Vikan - 28.12.1987, Page 70
FÁFI
Þessum pósti má
gróflega skipta í
tvennt. Þeim sem
inniheldur huggu-
lega gíróseöla...
og þeim sem ekki
hefur þessa gírós-
eðla.
\
Ég er það sem kallast á
nútímamáli póstfælinn fúgl
enda inniheldur minn póst-
ur ekkert annað en rukkan-
ir, tilkynningar um rukkan-
ir, tilkynningar um áður út-
sendar tilkynningar, ítrek-
anir og kröfttr.
Ég hélt að ég hefði leyst þetta
vandamál í eitt skipti fyrir öll
með því að fá mér lögheimili á
eyðijörð vestur á fjörðum og
lengi vel lifði ég sæll og glaður,
laus við allan óþarfa póst. En nú
fyrir jólin byrjaði póstur smám
saman að seitla inn um lúguna
hjá mér að nýju og síðustu dag-
ana fyrir hátíðirnar varð þetta
að óstöðvandi flóði: Miklagarðs-
tíðindi, Gamli Miðbærinn,
Brauð handa hungruðum heimi,
Átak til Skjóls, Styrktarfélag lam-
aðara og fatlaðra, Hagstætt jóla-
tilboð, bæklingar, dreiflrit,
KAUPTLI STRAX EÐA FARÐU í
JÓLAKÖTTINN.
Þessum pósti má gróflega
skipta í tvennt. Þeim sem inni-
heldur huggulega gíróseðla og
er ábending um að láta eitthvað
af hendi rakna til bágstaddra
innanlands og utan og þeim sem
ekki hefur þessa gíróseðla.
Þykkasti pósturinn í þessum
hópi er blaðið Gamli Miðbærinn
einar 112 síður í þægilegu broti
og hefur þar að auki þá sérstöðu
að hann skartar ritstjóra. f þessu
þykkildi er að flnna óvæntan
glaðning, ef þú á annað borð
nennir að flétta honum að blað-
síðu 82, því þar rekurðu augun í
fyrirsögnina „Frá Bensa Þór til
Ping Pong“ og merkilegt nokk,
það er ekki verið að ræða við
Bensa Þór kaupmann í Ping
Pong heldur er Guðjón Friðriks-
son hér að ræða um nafhgiftir
verslana við Laugaveginn fyrr
og nú.
Guðjón segir að erlendum
nöfhum á verslunum þessum
hafi vaxið ásmegin á síðustu
árum og telur hann upp nokkur
þeirra sem er glöggt dæmi um
andríki eigenda sinna:
„Akademia, Albamoda,
Amatör, Assa, Bangsímon,
Baron, Björn Borg — Mens wear
collection, Blondie, The Body
Shop, Casio, Clara, Company,
Dranella, Elegance, Faco, Fiber,
First, Flex, Kúnst, Lady Rose, Li-
bia, Lollipop, M. Manda, Marc
O’Polo, Misty, Nesco, Pandóra,
Partý, Pastel, Pepperínó, Ping
Pong, Plaza, Pæld’íðí, Quadro,
Roky’s Sasch, Skinngallerý, Skó-
magasín, Sport, Sportbúðin,
Sportval, Stúdíóhúsið, Tandy,
Tango, Tass, Tina Mina og Top
Class.“
Þótt finna megi stöku „bók-
menntir" innan um í þessu jóla-
póstsflóði er það flest af sömu
tegundinni og svokallað „Hag-
stætt jólatilboð" bæklingur þar
sem segir á bakhlið allt sem
segja þarf um þennan póst:
Pantið hér
athugið númerin.
Rífið síðuna af og sendið sem
fyrst!
— Við sendum samstundis.
Jólapósturinn
70 VIKAN