Vikan - 06.09.1990, Blaðsíða 30
SMÁSAGA EFTIR VIRGINIA JONES
FULLKOMIÐ
MORÐKVENDI
Frú Boswell horfði með óánægjusvip á
glerið sem hún var búin að mala í duft
og hellti því í kartöflumaukið. Hún var
að búa til mat fyrir mann sem hafði það
í huga að yfirgefa hana og hún var
búin að ganga frá matseðli sem örugglega
myndi hraða brottför hans. Jafnvel þótt þetta
væri ekki venjuleg aðferð var þessi máltíð vel
tilbúin, ef morðsjónarmið er haft í huga.
í kjötbúðingnum var svolítið af muldum
kakkalakka, í salatið hafði hún stráð bambus-
tægjum úr gamalli dyramottu og saftsósan
hafði staðið í nokkra daga úti á heitum eldhús-
svölunum svo hún hafði sjálf myndað sínar
banvænu bakteríur.
Maður hennar kom heim á slaginu klukkan
sex. Hann fleygði hattinum sínum í áttina að
hattahillunni en hitti ekki frekar en venjulega.
Hann hengdi frakkann á hurðarsnerilinn,
sparkaði af sér skónum á dagstofugólfinu og
kastaði svo sjálfum sér upp í legubekk með
síðdegisblöðin. Eftir andartak var hann farinn
að hrjóta, eins og venjulega. Frú Boswell stóð
í dyrunum, horfði á hann og brosti með sjálfri
sér.
- Bráðum sofnar hann svefninum langa,
hugsaði hún. Svo gekk hún inn i stofuna og ýtti
við honum.
- Frank, maturinn er tilbúinn!
Hann reis upp, ruddist fram hjá henni inn i
borðstofuna og horfði með vandlætingarsvip á
borðið. Svo gretti hann sig og sagði:
- Þetta er það sama sem ég fékk á hádeg-
inu. Hvers vegna geturðu ekki fundið upp á
einhverju nýju? Ég vil heldur eggjahræru.
Búðu til eggjahræru!
Frú Boswell andvarpaði, kastaði matnum i
ruslafötuna og bjó til eggjahræru. Hún var ekki
neitt undrandi þótt fyrsta tilraunin misheppnað-
ist. í þeim bókum sem hún hafði lesið heppn-
uðust morðin sjaldan við fyrstu tilraun. - Ég
reyni bara aftur, sagði hún hughreystandi við
sjálfa sig.
Amy Boswell var smávaxin, lítilsigld kona og
sálarstyrkurinn var álíka og kekkur í sósu, á-
hrifalaus í hér um bil öllu sem hún tók sér fyrir
hendur. Hún reiknaði ekki með því að henni
tækist betur við þessa morðtilraun en henni
hafði tekist að sinna því hlutverki að vera góð
eiginkona fyrir Frank.
Allt frá brúðkaupsferðinni hafði það sýnt sig
að hún var algerlega óhæf sem slík. Brúð-
kaupsnóttina hafði Frank notað til að hnýta
laxaflugur f ísköldum veiðikofa uppi í fjöllum,
meðan hún sat í keng af kulda fyrir framan
olíuvélina og reyndi allt sem hún gat til að sýn-
ast kvenleg og freistandi. En hún var í flónels-
náttkjól og kápu utan yfir svo það var ekki á
góðu von. Hún átti eftir að fá þá bitru reynslu
aö þegar veiðivon var einhvers staðar á næstu
grösum var Frank betri veiðimaður en elsk-
hugi.
Dagarnir eftir brúðkaupsnóttina voru eins og
martröð. Hún fann aö hún hafði valdið Frank
vonbrigðum, frá því augnabliki þegar veiðistíg-
vélin hennar urðu lek og fylltust af vatni, úti í
miðjum, straumhörðum fjallalæknum. Hún átti
erfitt með svefn í þunnu fjallaloftinu og henni
bauð við þessum hálfsoðnu, slímugu silung-
um. Svo var eins og mýflugurnar gætu hvergi
verið annars staðar en á andliti hennar eða
öðrum berum blettum og skildu þar eftir rauða
flekki og bólguhnúða.
Eftir brúðkaupsferðina komst Amy að því að
Frank var ekki eingöngu æstur í fiskveiðar
heldur hafði hann líka ótakmarkaðan áhuga á
skíðaferðum, badminton, siglingum, köfun og
reiðmennsku. í bílskúrnum og uppi á skrifstof-
unni hans flaut allt af alls kyns einkennilegum
tækjum og tólum, dagblaðahillan var full af
íþróttatímaritum og í kjallaranum var allt fullt af
froskmannsbúningum, skíðum og öðru drasli.
Fyrir Amy var skemmtun í því fólgin að fara
út að borða, fara í bíó eða leikhús. En fyrir úti-
vistardýrkandanum Frank var Amy aðeins fjöt-
ur um fót. Hversu mikið sem hún reyndi hafði
hún aldrei í öll þessi ár sem þau voru búin að
búa i hjónabandi getað veitt einn einasta fisk.
Línan flæktist alltaf og öngullinn lenti í buxna-
skálmum Franks. Seglin rifnuðu hjá henni,
golfkúlurnar týndust, fóru venjulega niður í ein-
hvern poll, tennisboltarnir lulluðu niður á netið
eins og dauðar dúfur. Henni varð alltaf illt í fót-
unum á löngum gönguferðum; og þegar hún
reyndi að leika borðtennis við hann í kjallaran-
um rak hún sig alltaf í vatnsrörin í loftinu.
Það leið langur timi þangað til Frank gafst
upp. I mörg ár tók hann hana með sér þegar
hann fór á veiðar en þegar hún birtist hurfu
veiðifélagar hans. Það var svo sem ekkert
undarlegt, hún var farin að láta á sjá, var ósköp
ólöguleg í rauðri flónelsskyrtu og kakibuxum,
skjótandi í ailar átti ef hún sá einhverja hreyf-
ingu. Að lokum sá Frank að þetta strit var
vonlaust, þegar hún skaut af honum hattinn.
Þá fór hann að skilja hana eina eftir heima
þegar hann fór á flandur með félögum sínum.
En svo hafði Frank líka komist að því með
tímanum að það var fleira en veiðar sem hún
var ekki fær um. Það var fleira en slímugi fisk-
urinn sem hún gat ekki matreitt, hún gat hreint
ekki búið til neinn mat svo hann væri ætur.
Maturinn var aldrei tilbúinn á réttum tíma og
þegar hann var loksins kominn á borðið var
það venjulega einhver makkarónukássa sem
hún hafði fundið uppskrift að í einhverri eld-
gamalli matreiðslubók. Og það var ekki nóg
með að skyrturnar hans kæmu ekki fyrr en eftir
dúk og disk úr þvottahúsinu heldur gleymdi
Amy oft í hvaða þvottahús hún hafði sent þær.
30 VIKAN 18. TBL.1990