Vikan - 07.09.1939, Blaðsíða 20
20
VIKAN
Nr. 36, 1939
1 tilefni af 75 ára afmæli Rauða
Krossins í ár, hefir póststjórnin í
Sviss gefið út minningarfrímerki eins
og á myndinni sjást. Stofnandi Rauða
Krossins var, eins og kunnugt er,
Svisslendingurinn, Henry Dunant.
Unga stúlkan með stóra bogann
heitir Edith Oss. Hún leikur indiána-
stúlku í nýju, þýzku kvikmyndinni
„Gullna gríman“.
Nokkrar af hinum 200 frönsku risa-
flugvélum, sem eru liður í hernaðar-
bandalagi Englands og Frakklands
og hafa tekið þátt í ioftárás á nokkra
enska bæi, sjást hér á flugi yfir St.
Paulskirkjunni i London.
Enski flugmálaráðherrann, Sir Kings-
ley Wood, hefir vígt stærsta fallham-
ar heimsins í hinni nýju High Duty
Alloyw-verksmiðju í Worcestershire.
Hér sést ráðherrann ásamt áhuga-
sömum mönnum við fallhamarinn.
5 fríðustu dœtur íslands.
Framh. af bls. "5.
fyrir VIKUNNI, í framkvæmd þessa mál,
er að vekja áhuga almennings á þessari
hlið málsins, því að við teljum það nauð-
synlegt, að íslendingar, sem nú taka að
gerast ærið okatækir í ýmsum alþjóðamót-
um og keppni, láti sig ekki vanta til þess-
arar saklausu, en þó talsvert þýðingar-
miklu keppni. Enda höfum við fundið
þess fullkominn vott, að þessari hugmynd
VIKUNNAR er mikill gaumur gefinn um
land allt, og notum við hér með tækifærið
til að þakka þau f jölmörgu bréf, sem okk-
ur hafa borizt því aðlútandi.
Síðast en ekki sízt flytjum við sérstaka
þökk þeim stúlkum, sem á landi kunnings-
skaparins höfðu þó djörfu til þess að
ganga fyrir skjöldu fram í fyrsta fegurð-
ardrottningarvah á íslandi.
Kjósið fegurðardrottningu!
Klippið þennan miða úr blaðinu og út-
fyllið hann aðeins með númerinu á mynd
þeirrar stúlku, sem þér gefið atkvæði yðar.
Sú, er hlýtur flest atkvæði er þá formlega
kjörin fegurðardrottning íslands 1939, og
fær til fullrar eignar veglegan silfurbikar,
sem Vikan hefir gefið til samkeppninnar.
Fegurðardrottning Islands
1939
Nr...........
Vikublaðið Vikan, Austurstr. 12, Keykjavík
Númerin á myndunum eru sett án tillits
til, hverjar hafa fengið flest atkvæði.
Ósiðir.
Cumt fólk hefir tamið sér ýmsan óvana,
*^sem kemur illa við annað fólk. Lesið
eftirfarandi grein og sjáið, hvort þér eruð
þar á meðal.
Reynið þetta: Látið yður falla niður á
stól í herbergi, þar sem þér eruð aleinn og
sitjið þar í tíu mínútur. Hvaða smáatvikum
takið þér eftir í fari yðar sjálfs, sem þér
gerið ósjálfrátt á þeim tíma? Sveiflið þér
fótunum í ákafa? Takið þér í eyrnasnep-
ilinn á yður? Fithð þér við lokk úr hári
yðar eða hnapp á fötum yðar? Sláið þér
fingurgómunum í borðið?
Þannig komist þér að öllum smávenjum,
er þér hafið ósjálfrátt tamið yður. Það eru
til alls konar venjur, bæði góðar venjur, er
öðrum geðjast vel að, og slæmar venjur,
sem aðeins spilla fyrir yður. Venjurnar eru
margar og margbreytilegar. Edgar Wal-
lace vandi sig t. d. á að dreypa á tei, þeg-
ar hann var að skrifa, svo að hann gat
ekki unnið, þegar teketillinn tæmdist.
Setjum svo, að þér hindrið framtak yð-
ar með þessum eða hinum ávana. Hér eru
nokkrar athuganir því viðvíkjandi:
Opnið þér útvarpið bara af vana, eða
vegna þess, að yður langar til að ná í ein-
hverja sérstaka stöð? Farið þér í bíó af
vana, eða af því að yður langar sérstak-
lega til að sjá einhverja kvikmynd eða leik-
ara? Hversu oft á dag skreppið þér út
frá skrifstofunni til þess að fá yður kaffi-
sopa eða eitthvað þess háttar? Lesið þér
hvert orð í dagblöðunum, eða aðeins þær
greinar, sem þér hafið áhuga á? Lesið þér
bók spjaldanna á milli, jafnvel þó að yður
leiðist hún?
Kvikmyndir, bækur, kaffi og útvarp eru
vissulega allt ómetanlegir hlutir, sem við
getum varla án verið. En þeir verðskulda,
að við notum þá vegna gæða þeirra, en
ekki af því, að þeir eru komnir upp í vana.
Hin raunverulega ástæða fyrir ýmsum
smávenjum manna er sú: að þeir f á í raun
og sannleika það, sem þeir æskja ? Því ekki
að vera eins vandfýsinn í vali, hvað snertir
venjur yðar, eins og þegar þér veljið yður
nýjan hatt?
Ef þér eruð of önnum kafinn til að gera
það, sem þér viljið helzt, þá er kominn
tími til að rannsaka venjur yðar.
Þess vegna skuluð þér taka til óspilltra
málanna og útrýma slæmum venjum, sem
skaða persónuleika yðar, áður en þær eru
orðnar of rótgrónar.
Edward Patterson.
er þvottasápa nútímans.