Vikan - 06.09.1990, Síða 45
TEXTI: SÆMUNDUR GUÐVINSSON
Gefið upp
á krít
Krítarkortaóöir íslend-
ingar, sem vilja láta
gott af sér leiða, bíða
eflaust í ofvæni eftir að fá góð-
gerðarkort til viðbótar Evró,
Vísa og Samkortunum. í
Bandaríkjunum og Bretlandi
hefur það færst mjög í vöxt að
krítarkortafyrirtæki gefi út
aukakort sem eru merkt hinum
og þessum góðgerðarstofnun-
um eða líknarfélögum. Hand-
hafar kortanna geta ákveðið
fyrirfram hversu háa upphæð
þeir gefa til viðkomandi félags
eða stofnunar í hvert sinn sem
kortið er straujaö. Menn geta
til dæmis ákveðið að gefa tí-
kall við hverja straujun eða
fimm hundruð kall, sem síðan
færist af reikningi korthafa og
á reikning viðkomandi góð-
gerðartélags.
Hér er um viðbótarkort að
ræða þannig að hver og einn
ræður því hve oft hann notar
sitt venjulega kort eða velur
kortið sem gefur til líknarmála.
Hér gæti til dæmis Samkort
gefiö út Landgræðslukort,
Vísa verið með Krabbameins-
kort og Evró verið með Hjálp-
arstofnun kirkjunnar, svo við
búum til dæmi. Þannig gætum
við stöðugt verið að gefa - upp
á krít. □
Fjölmargir íbúar Bama
yfir 100 öra:
Snáka-
bruggið
lengir
lífið
Allir vilja lifa sem lengst
en enginn vill verða
gamall og lasburða. Á
markaði eru óteljandi aðferðir
og töfralyf sem eiga að tryggja
fólki langlífi og heilbrigði fram í
rauðan dauðann. En hversu
margir vilja vinna það til að
drekka daglega tvö glös af víni
þar sem hráefni er meðal ann-
ars úr eðlum og eitursnákum,
hundstittlingum og fjörutíu teg-
undum jurta og grasa, jafnvel
þó það verði til að lengja lífið
um tugi ára?
Þennan metal drekka íbúar
í Bama, fjallaþorpi í Suður-
Kína, rétt við landamæri Víet-
nam. Og margir þorpsbúar eru
vel yfir 100 ára. Til dæmis á
kona ein þarna í Bama 130
ára afmæli á þessu ári og er
enn hin brattasta. Að vísu er
hún orðin svolítið óstyrk á fót-
unum, en sinnir engu að síður
eldamennsku og öðrum tilfall-
andi verkefnum og segist allt
eins búast við að verða 200
ára.
Þetta langlífi í Bama var
uppgötvað fyrir fáum árum.
Enda er staðurinn mjög af-
skekktur og er í 1300 mílna
fjarlægð frá Peking. Þeir sem
vilja fara þangað frá Peking
þurfa fyrst að fljúga í þrjá tíma,
þá tekur við níu klukkustunda
lestarferð og loks að minnsta
kosti sex tíma akstur á slæm-
um vegum áður en komið ertil
Bama. Meðal íbúa er Lan
Boping sem er 111 ára en leik-
ur við hvern sinn fingur. Hann
reykir eins og strompur og hef-
ur gert lengi, sérstaklega eftir
að hann hætti störfum sem
farandsölumaður fyrir hálfri
öld. Og drekkur tvö glös á dag
af víni héraðsbúa sem er
framleitt með svo sérkennileg-
um hætti. Sagt er að ekki dugi
að fá sér slurk af víninu af og
til vilji menn ná háum aldri,
það þurfi að sturta í sig úr
tveimur glösum á hverjum
degi.
Ekki eru allir jafntrúaðir á að
langlífi Bamabúa sé þessu
vfni að þakka. íbúarnir lifa ein-
angruðu lífi og þangað fá út-
lendingar ekki að koma nema
með sérstöku leyfi. Bamabúar
borða lítið af kjöti, loftið er tært
og heilnæmt og streita er
óþekkt fyrirbæri. Flestum
finnst það öruggara að taka
inn þennan hæfilega skammt
af brugginu á hverjum degi.
Nú eru framleiddar 300 þús-
und flöskur á ári en uppi eru
ráðagerðir um að tvöfalda
framleiðsluna. □
VARANLEG
HÁREYÐING
VARANLEG HÁREYÐING
Ein sú besta háreyðing sem
völ er á. Árangur mjög góður,
engin óþægindi, engar
húðskemmdir.
CLARINS ANDLITSBAÐ
í Clarins andlitsbaði fær húð
þín þá næringu, hreinsun og
þau uppbyggjandi efni sem
húð þín þarfnast.
CLARINS LÍKAMSNUDD
Cellulite nudd sem er
vatnslosandi og styrkjandi.
Nuddað upp úr Clarins olíum
og Multi Modelank kreminu.
AUK ÞESS...
Snyrtistofan Ágústa býður
einnig upp á fótaaðgerðir,
húðhreinsun, handsnyrtingu,
litun, vaxmeðferð, förðun og
meðferð við háræðasliti.
CLARINS
P A R I S
CHANEL
Ágústa
Kristjánsdóttir
fótaaðgerða- og
snyrtifræðingur
Kristín
Guðmundsdóttir
fótaaðgerða- og
snyrtifræðingur
Snyrtistofan Ágústa er ný
snyrtistofa sem býður upp á
Clarins og Chanel þjónustu.
Reyndar er hún eina snyrti-
stofan á landinu sem býður
upp á Chanel þjónustu. Við á
Snyrtistofunni Ágústu
einsetjum okkur að veita þér
faglega og árangursríka
þjónustu og bjóðum ykkur
velkomin á góðan stað.
KLAPPARSTlG 16
101 REYKJAVÍK
S ( M I : 2 9 0 7 0
18.TBL 1990 VIKAN 45