Vikan - 28.12.1987, Page 61
Mánudagur 28. desember 1987
Tom Hanks í góðum félagsskap í myndinni Pipar-
sveinafélagið.
ins árs. Eftir ávarp forsætisráðherra sem
verður sjónvarpað á báðum stöðvunum í
einu tekur kvölddagskráin við. Á báðum
stöðvunum er hún glæsileg og má nefna
STRAX í Kína, áramótaskaup og Kona í
rauðum kiól (Woman in Red) í Ríkissjón-
varpinu. A Stöð 2 má nefna Heilsubælið,
styrktartónleika prinsins af Wales og grín-
þáttinn Hanastél. Dagskránni lýkur svo
ekki fyrr en seint og um síðir eftir grín-
myndirnar Piparsveinafélagið (Bachelor
Party) og Frídagar (National Lampoon’s
Vacation).
Á nýársdag er Ríkissjónvarpið að venju
með mikið menningarlegt efni á dagskrá. (
eftirmiðdaginn verður sýnd upptaka sjón-
varpsins af óperunni Aidu í uppfærslu (s-
lensku óperunnar. Strax á eftir fylgir svo
ævintýrið um Þyrnirós sett upp fyrir
skautadansara. Um kvöldið verður svo á
dagskránni uppfærsla BBC á Rómeó og
Júlíu eftir Shakespeare.
Heldur léttar verður yfir dagskrá Stöðv-
ar 2 og má þar nefna barnaefni frá klukk-
an tíu fram yfir hádegi og kvikmyndirnar
Villuljós (St. Elmo’s Fire), /Evintýrasteinn-
inn (Romancing the Stone) Sherlock
Holmes í New York og Sumarið langa
(The Long Hot summer) sem er gerð eftir
sögu William Faulkner.
DAGSKRÁ VIKUNNAR
Clæsileg
áramóta
dagskrár
Báðar sjónvarpsstöðvarnar tjalda því
sem til er um áramótin. Meðal þess sem
áhugaverðast er má nefna að miðviku-
daginn 30. des sýnir Ríkissjónvarpiö nýja
sprenghlægilega breska gamanmynd
sem heitir Jólaboð. Þetta er ekta breskur
farsi sem lýsir því hvernig jólaboð getur
farið í hundana. Á Stöð 2 verður boðið
upp á tvær öndvegismyndir. Sú fyrri er Líf
í tuskunum með Barbara Streisand og
Ryan O’Neil. Þetta er gamanmynd frá
1972 og stendurfyllilega fyrir sínu. T.d. er
eltingaleikurinn í myndinni með þeim
fyndnustu sem festir hafa verið á filmu. Sú
seinni er Aðstoðarmaðurinn (The
Dresser), bresk mynd frá 1983. Með aðal-
hlutverk fara Albert Finney og Tom Court-
enay og voru báðir tilnefndir til óskars-
verðlauna fyrir frammistöðu sína.
Á gamlársdag eru báðar stöðvarnar
með barnaefni fram eftir degi. Eftir verður