Vikan


Vikan - 22.03.1990, Síða 33

Vikan - 22.03.1990, Síða 33
STJORMUMERKIN sjaldnast um að læra að næra fólk í staðlaðri kvenlegri merk- ingu þess orðs; hún feliir sig ekki við að vera heima og baka kökur, sjá um heimilisstörfin og vera manni sínum hljóðlát- ur stuðningur. Smáatriði eru ekki hennar deild og það er hlédrægni stuðpúðans ekki heldur. Sú mikla hætta fylgir óþolin- mæði hennar að hugsanlega fleyti hún sér of hratt í gegn- um lífið, einkum á yngri árum. Hún hefúr tiihneigingu til að vera á yfirborðinu og kafa aldrei neitt. Á stundum getur orðið nauðsynlegt fyrir hrúts- konuna að gaumgæfa tilfinn- ingar sínar og upplifa eina reynslu til fulls. Karl-kvenleg Hrútskonunni finnst oft innra með sér að hún sé eitt- hvað öðruvísi en aðrar konur. Stundum virkar þetta vel á hana og hún notar sér það til ffamdráttar. Oftar upplifir hún þetta þó sem nokkurs konar tilfinningalega útlegð. Hún er fædd í kvenlíkama en hefúr oft það sem við köllum karlvit- und. Hrútskonan er fædd til erf- iðs hlutskiptis. Ef hún vill get- ur það verið henni ögrun til að skapa tuttugustu aldar fyrir- mynd að karl-kvenlegri hegðun. Allir standa frammi fyrir því verki að verða heil- steyptari. Hrútskonan stendur auk þess frammi fyrir því að læra að verða „kvenlegri". Annað tækifæri Hrútskonan leitar kannski að besta, fljótasta og frábær- asta ástarsambandi og kynlífi sem fyrirfinnst en hún stansar sjaldnast nógu lengi til að gefa fólki annað tækifæri. Hún er fljót að skoða og fljót að dæma William Hurt Nikita Krushchev Diana Ross Omarr Shariff Max von Sydow Peter Ustinov Vincent Van Gogh Tennessee Williams en getur líka gert aivarleg mistök. Þótt hún sé tryggiynd þegar hún ioks bindur sig þá getur hún líka elt uppi ævin- týralegri leiðir ef orkuflæðið til hennar er ekki á við Niagara- fossana. Hræsnislaus Hrútskonan er næm, heiðar- leg og hefur óbeit á uppgerð. Hún kemur beint að efúinu og ræðir hreint út við menn um hræsnisfúll viðhorf, kynjahlut- verk sem skapa misrétti og venjur sem leiða til leiðinda og deyfðar í sambandinu. En ástin færir hrútsstúlkunni ekki hamingju fyrr en hún hefur sigrast á hinu eilífa vandamáli hrútsins, þeirri miklu þörf sem hún hefur fyrir að stjórna elsk- huganum, sem stangast á við hina leyndu ósk um að láta hann stjórna sér. Þar sem hún er hreint ótrúleg hugsjóna- manneskja leitar hún oft árangurslaust að hinum hug- aða riddara á hvíta hestinum, sem mun hrífa hana með því að sigra heiminn og færa henni hann á silfurfati, án þess svo mikið sem mæðast. Vegna þess að slíkir öðlingar eiga einungis heima í ævintýrunum er hrúts- stúlkan oft ein á báti án nokk- urs leiðarljóss. Hún notar heldur aldrei kvenleg hrekkja- brögð eða barnalega leiki, ást hennar er jafú hrein og bein og taismáti hennar og athafnir. Er forsetinn tilfinningaríkur og skapstór? Kannast við þessa þætti í fari mínu - svarar Vigdís Finnbogadóttir í viðtali við Vikuna VIKAN fór þess á leit við Vigdísi Finnbogadóttur forseta, að hún tjáði sig lítillega um þá lýsingu sem Gunnlaugur stjörnufræðingur segir stjörnurnar gefa á henni. Varð forsetinn, sem óhætt er að kalla afmælisbarn mánaðar- ins, góðfúslega við þeirri ósk. — Stjörnurnar segja þig vera næma, heiðarlega og hafa óbeit á uppgerð. Hvað hefúr þú um þau ummæli að segja? Allar skynsamar og hugsandi manneskjur, sama í hvaða merki þær eru, hljóta að vilja vera næmar og heiðarlega og koma ffam án uppgerðar. — Ert þú ótrúleg hugsjóna- manneskja? Já, ég er hugsjónamann- eskja, en vil ekki gefa sjálffi mér þá stóru einkunn að vera ótrúleg hugsjónamanneskja. — En tilfinningarík og skapstór? Ég kannast við þessa þætti í fari mínu. — Sögupersónan Scarlett O’Hara er sögð dæmigerð hrútskona. Sérðu eitthvað líkt með Scarlett og sjálfri þér? Það hefúr aldrei hvarflað að mér að bera mig saman við sögupersónu. — Er rétt ályktað að þú takir viðfangsefúi með áhlaupi? Því verð ég að svara játandi. — Hefúrðu áhuga á stjörnu- speki? Hefði ég mikinn áhuga á stjörnuspeki væri ég líklega búin að hafa upp á nákvæmum fæðingartíma mínum svo hægt væri að leggja fyrir mig ná- Hér svarar Vigdís Finnbogadóttur spumingum Vikunnar um kvæmt stjörnukort. þaer lýsingar sem stjömukort hennar gefur á henni. 6.TBL 1990 VIKAN 31

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.