Vikan


Vikan - 28.12.1987, Page 46

Vikan - 28.12.1987, Page 46
Sophia Loren: Maski úr minkaolíu Ég nota maska sem er búinn til úr minkaolíu. Ég bleyti grisjur í olíunni og legg þær á andlitiö og hálsinn í a.m.k. 15 mínútur á hverjum degi. Þetta hefur ró- andi áhrif á húöina og styrkir hana ein- nig. Hjálpar einnig til viö aö koma í veg fyrir hrukkur. Joan Coilins: Súrmjólk á andlitið Ég vil vera sólbrún, en sólbrúnkan er ekki falleg þegar hún fer að dofna. Ég jafna húðlitinn í andlitinu meö því aö þvo það upp úr súrmjólk og set síðan raka- krem á mig sem ég hef blandað nokkrum dropum af sítrónusafa út í. Hvað segja Klassapíurnar? Betty White Ég vil hvorki vera meö of stutt né of sítt hár, en ég vil aö hárið á mér virki þykkt og ræktarlegt. Ég bursta það því á hverju kvöldi og nota næringu meö olíu í tvisvar í viku. Ég hef mikla trú á andlitsböðum og nuddi. I andlitsbaði slappa andlitsvööv- arnir af, en fá jafnframt styrkingu. í nuddi slappar allur líkaminn af og spennan líö- ur í burtu. Ég set E-vítamínolíu á andlitiö á mér á hverju kvöldi sem rakagjafa og ég held mig frá sólböðum. 46 VIKAN Linda Evans Notið náttúrulegan farða Ég nota helst litaö dagkrem til að húð- in líti sem eðlilegust út. Ég blanda meiki og rakakremi saman í lófanum á mér og ber á andlitið þar sem ég vil að húðin sjáist í gegn. Ég set meira meik og minna af rakakremi á þá staði húðarinn- ar sem ég vil hylja meira. Ég set létt lag af púðri yfir og væti síðan svamp með vatni og fer varlega yfir andlitið til að þurrka í burtu allt laust púður. Ég reyni að forðast að nota of heitt eða of kalt vatn á andlitið vegna þess að það getur valdið æðasliti. Elizabeth Taylor: L____________________ Notið heitan þvottapoka Mér finnst mikilvægt að þekkja húð sína vel. Skoðaðu húðina í stækkunar- spegli. Þá sérðu hvað þarf að lagfæra. Ég örva blóðrásina með því að leggja heitan þvottapoka á andlitið og hálsinn þar til húðin roðnar. Þá set ég krem með mentholi í á húðina og læt þaö vera á í 15 mínútur. Þá þurrka ég það af og hreinsa og fríska andlitið með köldu vatni. Aðeins augun Ég nota farða mjög lítið, þó finnst mér gaman að leggja áherslu á augun. Ég vil ekki líta út eins og málverk. Eg held að konur noti mikinn andlitsfarða til að sýn- ast fyrir öðrum konum því karlmönnum líkar yfirleitt ekki að sjá konur mikið mál- aðar. Jacklyn Smith Hárnæringin sem ég nota er majónes. Ég ber majónes í hárið og vef síðan heitu handklæði um hárið. Eftir 30-40 mínútur tek ég handklæðið af og þvæ majónesið úr með sjampói. Hárið verður glansandi og fær í sig þá olíu sem það þarfnast. Bea Arthur Ég lita aldrei á mér hárið. Það var hrafnsvart þegar ég var ung. Ég mála mig sjaldan. Augnahárin og augnabrýrn- ar hafa ailtaf verið dökk. Ég nota kinnalit til að fá aðeins lit í andlitið og bláan eða drapplitan augnskugga. Rue McClanahan Ég vil líta aðlaðandi út. Ég held að all- ar konur hafi möguleika á að vera sætar, jafnvel fagrar, með því að læra hvað hár- greiðsla og andlitssnyrting henta þeim best. Eftir að aldurinn færðist yfir mig fór ég að setja hárið upp að aftan og hafði það stutt að framan, en það tók alltof langan tíma á morgnana að laga það til. Ég hellti mér þá bara í það að fá mér stutta, smarta greiðslu. Mér fannst ég skrýtin í fyrstu, en nú kann ég mjög vel við mig. Ég er með föla húð og ef ég set of mik- ið meik á mig finnst mér ég vera eins og trúður. Þar að auki finnst mér að þegar kona á mínum aldri er með of mikinn farða þá gerir það hana bara eldri. Mér finnst mjög gott að fara í gufu- og saunaböð til að fá húðina til að opna sig vel. Ég tek inn A-vítamín og kalk og finnst það hafa áhrif á aö húðin líti vel út. Ég drekk ekki áfengi, en mikið af vatni.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.