Vikan - 18.05.1939, Blaðsíða 14
14
VIKAN
Nr. 20, 1939
^fegurá og I3ízka
Starfsstúlkur.
P) að virðist vera eitthvert allra erfiðasta viðfangsefnið nú
A á döguxn að koma hinu rétta sambandi á, milli húsmæðra
og vinnukvenna. Ungar stúlkur langar ekki lengur til að ann-
ast heimilisstörf, sumpart af því, að nú geta þær gegnt svo
mörgum öðrum störfum, og sumpart af því, að húsmæðurn-
ar eiga svo bágt með að skilja það, að nú ríkir nýr andi og
þær verða að fara með vinnukonurnar eins og frjálsa borg-
ara, en ekki eins og þræla, sem verða að hlýða. Af þessu
leiðir, að vinnukonurnar tolla ekki í vistunum nema stutta
tíma.
Það er ekki til betri trygging fyrir þægindum daglegs lífs
en að hafa vinnukonu, sem finnst hún vera í einu og öllu
samábyrg fjölskyldunni.
Takið tillit til óska hennar og venja eins og hún væri ein
af fjölskyldunni. Látið hana hafa þægilegt og hlýtt herbergi,
gott rúm og þægilegan stól. Sjáið um, að hún hafi bækur til
að lesa, þegar hún hefir lokið vinnu sinni og hún komizt út
á kvöldin, þegar hana langar til. En reynið helzt að sjá um,
að hana langi ekki mikið til þess með því að gera henni kleift
að taka á móti ættingjum og vinum heima.
Ef þér ætlið að hafa boð, skuluð þér spyrja vinnukon-
una áður, hvort henni komi það nokkuð illa, að það sé ein-
mitt haft þetta kvöld. Og, ef hún þyrfti að vera í afmælis-
veizlu eða eitthvað þess háttar, skuluð þér reyna að fresta
boðinu, ef yður er það unnt.
Gleymið ekki að halda upp á afmælisdag vinnukonunnar,
svo að hún finni, að hún sé ein af fjölskyldunni.
Verið þolinmóðar við ungar stúlkur, sem eru óvanar
heimilisstörfum. Það tekur á taugarnar, ef þær brjóta mikið
og skella hurðum, en með skynsamlegri bendingu er hægt
að lagfæra það.
Skammið ekki vinnukonurnar, ef þeim verður eitthvað á,
talið skynsamlega og vingjarnlega við þær um það, sem
miður fer. Ásakið þær aldrei, þegar aðrir eru viðstaddir.
Takið yður vara á því að láta ókunnar vinnukonur taka
Fa.ía kvöldkjóll úr tafti.
þátt í erfiðleikum og einkamálum
heimilisins, því að það getur valdið
miklum óþægindum, ef þær bera það
út. En ef hún er orðin kunnug og
hefir reynst vel, skuluð þér trúa
henni fyrir ýmislegu í því trausti'að
hún misnoti það ekki.
Verið vingjarnlegar við ættingja
og vini vinnukonunnar. Bjóðið þeim
inn, svo að hún þurfi ekki að leita út,
en læri að skoða vinnustað sinn sem
heimili sitt.
Þegar þér heimsækið vini yðar,
vanrækið þá ekki að heilsa vinnukon-
unni, ef hún er inni eða kemur inn.
Ekkert ber meiri vott um skilnings-
skort tíðarandans en að láta sem
maður sjái ekki vinnukonuna. Hún
er ein af f jölskyldunni.
Eins er það sjálfsagt að heilsa
vinnukonum, sem eru hjá vinum
manns, á götu svo framarlega, sem
maður þekkir þær. Ungu stúlkurn-
ar halda því fram, að engum nema
vinnukonum sé sýnd svona ókurteisi,
og þetta er eitt af mörgu, sem veld-
ur því, að ungar stúlkur eru ófáan-
legar til að ráða sig í vist.
Vorkápa með nýjasta sniði.
Regla og stundvísi.
Heimili getur aldrei verið skemmtilegt,
nema þar ríki regla. Það er erfitt að
kenna börnum að hlýða reglum, en
getur þó tamizt með mikilli þolinmæði, og síðar læra þau að meta
það og þakka fyrir það.
Stundvísi hefir einnig mikið að segja á heimilum, sérstaklega við
máltíðir. Það er þreytandi fyrir húsmóðurina að þurfa að bíða með
matinn og halda honum heitum, þegar heimilisfólkið kemur eitt og
eitt, sitt á hvorum tíma. Skólarnir reyna að blása nemendunum
stundvísi í brjóst, en það er ekki
nóg, heimilin verða að halda
því við.
Munið, að stundvísi á heimil-
um verður að lífsvenju, og það
er ekkert nema kurteisi að vera
stundvís og láta aðra ekki þurfa
að bíða eftir sér.
Munurinn á að hugsa ljótt og gera
ljótt, er skortur á hugrekki.
*
Þér getið með góðri samvizku tekið
af yðar eigin tíma, en ekki tíma vinnu-
veitanda yðar. Forbes.
*
Það eru aðeins tvö völd í heiminum
— sverðið og skynsemin. — Þegar til
lengdar lætur, biður sverðið ósigur
fyrir skynseminni. Napoleon.
*
Drottni fellur bezt við þá, sem eru
blátt áfram. Þess vegna skapar hann
flesta þannig. Lincoln.
*
Ég veit, að hvolpar verða að hund-
um, og litlir kiðlingar að geitum,
þannig hefi ég lært að bera saman
lítið og stórt. Virgil.
Nýlega voru gefin saman í hjónaband
ungfrú Lydía Pálmarsdóttir og Sigur-
bergur Ámason, gjaldkeri hjá Félags-
prentsmiðjunni. Heimili ungu hjónanna
er í Helgadal við Kringlumýrarveg.