til að vera fjarlægð úr hillum versl- anna. En það var ekki aðeins nú fyrir jólin sem fólk var varað við geislavirkni í matvælum. Óffísk- ar konur eða konur með börn á brjósti eru stöðugt hvattar til að Það er ekkl nóg með að þýsku bömln gelsll af gleði er þau raða í sig jólasælgætinu heldur geislar sælgætið því miður líka ... kynna sér magn geislavirkni í því sem almennt tilheyrir dag- legri fæðu. Um allt rísa upp litlar rannsóknarstofur, þar sem hægt er að láta mæla Bq magn í mat- vælum og fara margar mæður sem eru með börn á brjósti reglulega til að láta mæla geilsa- virkni í brjóstamjólkinni. Einnig eru daglega birtar í dagblöðun- um, við hliðina á veðurspánni, tölur yfir Bq magn í helstu fieðu- tegundum landsmanna. Gáfú ís- lenskir foreldrar börnum sínum geislandi gotterí í skóinn um þessi jól... ? Kynlífskönnun í Noregi Umfangsmikil könnun á kyn- lífishegðun Norðmanna hefúr staðið yfir að undanförnu. Tíu þúsund manns á aldrinum 18 til 60 ára hafa fengið í hendur mjög ýtarlegan spruningalista þar sem viðkomandi eru beðnir að gera nákvæma grein fýrir öllu sem viðkemur kynlífi þeirra. Þetta fólk hefur verið pikkað út úr þjóðskránni og svörin eru nafnlaus. Talið er að niðurstöð- ur könnunarinnar geti orðið að liði í baráttunni gegn eyðni. Svör hafa þegar borist í þús- undatali og að sögn talsmanna heilbrigðisstofnunar norska ríkisins eru svarendur mjög hreinskilnir. —SG. Jólaölii vinsælt Fleksnes sem kóngur Norska leikaranum Rolv Wesenlund (Fleksnes) hefur verið boðið hlutverk kóngs í sjónvarpsmyndaflokki sem sænska sjónvarpið ætlar að láta gera og nefhist „Kóngur og föðurland“. Auk þess að vera beðinn um að leika hlutverk kóngsins vilja Sví- amir fa Rolv sem ráðgjafa við gerð myndaflokksins og endanlega textagerð. Bo Hermansson mun að öllum líkindum annast leikstjórn. Hugmyndin að gerð mynda- flokksins gengur út á ímyndað kóngsríki þar sem kóngurinn er orðinn leiður á starfinu og vill koma á lýðræði. Drottningin er þessu mjög mótfallin og ýmsar Sænskir sjónvarpsmenn vilja gera Rolv Wesenlund að kóngi... spaugilegar uppákomur eiga sér stað. Sænska sjónvarpið ráðgerir að Ijúka gerð myndaflokksins fyrir næsta haust eða í síðasta lagi vorið 1989. Rolv Wesen- lund er um þessar mundir í Stokkhólmi og ræðir við Svíana. —SG. Hinir svonefndu frændur vorir á Norðurlöndum hafa keppst við að smakka á jóla- ölinu undanfarnar vikur. Sem dæmi má nefna, að bmgghús í Osló framleiddu 2,8 milljónir lítra af jólaöli sem tappað var á sjö milljón- ir fla skna. ölið er 6,5—7% að styrkleika og þykir hinn besti mjöður. Þetta er selt í öllum matvöru- Nýlega lauk nærri tveggja mánaða verkfalli útvarps- og sjónvarpsmanna í fsrael. Starfsmennirnir fóru í verk- fall til að krefjast hærri launa og reiknuðu með að það yrði ekki langvinnt. Al- menningur og stjómmála- menn munu krefjast þess að samið yrði strax. En raunin varð önnur. Stjórnmálamenn urðu himin- lifandi yfir því að þurfa ekki að svara nærgöngulum spurning- um í útvarpi og sjónvarpi, en þar hefur ríkið einkarétt á út- sendingum. Og almenningur sagði sem svo að engar fréttir væru góðar fféttir. Einu kvartan- irnar voru frá fólki sem saknaði þess að sjá ekki Dynasty og íþróttir. Á sama tíma blómstraði rekstur kvikmyndahús, veitinga- staða og myndbandaleiga. ísra- elar hlustuðu á útvarp hersins sem starfaði áfram og sendi út fréttir og skemmtiefúi, auk þess sem hægt er að ná sjónvarps- sendingum frá nágrannalöndun- um, Jórdaníu og Líbanon. Svo fór að ríkisútvarpsmenn í ísrael sáu sig tilneydda til að semja um mun minni launahækkun en þeir stefndu að. —SG. búðum eins og annað öl og það þykir hinum bindindissömu Norðmönnum sjálfsagt mál. Brugghús hafa tekið upp þá ný- breytni að tappa jólaöli ekki bara á venjulegar ölflöskur, heldur einnig á fimm lítra kúta sem norskir kalla „partyfat". Það eina sem Norðmenn óttast nú er að jólaölið verði allt uppselt fyrir jól, en það hefúr stundum komið fyrir. —SG. VIKAN 39

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.