Vikan - 21.12.1939, Blaðsíða 39
VIKAN, nr. 51, 1939
37
• Kýja Bíó •
Jólamynd 1939.
Sigur tiiivitsiaiisiis.
Söguleg stórmynd frá Fox er sýnir þætti úr hinni baráttu-
ríku, en fögru ævisögu hugvitsmannsins heimsfræga,
Alexander Graham Bell, er fann upp talsímann. Aðalhlut-
verkið, Graham Bell, leikur Don Ameche ásamt Henry
Fondo og systrunum Polly-Georgiana og Loretta Young.
Sýnd annan jóladag kl. 7 og 9.
BARNASÝNING annan jóladag kl. 5.
Litla stúlkan með eldspýturnar.
Litskreytt teiknimynd eftir samnefndu ævintýri H. C.
Andersen. Auk þess 2 aðrar teiknimyndir, amerísk skop-
mynd, músikmynd og fl.
GLEÐILEGJÓL!
GLEÐILEG JÓL!
Bókaverzlim ísafoldarprentsmiðju.
HEIÐIN JÓL OG KRISTIN.
Framh. af bls. 7.
upp í hæstu prelátaraðir Kirkjunnar, já,
upp í sjálfa kúríuna, og því fer fjarri, að
það sé einsdæmi, að slíkar manngerðir
hafi setið á páfastóli.
Á þriðja degi jóla var aðalhátíðin á enda,
maður mátti- borða á venjulegan hátt, og
þjónustumunkurinn mátti anza mér, ef ég
yrti á hann. Og áður en ég lagði af stað
að kvöldi þess þriðja í jólum, kom gesta-
faðirinn með gráa leirflösku og hellti
grænum karþúsínalíkjör í staup hjá mér, af
þeirri tegund, sem þeir búa til sjálfir þar í
húsinu. Þessi líkör var ólíkur öllum char-
treux, sem ég hefi smakkað fyrr eða síðar,
bragðið gagnþrungið einhverjum þeim
töfrum, sem mér eru óskilgreinilegir með
öllu, og ég hafði keiminn af honum í vit-
unum í þrjú ár á eftir.
Uppeldisleikföng.
Höfum 25 teg. af sænskum og
þýzkum uppeldisleikföngum,
einnig Ludo, Kringum ísland,
Kúluspil og Miljóner.
MILJÓNER (MATADOR) er
bezta jólagjöfin. Biðjið alltaf
um Miljóner. — Það kostar
minnsta peninga.
Nýja leikfangagerðin.
Skólavörðustíg 18. Sími 3749.
JÓLAMATUR. Frh. af þls. 23.
Kjötið er skafið og þerrað vel, skorið
í fingurþykkar sneiðar þversum á þráðun-
um. Gætið þess að hafa sneiðarnar allar
sem jafnastar að stærð. Kjötið er barið.
Salti stráð yfir það. Steinseljan er þvegin,
vatnið hrist af henni, og söxuð gróft. Sam-
an við hana er hnoðað 50 gr. af smjörlíki.
Steinseljusmjörinu er skipt jafnt á kjöt-
stykkin, sem eru 10—12. Hverju stykki
er vafið þétt saman eins og rúllupylsu.
Gætið þess, að vafið sé vel fyrir endana,
svo að smjörið fari ekki allt út. Smjörið
er brúnað, kjötrúllurnar eru brúnaðar þar
í. Það má ekki vera mikill hiti.
Soðnu vatni og mjólkinni hellt á. Eftir
10 mín., er rjóminn látinn á og soðið í 10
—15 mín. ennþá. Allan tíman verður lok
að vera á pottinum eða pönnunni, og það
verður að sjóðast við mjög hægan eld,
þangað til kjötrúllurnar eru meyrar. Kjöt-
ið er tekið upp úr, látið á heitt fat, segl-
garnið tekið utan af rúllunum, sósan er
soðin, hrært í henni með þeytara og salt
látið í hana eftir smekk. Henni hellt yfir
kjötrúllurnar. Soðnum kartöflum raðað
utan um á fatið.
Helga Sigurðardóttir.
Alltaf
sama
tóbakið.
Verðið sama og
verið hefir.
Hressandi
jólagjöf!
BRISTOL
Bankastræti.
Jólamyndin í Nýja Bíó
er um höfund talsímans,
Graham Bell.
Graham Bell var aðeins 29 ára gamall,
þegar hann fann upp talsímann. — Þegar
hann var kornungur maður kenndi hann
mælskulist í Boston, — en lagði þó sér-
staklega stund á að kenna daufdumbu
fólki að tala. Þá varð hann ástfanginn af
ungri, daufdumbri stúlku, Mabel Hubbard,
og var talsíma-uppfinningin í rauninni
henni að þakka. Thomas Watson varð Bell
til ómetanlegrar hjálpar við tilraunir hans.
Einu sinni var Bell svo fátækur, að hann
átti ekki blað til að skrifa unnustu sinni
á, og varð því að skrifa henni aftan á blað
með allskonar útreikningum, en þetta blað
varð til þess að bjarga honum út úr miklu
máli, þar sem því var haldið fram, að hann
gæti ekki hafa fundið upp símann, þar sem
hann væri ekki rafmagnsverkfræðingur.
— Gardiner G. Hubbard, sem síðar varð
tengdafaðir hans, og Thomas Sander
reyndust honum vel fjárhagslega.
Árið 1876 heyrðust fyrstu orðin í gegn-
um símann: Mr. Watson come here. I
want you! Það var Beli, sem kallaði.
Þegar Bell dó, var hann ríkur maður,
og dóttir hans, mrs. Elsie May Gilbert
Roland, lifir enn í dag við góða heilsu í
Washington.
GLEÐILEG JÖL!
Verzlunin Edinþorg.
Heildverzlun Ásgeirs Sigurðssonar.