Vikan - 01.11.1990, Qupperneq 40
SNIGLABANDID FRH. AF BLS. 39
s
tjörnuspá-
HRÚTURINN
21. mars - 19. apríl
Þú keppir að vissu tak-
marki og beitir öllum brögðum til
að ná þínu fram. En keppinautur
þinn á ekki síður kost á að hreppa
hnossið. Lærðu að hemja skap-
ofsa þinn og sætta þig við að
tapa.
NAUTIÐ
20. apríl - 20. maí
Þér þykir erfitt að sam-
ræma vinnuna og áhugamálin.
Það bitnar á fjölskyldunni, sem
hefur varla séð þig í margar vikur.
Þú verður að ráða bót á þessu
strax, annars getur það orðið of
seint.
TVÍBURARNIR
21. maí - 21. júní
Þú hefur átt við vanda að
stríða og finnst ákaflega erfitt að
koma auga á lausn hans. Þú
heldur að lausnin detti af himnum
ofan. Svo er ekki en málið á eftir
að fá farsælan enda.
KRABBINN
22. júní - 22. júlí
Það kemur upp sundur-
þykkja i fjölskyldunni og þú þarft
að taka á honum stóra þínum til
að sætta deiluaðila. Þér leiðist að
vera sáttasemjari en munt síðar
þakka fyrir að hafa fengið tæki-
færi til þess.
UÓNIÐ
23. júlí - 23. ágúst
Vikan verður ákaflega
skemmtileg. Þú hittir gamla kunn-
ingja og endurnýjar vinskapinn
við einn sem var þér mikils virði.
Láttu nú tækifærið ekki ónot-
að ... eins og þú ert vanur!
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Þú nýtur hylli glæsilegrar
persónu og nýtur þess mjög. En
það kemur að því að þú verður að
gera upp hug þinn, hvort þú vilt
framhald á þessum kunningsskap
eða hvort þú vilt að hann endi.
VOGIN
24. sept. - 23. okt.
Þú hefur verið uppstökkur
upp á síðkastið. Þér hættir til að
stökkva upp á nef þér að ástæðu-
lausu. Lærðu að stilla skapíð, á
næstunni reynir á hvort þú ert
starfi þínu vaxinn.
SPORÐDREKINN
24. okt. - 21. nóv.
Mörg ókunn andlit verða í
kringum þig næstu daga. Þér
finnst erfitt að halda fótfestu og
ert ekki öruggur um þig. Þú kemst
að raun um að þú hefur staðið þig
með mikilli prýði.
BOGMAÐURINN
22. nóv. - 21. des.
Óafvitandi ertu miðpunkt-
ur í áætlun í smíðum. Þín bíður
erfitt verkefni sem þér tekst að
leysa með sóma. Ofmetnastu
ekki, þú hefur ekki ástæðu til þess
þó þér hafi tekist vel í þetta
skiptið.
STEINGEITIN
22. des. - 19. janúar
Þolinmæði þrautir vinnur
allar. Þetta máltæki á mjög vel við
þig næstu daga. Það er mikið að
gera hjá þér en eftir nokkrar vikur
hægist um og þú getur farið að
líta lífið bjartari augum.
VATNSBERINN
20. janúar - 18. febrúar
Þú ert þvingaður í um-
gengni við aðila af gagnstæða
kyninu. Láttu það ekki halda fyrir
þér vöku því þú átt eftir að kynn-
ast þessum aðila nánar og þau
kynni vara alla ævi.
FISKARNIR
19. febrúar - 20. mars
Óvæntar breytingar á
heimilishögum eiga hug þinn all-
an næstu vikur. Það er mikið um
að vera en þér líður vel og þú ert
örugglega að gera rétt. Vinur þinn
bíður eftir lífsmarki.
sólóg ítarleikara sem engin
vandræði eru með, ekki nema
þá helst að hann drekkur ekki
nógu mikið! Þorgils er fæddur
1972. Hann var í Nýdönsk en
þeir ráku hann og það er
sennilega það besta sem þeir
hafa gert á ferlinum."
Meðlimir Sniglabandsins
segja að aldrei hafi komið uþp
ágreiningur um tónlistarstefnu
sveitarinnar, þeir hafi allirsvip-
aðan tónlistarsmekk, allir séu
þeir svo til alætur á tónlist,
„nema hip hop og sýrudans-
tónlist sem er ekki tónlist að
okkar mati heldur bara
ryþmar".
Meðlimir Sniglabandsins
hafa alltaf gefið út sínar plötur
sjálfir og það efni sem þeir
hafa gefið út segja þeir að hafi
verið til allt frá því að Bifhjóla-
samtökin voru stofnuð.
„Það var til voðalega mikið
af alls konar söngvum í kring-
um samtökin. Þess vegna höf-
um viö svona smám saman
verið að hreinsa til hjá okkur í
sarpinum. Við höfum alltaf ver-
ið andmarkaðslega sinnaðir
og þess vegna ekki leitað til út-
gáfufyrirtækja."
Eftir Sniglabandið liggja í
plasti þrjár tólf tommu plötur,
Fjöllin falla í hauga, Áfram
veginn með meindýr í magan-
um, Til hvers þarf maður
konur?, lagið Jólahjól á safn-
plötu og næfurplata sú er
áskrifendur Vikunnar kannast
eflaust við. Ég spurði þá fé-
laga hvað þeim fyndist um
svona útgáfu.
„Mjög sniðugt. Við erum
stórhrifnir af þessu - að
hlaupa bara inn í stúdíó, taka
upp eitthvert lag og senda síð-
an upptökuna til Bandaríkj-
anna- en Skúli hafði séð aug-
lýsingu um svona plötugerð
þar úti - og fá þessar næfur-
plötur til baka. Við gerum al-
veg örugglega svona aftur,
jafnvel mánaðarlega, þannig
að fólk gæti bara keypt hana í
áskrift. Þetta er eiginlega bara
uppákoma því svona skífur
hafa náttúrlega ekki sömu
hljómgæði, þó þau hafi komið
okkur á óvart, né endingu
venjulegra platna.“
PLATA Á LEIÐINNI
- En hvað um venjulega
plötu, er svoleiðis að vænta
frá ykkur á næstunni?
„Já, nú erum við að leggjast
í upptökur og það kemur alveg
örugglega út plata frá okkur í
nánustu framtíð. Svo er líka á
áætlun að fara til Sovétríkj-
anna á næsta ári. Við ætlum
að spila á færri stöðum en [
fyrra en jafnframt að vera
lengur á hverjum stað. Það var
svo stórkostlega upplifun að
fara þarna austur eftir að við
verðum hreinlega að endur-
taka þetta. Við ætlum að fara
hægar í hlutina og reyna að
bindast smátilfinningaböndum
við hvern stað því þarna í fyrra
kynntumst við besta fólki sem
við höfum hitt, gestrisnu og
vingjarnlegu, það bara getur
ekkert að því gert í hvernig
kerfi það býr. Og láttu eitt endi-
lega koma fram: Við erum ekki
kommúnistar þó svo við höfum
farið til Sovét, eins og margir
halda. I rauninni hittum við
ekki einn einasta kommúnista
í Sovétríkjunum."
Spjallið barst að Fimmunni
og spilamennsku Snigla-
bandsins þar. Þeir voru sam-
mála um að það væri mjög
þægilegt að spila svona mörg
kvöld í röð, þeir kynntust
áhorfendum betur og öfugt.
„Stundum er stemmningin
eins og í stóru partíi."
EF ÞÚ DÆLIR ...
- Hafa orðið einhverjar
skemmtilegar uppá-
komur?
„Já, já. Það var til dæmis
einu sinni að hingað kom mað-
urinn sem á þetta hús og sett-
ist hér á stól fyrir framan
hljómsveitina. Við nefnum
engin nöfn en maðurinn á olíu-
félag sem byrjar á O og nafnið
er fjögurra stafa langt, grænir
stafir! Og við sögðum við
hann: „Ef þú dælir í okkur
brennivíni skulum við spila
hvaða lag sem er fyrir þig. Síð-
an byrjaði hann að söngla lag-
línur og lagabyrjanir og við
spiluðum lögin jafnóðum.
Þetta virkaði alveg djö... vel.
Við vorum eiginlega glym-
skratti fyrir kappann! Oftar en
ekki erum við f því hlutverki
því fólk galar til okkar nöfn á
lögum og við verðum bara að
sþila viðkomandi lag. Það gild-
ir að standa sig í þessu, þá
verða allir ánægðir."
Að þessum orðum sögðum
leystist spjallið upp í hálfgerða
dellu sem ekki verður farið
nánar út í hér. En meðlimir
Sniglabandsins vildu taka það
skýrt fram að þótt þeir væru
ekki góðir strákar væru þeir
ekki vondir strákar heldur, eins
og margir héldu. Sem dæmi
um ranghugmyndir fólks um
þá kemur hér saga frá Friðþjófi
bassaleikara:
„Ég var að ganga með
þremur meðlimum Snigla-
bandsins niður Laugaveginn
þegar stelþa, sem ég þekki,
hóar í mig. Ég fer yfir til hennar
og sé að stúlkunni er mikið
niðri fyrir. Hún segir við mig: -
Hvað ert þú að gera hér? Ég
segist vera að vinna með
þessari hljómsveit. - Og ert þú
að flækjast með þessum
mönnum, segir hún þá. Ég
segi náttúrlega já og þá segir
hún: - Veistu aö ég held að þú
sért orðinn brjálaður. Sérðu
hvernig þeir eru klæddir?
Þetta ... þetta eru allt saman
morðingjar."
„Þetta segir alveg heilmikiö
um það hvernig fólk hugsar
um okkur. Fólk er alltaf að
dæma okkur eftir því hvernig
við erum klæddir, sumir slá þv(
jafnvel föstu að við séum á kafi
í dópi og slfku. Þetta er í raun-
inni hlægilegt," sögðu meðlim-
ir Sniglabandsins að lokum.