Vikan


Vikan - 21.12.1939, Page 7

Vikan - 21.12.1939, Page 7
!riiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifiiri<iiiiii7r(Tri>iiitiiiiiiiiiiiiini(ciinniiiiiiiiiniTiii(iiiiiiiiiii|ii;iiiiiiiiiitiiiiiiiiifiiiiiiiiiiiniiniiiiiiiiiii liiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiinuiiiiiiiiiiniiiiiiimHiniii! VIKAN, nr. 51, 1939 5 Jólahugleiðing. FRIÐRIK RAFNAR, vígslubiskup: »VÆomm Vj&itu, vetrarperlan fríð thafnir vorar, öll vor störf og hugsanir hafa undanfarna daga að einhverju leyti miðast við þá stund, sem nú er runnin, jólahátíð- ina. Svo má telja, að allsstaðar, utan heimilanna og inn- an, hafi allt borið einhvern svip af undirbúningi hinnar komandi hátíð- ar, og í kvöld má sjá árangurinn. Heimilin eru skreytt, fólkið er prúð- búið, það sem bezt er til framreitt og gjafir eru gefnar. Og þetta er ekkert einstætt fyrir okkur hér á landi. Svona er það allsstaðar í kristnum löndum. Meira að segja er það kunnugt, að þar sem jólahald- ið hefir verið afnumið með lögum, þar hefir hvorki lögregla né lagaboð ráðið við fólkið. Það heldur samt jól, kveikir á kertum og syngur sálma til dýrðar honum, sem þetta kvöld sérstaklega er helgað. Allir vita það og viðurkenna, að misjafnt er um trúræki fólksins. Það eru til þau heimih og það fólk, sem segist lítilsvirða alla starfsemi kristinnar kirkju og kenningar henn- ar, og láti sig engu skipta hátíðahöld eða tilbeiðslu. Menn tala margt. En þó efast ég um, að nokkurt það heimili sé til á landi hér, sem ekki gerir sér dagamun á jólunum, ef þess er kostur. Jólin taka sínum tökum og tala sínu máh, hvað sem menn segja hina daga ársins. 1 jólaguðspjallinu stendur þessi eftirtektarverða setning: Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu, því að það var ekki rúm fyrir þau í gisti- húsinu. Ekkert gistihús í Betlehem opnaði fyrir húsnæðis- lausum foreldrum hans, svo að fæðingarbeðurinn varð jata í fjárhúsi og gestgjafinn fátækur hirðir. íbúðarhúsin áttu held- ur ekki rúm fyrir hann. Lítur nú ekki út fyrir að hér sé orðin breyting^ á, og hún til mikilla framfara og batnaðar ? Nú er hvert hús, hvert heimili í kristnum löndum uppljómað og skreytt til þess að bjóða jólagestinn velkominn. Sumsstaðar er það jafnvel siður að láta loga ljós í gripahúsunum á jóla- nóttina. Er nú lengur orðin ástæða til að segja það, sem oft heyrist þó sagt, sérstaklega af prédikunarstólunum, að enn sé ekki rúm fyrir hann, enn þá sé jólagestinum úthýst? Ber ekki allur hinn kristni heimur vott um hið gagnstæða, allur jólaundirbúningurinn, öll jóladýrðin, allt jólaskrautið ? Það getur litið svo út. En er það þá svo, þegar að er gætt? Þvi miður verður að játa það, að enn er ekki rúm fyrir hann. Hvað verður svarið, ef vér í einlægni og hreinskilni spyrjum sjálfa oss hverju vér séum að fagna, og hvers vegna vér höld- um jól? Erum vér að fagna honum, sem fæddist úr dýrð himnanna, gjörðist fátækur vor vegna, til þess að vér auðguð- umst af fátækt hans, eða erum vér aðeins að fagna jólunum sem vinsælli hátíð ljúfra minninga, halda vanabundinni hefð, sem vegna aldagamals siðar sem heimilishátíð er búin að vinna sér helgán reit í sálarlífi kynslóðanna ? Ef til vill þykir það ekki viðeigandi á jólunum að vera að spyrja að þessu, en þó er það ekki einskisvert að gera sér þessa nokkra grein. Mundi heimurinn, mannlífið, líta eins út eins og það gerir nú, ef jólahaldið væri í raun og sannleika fagnaðarhátíð yfir komu Jesú í mannheima, gleðihátíð vegna þeirra hugsjóna, sem hann gerði að veruleika, vegna þeirrar trúar, sem hann gaf döpru mannkyni, vegna þeirrar vonar, sem hann vakti, vegna þeirrar opinberunar guðs eilífa kærleika, sem hann flutti með sér? Jólin hafa verið kölluð mörgum fögrum nöfnum. Þau hafa verið kölluð hátíð kærleikans, hátíð gleðinnar og ljóssins, hátíð sakleysisins og trúarinnar. Allt eru þetta sannnefni, því allt þetta flutti jólabamið með sér. Það eru mörg eftirtektar- verð orð í jólaguðspjallinu. Engillinn segir við hirðana: Verið óhræddir. Þó er hræðslan, kvíðinn og kjarkleysið sífelt fylgj- andi oss mönnunum. Svo segir hann: Sjá, ég boða yður mik- inn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðum. „Mikinn fögnuð“, og þó er heimurinn enn í dag fullur af sorg og þjáningu. Og að lokum boða englarnir frið á jörðu með þeim mönnum, sem guð hafi velþóknun á. „Friður á jörðu.“ Er nokkurt hug- tak, sem oss virðist eiga lengra í land að verða annað -en orðin tóm, heldur en það? „Friður á jörðu,“ friður meðal þjóða, friður og sátt meðal manna, innbyrðis friður í sálu og hjarta hvers einstaklings, þar sem efi og áhyggjur mæða. Ef leitað er að þessu á jörðu, hræðsluleysi og kjarki, gleði og fögnuði, friði og sátt hið innra og ytra, ber þá veruleikinn vott um að jólagjöfin, sem gefin var á hinum fyrstu jólum, boðskapurinn, sem tilkynntur var mannkyninu á Betlehems- völlum, hafi verið, eins og vert væri, þeginn, skilinn og met- inn. Um það eru sjálfsagt skiptar skoðanir. En samt fögnum vér jólunum. Og það er ekki rétt, sem þó oft er sagt, að vér gerum það aðeins vegna ytri ljómans, sem þau bera með sér, og að ekkert rúm sé enn fyrir jólabarnið og boðskap þess. Því að fögnuður vor yfir jólunum er vissu- lega að meira og minna leyti, vitandi og óafvitandi fögnuður yfir því, sem þau boða. Vér fninum hvaða svar þau gefa við innstu þrám mannlegrar sálar. Vér þráum öll þá trú, það trúnaðartraust sem kvíðalaust, í allri baráttu lífsins getur sett von sína til þess guðs, sem á hinum fyrstu jólum boðaði syndugu mannkyni velþóknun sína. Vér þráum öll þann fögn- uð og gleði, sem dreift getur sorgum og áhyggjum mannlegs lífs. Vér þráum öll þann frið í hjörtu, þá sáttarkennd við allt og alla, sem er ávöxtur hins fullkomna kærleika og skilnings. Þrátt fyrir allt, sem sagt er, þrátt fyrir hið hrjúfa yfirborð mannlegs eðlis, þá er hið innsta eðli vor allra svo guði skylt, að það þráir hann, og óskar samfélags við hann, hinn eina fullkomna. Svarið við þessum innstu eðlisþrám mannlegs hjarta eru jólin. I kvöld vill barnið í Betlehemsjötunni koma til þín, hver sem þú ert og hvar sem þú ert, með sína trú, gleði og frið, trúna, sem treystir kærleika og velþóknun guðs, gleðina, sem því er samfara að birtan frá hæðum fái að lýsa upp í sálum vorum, friðinn, sem fullkomin sátt við guð, aðra menn og eigin samvizku eitt fær veitt. Þetta er það, sem jólin enn vilja færa oss. Þau vilja vekja guðsbarnið, sem svo víða sefur, og veita því hjálp og stoð, þar sem það er vaknað. Heimilin eru skreytt í kvöld. Fólkið er prúðbúið. Það er upplýst og hreint. Ekkert má setja blett á heimilin á heilög- um jólum. Þessi ytri dýrð er sjálfsögð, aldrei eins sjálfsögð eins og á þessum dögum. En þó er hún lítilsvirði, ef hið innra líf vort er ekki í samræmi við hana. Hin ytri jóladýrð má aðeins vera tákn þess, sem er að gerast í sálum vorum á þessu heilaga kvöldi. Bjóðum þar jólagestinn velkominn með þeim fögnuði og trúargleði, sem honum er samboðinn, með þeirri hjartans þökk, sem honum er verðug, með því lífi, sem helgað er af hans anda. Biðjum þess, að ljósið frá Betlehems- jötunni megi hrekja burt úr sálum vorum sérhvem skugga syndar og ótta. Þá verður þessi hátíð oss öllum í Jesú nafni GLEÐILEGJÖL! IIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIUIIIIIIIIIIlV*

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.