Vikan


Vikan - 28.12.1987, Síða 57

Vikan - 28.12.1987, Síða 57
sem gefur henni röddina aftur. Með herkj- um getur hún risið á fætur. Segist vilja kom- ast á snyrtingu. Á bak við lokaðar dyr breyt- ist hún í flýjandi dýr sem vænting um flótta gefiir byr undir báða vængi. Kemur ör- væntingarfull við læstar útgöngudyr. Getur troðið sér út um glugga og er á sama augna- bliki orðin hluti af snjófjúkinu. Ofankoman hvítir — frostið nístir — orðin Snædís, Snjódís koma upp í hugann. Er hún raunveruleg Snjódís? Er henni ætlað að hverfa inn í snjóinn; steinrenna, daga uppi eins og nátttrölli? Hvert á hún að flýja? Heim — á hún einhvers staðar heima? Hún getur ekki hugsað sér aö fara til móður sinn- ar þar sem allir eru að undirbúa einhvern fagnað, gleðihátíð. Hvernig á hún að sam- einast í kvöldmáltíð, trúarlofgjörð, gefa og þiggja gjafir til vitnis um elsku? Óhugsandi. Skólinn sem var áður gleðigjafi, er núna hrollvekja. Hún getur heldur ekki talað við neinn. Jól — hughrif — því sjá ég boða yður mikinn fögnuð — yður er í dag ffelsari fædd- ur — hann er í heiminn kominn sem frelsar okkur frá öllum syndum. En ef syndir feðr- anna koma niður á okkur; við líðum fýrir þær; hvað ef þær gera okkur hörð og köld? Af hverju er allt svona hræðilega umsnúið og breytt? Hvílík viðbrigði frá fyrri jólum. Er þetta það sem kallað er að verða fúllorð- in? Af hverju mátti hún ekki vera barn lengur? Hver sem tekur þig til sín eins og barn. Er ekki best að verða dís, andi þessa hvíta heims er umlykur hana; verða sönn Snjódís; fórna sér inn í snjóinn; frjósa inn í íshelluna? Hún skjögrar áfram meira en gengur, en ennþá er hún ekki búin að gefast upp; ennþá er hún ekki búin að leggjast í uppgjöf niður á mosamjúkt teppið sem breiðir hvítan faðminn á móti henni. „Snædís, Snædís“. Blindandi ljósgeisli, ískrandi hemlahljóð, hlátrasköll, söngur. Og allt í einu er hún umkringd af skólafélögum, skríkjandi af lífesfjöri. Una birtist í Ijósinu frá bílnum og togar vinkonu sína inn í hlýjan, troðfúllan bíl af kátum krökkum. Hún hristir af henni mesta snjóinn, tekur utan um hana og segir, „mikið er ég fegin að finna þig. Krakkar, Snædís dansar með okkur í kvöld". Viðbrigðin eru svo mikil að hún missir viljann; lætur teyma sig eins og viljalaust verkfæri. Já, hvers vegna ekki að dansa sig út úr öllu - geðshræringu - sorg - söknuði — berjast út úr steinruna dauðans inn í lífið, fæðingu fagnaðar og jólin. Húsið hennar Unu er ævintýri og stelp- urnar ganga inn í það. Mömmur, ömmur, langömmur, kannski langa-langömmur hafa átt þar heima og allar hafa þær skilið eitt- hvað eftir sig. „Nú svífúm við upp til lang- ömmu, upp í gamla tímann, stelpur", segir Una. Hún leiðir þær upp hvern stigann á feetur öðrum. Eins og kantaður turn, teygir húsið sig upp, upp í hæðirnar með einu til tveimur herbergjum á hverri hæð. Stigi rennur til þeirra ofan af efeta lofti, þær feta sig varlega upp hænsnaþrep og eru staddar á hæstalofti, svokölluðu háalofti, innan um ryk- og skúmfallnar kistur og koffórt. Una leiðir þær inn í leyndardóma háaloftsins. Bregður á loft gömlum, brakandi taftkjólum eða leyndardómsfullum grímubúningum. Skuggaskin háalofts og ljómi liðins tíma um- „Þú verður að dansa, brosa, hlæja og skemmta þér, Snædís. Ég þoli ekki að sjá þig svona dapra. Af hverju valdirðu þér hvítan kjól? Viltu vera snjódrottning eða hjúpuð hreinleika?" lykja stelpurnar sem róta og bylta til göml- um líkamshjúpum. Ljósveran okkar veit ekki hvort hún vakir eða sefur; hvort hún heyrir orð eða hugsan- ir. Snöggar sveiflur í huga og umhverfi sljóvga skynjun hennar. „Eg ætla að vera næturdrotting; ég ætla að vera gleðikona. Erum við ekki að vanhelga jólin með því að ætla að dansa fram á rauðamorgun - með því að dansa dulbúin? Er hægt að dansa sig inn í ákveðinn hrynjanda - dansa og dansa án þess að hætta? Fyrir hvern viltu dansa í kvöld - inn í hvað viltu dansa - inn í gleði eða sorg — inn í fegurð eða ljótleika inn - í vetur eða sumar?“ Orð eða hugsanir? Hún veit það ekki. „Hvað er að sjá þig Snædís? Þú lítur út eins og þú hafir verið í hörkuslagsmálum. Hvað heftir komið fyrir þig?“ Una hringsnýst í kringum vinkonu sína á meðan hún þvær, greiðir, málar, klæðir og lagar hana. „Það blæðir úr þér. Blússan þín er rifin. í guðs- bænum segðu eitthvað Snædís. Mér finnst eins og ég sé að klæða steinrunnið líkneski. Þú ert svo skrítin í augunúm. Ertu að verða veik? Viltu ekki fara heim og hvíla þig?“ „Ég á hvergi heima. Ég vil gleyma öllu — gleyma — gleyma - skemmta mér — drekka — dansa. Má ég ekki vera með þér í kvöld, Una?“ „Þá verður þú að dansa, brosa, hlæja og skemmta þér Snædís. Ég þoli ekki að sjá þig svona dapra. Af hverju valdirðu þér hvít- an kjól? Viltu vera snjódrottning eða hjúpuð hreinleika? Þú verður þá að skreyta þig líka með grænum blöðum eða blómum. Nú veit ég hvernig þú átt að vera. Þú verður grænt blóm, í sægrænum stilksokkum, og grænu blaðkrónupilsi, með hvítan snjómöttul yfir þér. Þú getur alltaf varpað snjóhjúpnum af þér í dansinum." Una snerist meira í kring- um vinkonu sína en sjálfa sig. „Núna ertu eins og raunveruleg snjódrottning. Láttu stelpurnar og spegilinn dæma þig.“ Það er kúnstugur hópur sem gengur út úr gamla strýtumyndaða húsinu. Gleðikonur, ljósálfameyjar, næturgyðjur eða trúðar og förukonur. Eru þær inni í nútíð eða þátíð — inni í raunveruleika eða skuggaheimi? Forn- fálegur vörubíll með tjaldi yfir palli birtist í snjómuggunni. Svartklæddir púkar eða dökkálfar lyfta fisléttum ljósáffameyjum upp á pallinn. Stelpurnar hlæja að dulbúningi strákanna. En einhver kitlandi hrollvekja rennur niður eftir bakinu á þeim. Kvöldið ber yfir sér dularblæ. Hvert eru þær að fara? Hvaða launráð eru strákarnir að brugga? Pallurinn er hlaðinn af bekkjum. Þær eru komnar inn í gamla tímann eins og þegar afar þeirra og ömmur fóru á sveitaböll; eða eru þær eins og fé, staflað upp á pall á leið í - ? Kolsvartur dökkálfúr eða púki tekur við snjódrottningunni okkar og heldur fast utan um hana. „Hver ert þú litla snjódrottning? Ertu eins köld og ríki þitt? Það andar köldu frá þér?“ Heit andmóða blandast kuli lofitsins og myrkrið er hlýtt. Við fýrstu hreyfingar bíls- ins dansa smáljósrákir frá götuljósum á segl- inu, en síðan gleypir kolsvart myrkrið eða hvítt snjófjúkið gamla vörubílinn og farþega hans. Þau hreyfast um bugður og beygjur og dansa til á pallinum, en skyndilega fer bíll- inn að snúast eins og skopparakringla í ótal hringi. „Það verður að hrista ykkur saman áður en þið sameinist í dansi", kallar bíl- stjórinn hlæjandi. Krakkarnir leggjast saman í eina kös. Áugnabliksspenna og stefha út í óvissu er svo mikil að þau geta ekki hætt að hlæja. Hlátur þeirra líður út í loftið framhjá litlu ljósverunni okkar sem situr fast- klemmd í örmum dökkáffsins eða púkans. „Hlæðu með litla snjódrottning“, segir hann. „Það verður að fylla þig af eldvatni og lífefjöri". Dökkáffar og ljósáffar eru að finna hvort annað undir seglinu, undir næturhimninum þegar farartækið nemur staðar með rykkj- um og skrykkjum. Segldúkur er dreginn til hliðar. Hvert eru þau komin? Iðandi kös af svartklæddum mannverum með svartar hettur yfir andliti taka á móti þeim. „Vel- komin, velkomin í ríki Saturnusar", hljómar á móti þeim. „Gangið til veislu. Drekkið; dansið; verið glöð“. Stór hvelfing opnast fyrir þeim, lýst með kertaljósum sem varpa heljarstórum skuggamyndum út í svart holrúm. Eru þau stödd í helli, salarkynnum eða aumum bragga? Það er ómögulegt að geta sér til um það. Veggir eru sýnilega klæddir með neti eða gisnu efni sem alls- konar skraut er hengt í. Jólaskraut, rautt, grænt, gyllt — sjávarskraut, skeljar, kuðung- ar, marglitar netakúlur, baujur, belgir - jarðargróður, grænar greinar, puntustrá, jarðvöndlar — það ólíklegasta virðist hanga utan á veggjunum. Strákarnir hafa greinilega lagt mikla vinnu í að skreyta þessi fúrðulegu húsakynni. Hvinur fer um hvelfinguna eins og jarð- skjálftahrina, þegar hvoffdyrnar ljúkast að baki stelpnanna. Snjódrottingin syndir með straumnum inn að stærðar ámu sem stend- ur á miðju góffi. Söfnuðurinn safhast saman í hring. Ljósveran okkar er ennþá orðlaus, viljalaus, svipbrigðalaus. „Bergið á veigum Saturnusar — drekkið - dansið - drekkið - dansið", sönglar dökkáffa- eða púkakór sem stendur í leiðandi breiðfylkingu frá munna að ámu. Gufúbólstrar líða upp úr mjöðnum sem kraumar og ólgar. Logar leika um ámu- botn og gufústrókar leika um dökkáffastrák eða púka sem stendur og hreyfir mjöðinn með sleifartilburðum. Enn aðrir standa og ausa og ausa í veislugesti. Skuggamyndir leikandi loga og hlykkjandi dökkálfa endur- kastast tröllauknar á baksvið. „Drekkið — dansið; — drekkið — dansið". Sönglið stígur, hnígur og bergmálar draugalega í hvelfing- unni. Ljósveran okkar grípur báðum höndum um drykkjarhorn og bergir stórum. Hafi henni verið kalt, er henni það ekki lengur. Hafi hún verið svipbrigðalaus, er hún það ekki lengur. Hafi hún verið orðlaus, er hún það ekki lengur. „Ég loga — ég brenn. Eruð VIKAN 57

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.