Vikan - 22.03.1990, Síða 38
_____KVIKMYND UM VON BULOW MÁLIÐ:_
Sekur eðasaklaus?
SÆMUNDUR GUÐVINSSON TÓK SAMAN
Martha „Sunny“ von Bulow hefur legið meðvitundarlaus á
sjúkrahúsi í New York í níu ár. Eiginmaður hennar, Claus
von Bulow, var dæmdur í þrjátíu ára fangelsi fyrir tilraun
til að myrða konu sína en málið var tekið upp aftur og
hann sýknaður. Málið vakti feikna athygli á sínum tíma
enda um þekkta og ríka fjölskyldu að ræða og fjölmiðlar í
Bandaríkjunum fylgdust vel með réttarhöldunum. Nú hef-
ur verið ákveðið að gera kvikmynd um þetta sérstæða
mál. í aðalhlutverkum eru heimsþekktir leikarar. Glenn
Close leikur Sunny og Jeromy Irons er í hlutverki Claus
von Bulow.
Biilow fæddist í Kaupmanna-
höíh árið 1926, sonur Svend
Borberg og konu hans, Jonna
Biilow. Foreldrar hans skildu
þegar hann var fjögurra ára.
Þegar Þjóðverjar hernámu Dan-
mörk fór Claus til Englands þar
sem móðir hans bjó og lærði lög
og sögu við háskólann í Cam-
bridge. Eftir stríðið var faðir
hans dæmdur í fangelsi íyrir
samvinnu við nasista og tók
Claus þá upp eftirnafh móður
sinnar og bætti „von“ við síðar
meir til að aðla sjálfan sig. Hann
fór í framhaldsnám við Sor-
bonne-háskólann í París, vann
síðan í banka í London um skeið
en seinna fór hann að starfa fyrir
auðugasta mann heims, olíu-
milljarðakónginn Paul J. Getty,
og varð hans hægri hönd. Claus
var þekktur glaumgosi og
kvennabósi og vinir hans spáðu
því að hann léti aldrei flækja sig
í hjónaband. Það breyttist hins
vegar þegar hann kynntist
Sunny von Auersperg.
Hún er bandarísk og Craw-
ford faðir hennar hafði orðið
stórauðugur á olíuviðskiptum.
Hún giftist Alfle von Auersperg,
austurrískum prinsi, sem átti
ekki bót fyrir boruna á sér en
hafði ofan í sig og á með því að
kenna tennis. Þau settust að í
Miinchen og eignuðust dreng
og stúlku, Alexander og Annie-
Laurie. En prinsinn svallaði
meira en góðu hófi gegndi og
Sunny byrjaði að drekka. Þau
skildu svo árið 1965 og hún
flutti til New York með börnin.
Claus hafði hitt hana nokkrum
árum áður í London og nú
endurnýjuðu þau kynnin svo
rækilega að þau gengu í hjóna-
band árið 1966.
Þau hreiðruðu um sig í tutt-
ugu herbergja íbúð sem Sunny
átti við Fifth Avenue og sneri að
Central Park. Auk þess keypti
hún „sumarbústað", Clarenden
Court, í Newport sem er fyrir
utan New York. Claus hætti að
vinna fyrir Getty, Sunny stofh-
aði digran sjóð og runnu vextir
af honum í vasa Claus. Allt virt-
ist í lukkunnar velstandi og þau
eignuðust dóttur sem var skírð
Cosima. Eftir fæðingu hennar
missti Sunny allan áhuga á kyn-
lífi og Claus sagði að hún léti af-
skiptalaust þótt hann leitaði til
annarra kvenna, svo lengi sem
það væri í laumi. Sunny drakk
gjarnan of mikið og dró sig '£
meira út úr samkvæmislífinu.
Claus kynntist leikkonunni Al-
exandra Isles og byrjaði að
íhuga skilnað.
Dregur til
tíðinda
Á jólum árið 1979 var öll fjöl-
skyldan samankomin á Clarend-
en Court. Við kvöldverðinn á
annan dag jóla veiktist Sunny
skyndilega og Alexander sonur
hennar hjálpaði henni í rúmið.
Hún hafði verið kvefuð að
undanförnu og drukkið stíft.
Þegar þerna hennar, María, bað
Claus að hringja í lækni færðist
hann undan og sagðist ekki vilja
Iáta óviðkomandi sjá Sunny í
þessu ástandi. En þegar Sunny
var enn sofandi að kvöldi næsta
dags hringdi Claus til læknis
sem kom samstundis. Andar-
dráttur hennar var þá mjög
veikur og sykurmagn í blóðinu
mjög lítið. Hún var flutt á sjúkra-
hús og þar kom í Ijós að ekkert
alkóhól var í blóðinu en hið lága
sykurhlutfall benti til að hún
hefði fengið stóran skammt
af insúlíni. Nokkrum dögum
seinna var Sunny orðin stálsleg-
in og kom aftur heim. En nú
höfðu vaknað grunsemdir hjá
Maríu og hún sagði Alexander
að svo virtist sem Claus hefði
verið tregur að kalla til lækni-
Auk þess hefði hún fundið litla
svarta tösku í klæðaskáp Claus
og þar í mikið af valíum. Alex-
ander ræddi málið við systur
sína og hún síðan við ömmu
sína, móður Sunny. En ekkert
var gert frekar í málinu. í
nóvember árið 1980 rakst þern-
an aftur á svörtu töskuna og
fann þá ekki bara valíum heldur
líka sprautu og glas sem var
merkt insúlín.
Fjölskyldan ætlaði að vera í
New York um jólin en helgina
áður í Newport. Þernan María
ætlaði með þangað en Claus
sagði henni að vera í New York
og hvíla sig. María sá að hann
tók svörtu töskuna með sér. Að
kvöldi 21. desember endurtók
sagan frá árinu áður sig. Sunny
varð skyndilega mjög þreytt og
utan við sig en neitaði því að
hún hefði drukkið eða tekið lyf-
Alexander hjálpaði henni 1
rúmið. Þegar ekkert hafði heyrst
36 VIKAN 6. TBL. 1990