Vikan - 01.11.1990, Síða 24
TEXTI: HILDUR JÓNSDÓTTIR
Elsku Siggi frændi.
Anna systir átti afmadi á
sunnudaginn. Hún varð fimm
ára. Mamma og pabbi tóicu
myndir í allar áttir. Svo var farið
með filmuna í framköllun. Það
var í eina afþessum nýju tækni-
væddu ljósmyndabúðum sem
skila myndunum á disklingi.
Þegar pabbi kom heim með
disklinginn stakk hann honum
bara í tölvuna og við skoðuðum
myndirnar. Sumar eru algerlega
misheppnaðar. Þær vistum við
ekki. Flestar eru ágætar. Sér-
staklega myndin af afa að leika
Tarsan. Ég afrita hana í bréfið
og sendi þér hana með.
Heyrðu annars, ég afrita líka
lista yfir blá lrímerki sem ég á.
Ég er alveg til í að býtta. Ég
sendi bréfið beint í þína tölvu.
Gott að þú tókst hana með.
Anna vill núna komast í tölv-
una. Hún er alveg vitlaus í al-
ffæðisafhið með spendýrunum.
Það er líka æðislegt að sjá
hvernig þau hreyfast og hlaupa
og allt. Hvernig er annars á fsa-
firði? Mamma biður að heilsa
mömmu þinni. Bless, þinn
ffændi Steindór.
P.S. Finnst þér ég ekki vera
flinkur að skrifa? Ég keyri bréfið
í gegnum nýja villuleitarforritið
mitt. Tölvan fann bara fimm
stafsetningarvillur. Svo lagaði
ég það. Það voru aðallega
ufsilonin.
etta er dæmi um sendi-
bréf barns sem getur
vel orðið raunhæft á
næstu fimm til tíu árum. ( því
endurspeglast sumir af mögu-
leikum heimilistölvunnar sem
nú eru í sjónmáli, auk nokk-
urra sem nú þegar eru fyrir
hendi. Hafi þig vantað góða af-
sökun til að koma einni slíkri
upp á heimilinu skaltu lesa
framhaldið. Svo skaltu merkja
við á dagatalinu þann 7. til 11.
nóvember því þá gefst gullið
tækifæri til að kynnast betur
möguleikum heimilistölvunnar.
IBM gengst þessa daga fyrir
viðburði í nýja Hekluhúsinu
sem hlotið hefur heitið Undra-
heimur IBM.
Þetta er ekki tölvusýning í
eiginlegri merkingu heldur
verður áherslan lögð á það
mannlega hugvit sem liggur
tölvutækninni að baki og þær
andlegu afurðir sem út úr
hennni koma þegar manns-
hugurinn tekur hana í þjónustu
sína. Tilgangurinn er aö
kveikja hugmyndir, miðla
reynslu og veita innblástur til
nýrra verka. Margs konar fróð-
leikur verður settur fram á aö-
gengilegan hátt, jafnt fyrir börn
sem fullorðna, þá sem aldrei
hafa snert á tölvu jafnt og inn-
vígða kunnáttumenn.
EKKI BARA
HEIMILISBÓKHALD
Algengasta afsökunin fyrir að
fá sér heimilistölvu er að nú
eigi að koma lagi á fjármálin
og setja heimilisbókhaldið í
tölvu. Tölvan er tilvalið tæki til
þeirra nota. Fylgjast má með
útgjöldum fjölskyldunnar, færa
inn gjalddaga á lánum, reikna
út greiðslubyrði og gera áætl-
anir. Þessir möguleikar heimil-
istölvunnar eru vel þekktir og
stöðugt fleiri nýta sér þá.
Flestir skrifa, sumir meira og
aðrir minna, og margir eru
starfandi í félagasamtökum
þar sem þeir gegna ýmsum
trúnaðarstörfum. Þau geta
verið bókhald eða ritarastörf og
margir þurfa að ávarpa sam-
komur og fundi. Flesta dreymir
um að skrifa greinar og jafnvel
viðameiri ritverk. Alltof marga
hrjáir vantrú á eigin getu þegar
skrif eru annars vegar og
handbækur og leiðbeiningar
eru af skornum skammti.
Eitt af þeim nýju forritum
sem kynnt verða í Undraheimi
IBM heitir Ritvöllur. Það finnur
stafsetningarvillur og algengar
stílvillur eins og óhóflegar
endurtekningar á sömu orðun-
um eða orðasamböndunum.
Einnig hjálpar það notandan-
um að velja byrjanir, svo eitt-
hvað sé nefnt.
SKJALASAFN
FJÖLSKYLDUNNAR
Það er ekki fjarri lagi að segja
að tölvunotkun fjölskyldunnar
takmarkist aðeins af hug-
myndaflugi hennar. Miklir
möguleikar felast í að tengja
saman tölvuna og tómstunda-
iðjuna. í henni er hægt að
halda skrár yfir frímerkjasafn-
ið, plötusafnið og bókasafnið
og hafi einhver í fjölskyldunni
áhuga á að grúska í ættfræði
eru til skemmtileg forrit til að
tölvukeyra ættirnar. Eitt slíkt
veröur kynnt í Undraheimi
IBM. Sjálfur Snorri Sturluson
mun víða um land vera kom-
inn inn í tölvur afkomendanna
og veit enginn til að hann hafi
snúið sér við í gröfinni af þeirri
ástæðu.
Mataruppskriftir, bílabók-
hald og viðhaldsskýrslur yfir
húseignina er sjálfsagt að hafa
inni í tölvunni. Ekki má gleyma
sjúkraskrám barnanna. For-
eldrar eru oft spurðir um
heilsufar barna sinna, hvenær
þau fengu barnasjúkdóma og
annað af þeim toga og víst
getur vafist fyrir margra barna
foreldrum að halda því öllu til
haga í kollinum. Mikið öryggi
er samfara því að eiga skrárn-
ar til á tölvu og auðvelt er að
bæta við þær eftir því sem
tíminn líður og bólusetningum
fjölgar.
UPPFLETTIRIT Á TÖLVU
Margir kannast við uppflettirit
á borð við Heimilislækninn
sem gott er að eiga á heimil-
inu. Innan fárra ára verða slík
uppflettirit sniðin að heimilis-
notkun til á tölvutæku formi.
Þau geta bæði verið ætluð
börnum og fullorðnum til fróð-
leiks og skemmtunar. í Undra-
heimi IBM verður sýnt fyrsta
alfræðisafnið yfir spendýr sem
gert hefur verið í heiminum en
það eru hreyfimyndir af dýrun-
um á geisladiski. Þetta al-
fræðisafn var unnið af IBM í
samvinnu við National Geog-
raphic Society. Slík söfn og
uppflettirit, ýmist með texta,
teikningum, kyrrmyndum,
hreyfimyndum eða blöndu af
öllu, verða á næstu árum ódýr-
ari og aðgengilegri en nú er.
Líklega munu þau fyrst verða
tekin til notkunar í skólum en
eftir því sem framleiðsla þeirra
verður ódýrari mun notkun
þeirra breiðast út til heimil-
anna sjálfra.
Á sýningu IBM verða kynnt íslensk og erlend forrit fyrir skola.
24 VIKAN 22. TBL. 1990