Vikan


Vikan - 30.11.1939, Qupperneq 18

Vikan - 30.11.1939, Qupperneq 18
18 VIK A N Nr. 48, 1939 Bárði bónda. Óli hefir misst eftirlætisdýrið hans. Addi: Við skulum segja honum það strax. - Óli: Þetta er allt mér að kenna, vertu ekki . . . Addi: Vitleysa! Addi: Hvað eigum við að gera hérna? — Bárð- ur: Hjálpa mér að ná í þjóf, sem stelur dýrun- um mínum. Synirnir skildu ekki spádóminn, og þann dag í dag hefir enginn þýtt hann, því að enn hefir presturinn ekki lokið þriðju skírninni á Svartanesi. Mér hnykkti við síðustu orð Barða, nú skildi ég svipbrigði hans, er prestsbátur- inn mætti okkur. — Ertu viss um, að þetta sé þriðja prestsskírnin á Svartanesi? spurði ég. — Ég er þess fullviss, mælti Barði ró- lega. — Ég þekkti Magnús, föður Atla, sem nú býr í Svartanesi. Magnús héit fast við Svartaness-siðinn og lét ekki skíra börnin sín, eða öllu fremur laugaði þau í sjávarfroðunni undir Svartakletti. Ég frétti, að Atli hefði átt fyrsta son- inn í vor. Hvað er nú í aðsigi? Barði gamli var staðinn upp og talaði nú fremur við sjálfan sig en mig. Mér var ekki orðið um sel, og magnleysið sótti svo á mig, að ég gat tæpast róið. Við vorum komnir norður fyrir nesið. Þaðan blasti bærinn bezt við og hin örmjóa landræma milli hafsins og hamranna. Héðan voru Hafhamrar frá hlið að sjá. Aldrei sá ég betur en þá hæð þeirra og r Oli og Addi í Afríku. Lísa: Að þú skyldir ekki vara þig. — Oli: Eg hélt, að það væri ekki svona sterkt og liðugt. Lína: Þetta eru piltarnir frá Garðari offursta. — Bárður: Velkomnir, strákar. — Óli og Addi: Sælir, en við . . . Bárður: En fyrst skuluð þið koma með mér og ná í nashyrning. — Óli: Addi, ertu ekki búinn að kveðja Lisu? hrikaleik. Þeir virtust hallast fram yfir bæinn. Nú var aðeins tekið að bregða birtu, en þó sá ég greinilega fólk koma út á hlaðið. Skírnin var sennilega um garð gengin, því að ég hafði nær ekkert róið meðan Barði sagði söguna, og tíminn liðið, áður en ég vissi af. Það var orðið einkennilega heitt og mollulegt í veðrinu, — ég hætti að róa. Haustkvöldið var kynlega hljótt og hljóð- bært. Ég heyrði skerandi hundsvæl ofan undan hömrunum. Barði gamli starði stöð- ugt upp á Svartanesið. Allt í einu heyrði ég eins og þungan nið í f jarska og — bom — eins og báturinn hefði steytt á blindskeri á fleygiferð. Ég hrökk á nasirnar fram á næstm þóftu, en spratt á fætur án þess að átta mig hið minnsta, og áttaði mig aldrei meðan á þessu stóð. Það fyrsta, sem ég sá, var, að sjórinn flæddi upp á nesið. En ég sá meira og heyrði, ég heyrði þann undirgang og dynki, sem enginn fær með orðum lýst. Og hvað sá ég? Ég sá Hafhamrana fara af stað, hægt og hægt. Mér fannst það Óli: Þetta var nú verra. ■ Bárður verður bál- reiður, þegar hann kemur. — Addi: Hann er að koma. Bárður: Bíðið við. Ég ætla að setja eftirlætið rnitt í búr. Ég mætti því niðri á vegi. — Óli: Guði sé lof! Nashyrningurinn, sem Bárður vill ná í, hendist í gegnum kjarrið. Hann er stór og fallegur. heil eilífð, meðan þeir voru á leiðinni. En svo hneigðu þeir sig hver frá öðrum, — hrundu hver af öðrum, allur fjallsendinn hrundi í sjó fram. — Og allt varð hljótt eins og í hyldjúpri gröf. Loksins rauf Barði gamli þögnina og benti í áttina þangað, sem Svartanesið hafði verið, en nú var ein rjúkandi urð. — Skilurðu nú, hvernig Svartaness-sið- urinn er úr sögunni, mælti hann óhugnan- 'lega öldruðum rómi. — Ekki að myrkra- völdin séu útdauð hérna á kjálkanum, — nei — sei, sei, nei. Það er Svartanesið sjálft og ættin öll, sem er farin, sokkin í það myrkur, sem hún hefir óttast öllu meir fram á þennan dag. Það leitar allt til upphafs síns, drengur minn, og þessi ætt, sem af ótta valdi myrkravöldin að upphafi sínu, er nú á heimleið.------ Við náðum til Líkárvíkur í myrkri um kvöldið. Jarðskjálftakippurinn hafði fund- izt þar greinilega. En hvergi varð neitt jarðrask, nema á Svartanesi, og þóttu ógnirnar, sem urðu þar, þeim mun kynlegri.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.