Vikan


Vikan - 21.12.1939, Síða 27

Vikan - 21.12.1939, Síða 27
VTKAN, nr. 51, 1939 25 Þrjóturinn. FRAMHALDSSAGA eftir ARNOLD BENNETT. Hann skrifaði skammargrein um The Signal, en honum var svarað í sömu mynt, að blaðinu kæmi ekkert við, hvað sölu- strákarnir gerðu að gamni sínu. Út úr þessu varð heilmikið málaþras. Þegar talað hafði verið um fyrir foreldr- unum, komst málið til lögreglunnar, en það bar engan annan árangur en þann, að drengurinn, sem var sonur mannsins, sem kærði, var barinn til óbóta skömmu síðar. Strákar eru nú einu sinni strákar. Ritstjórn The Daily bar svo lítið traust til mannanna, að hún gat ekki látið vera að halda, að ritstjórn The Signal stæði á bak við þessar árásir drengjanna. The Signal minntist aldrei á árásina, en The Daily birti daglega ógurlegar lýsingar á henni. Þetta hélzt í þrjár vikur. En þá datt Denry snjallræði í hug. Hann auglýsti, að hann gæti útvegað 200 mönn- um 6 tíma vinnu á dag með 2 shillinga tímakaupi. Með brögðum kom Denry þess- ari auglýsingu í The Signal. — Við verðum að borga dálítið fyrir það að koma blaðinu út, sagði Denry. — Við fáum fullorðna menn til að selja það. Ég hefði gaman af að sjá Signal-fantana snerta þá. Við borgum þeim föst laun og þar að auki prósentur af sölunni. Það freistar þeirra áreiðanlega. Við ættum að ráða fimm hundruð manns fyrst. Síðan gætu strákarnir tekið við aftur. Hr. My- son lét Denry ráða. Atvinnuleysið hafði aldrei verið meira en nú, og óánægja fólks- ins var gífurleg. Hr. Myson fékk því tvo lögregluþjóna til að vera viðstadda, þegar atvinnuleysingjarnir kæmu á staðinn. Hann bjóst við því, að staðurinn yrði tek- inn með áhlaupi. Allur var því varinn góð- ur. — Hálftíma eftir að staðurinn var opnað- ur höfðu komið fjórir. Hr. Myson hélt, að þetta stafaði af misskilningi, en svo var ekki. Skömmu síðar komu tveir í viðbót. Af þessum sex voru' þrír blindfullir, og hinir þrír lýstu því ákveðið yfir, að þeir vildu ekki selja blöð. Tveir skömmuðust, en einn sagði brandara. Hr. Myson og Denry botnuðu ekki neitt í neinu. Síðan kom út tilkynning um það, að The Signal ætti 35 ára afmæli. Blaðið ætlaði að taka alla skrautvagna Snape-hring- leikahússins á leigu, og blaðasölustrák- arnir áttu að aka um allt og selja afmælis- blaðið. Hugmyndin var ágæt og sýndi, að blaðið var þrátt fyrir allt hræddara við keppinaut sinn en það þóttist vera. En The Daily gekk vel, þó að undarlegt megi virð- ast, og það var Denry að þakka. Denry Það, sem áður er komið af sögunni: Edward Henry Machin var fæddur árið 1867 i elzta bænum af „bæjunum fimm“. Móðir hans var saumakona og kallaði hann Denry. — Þegar hann var 16 ára gamall kom hún honum á skrifstofu hjá hr. Duncalf, málafærslumanni. — Þá var það, að greifafrú ein hélt dansleik í „bæjunum fimm“. Á dansleiknum vann Denry sér það til frægðar að dansa fyrstur við greifafrúna. — Frú Codleyn er ekkja og húseigandi, sem skipti við hr. Duncalf. Þeim hafði orðið sundur- orða og varð það til ■ þess, að hr. Duncalf sagði Denry í reiði sinni upp atvinnunni, — en við það komst Denry í þjónustu frú Codleyn sem húsaleigurukkari ...... — Herbert Calvert, auðugur húseigandi, fékk Denry til að rukka fyrir sig húsaleigu. Ruth Earp var ein af leigjendum hans. Denry heimsótti hana þvi til að rukka hana, en hún lék laglega á Denry. ... Það endar með því, að þau trúlofast. Ruth fer illa með hann í peningamálum og trúlofunin slitnar skyndi- lega. Það næsta, sem Denry datt i hug var að stofna „kaupfélag bæjanna fimm“, og það gerði hann. Með klækjum fékk hann greifa- frúna af Chell til að verða vemdara kaup- félagsins. — Næsta afrek hans var að fá móður sína til að flytjast úr gamla húsinu í nýtt hús. en til þess þurfti hann að beita miklum brögðum. lét aldrei undan. Þarna lá blaðið með nóg- um fréttum og auglýsingum og samt gekk það ekki. Það var staðreynd, að The Signal græddi að minnsta kosti fimm þúsund pund á ári, en The Daily tapaði þrem pund- um á viku, og af þeim átti Denry þriðja- hlutann. Hann skildi þetta ekki. Að lokum tókst Denry að koma sér upp sveit blaðasölustráka. Viku áður en The Signal átti afmæli, heyrði Denry, að ritstjórnin væri dauð- hrædd um, að blaðasölustrákar The Daily eyðilegðu skrúðgöngu sína, og hún væri reiðubúin til þess að gera hvað sem var til þess að losna við blaðasölustrákana. Hann hló og sagði, að sér væri sama. Um það leyti stóðu deilurnar á milli þessara tveggja dagblaða hæst. Af tilviljun átti að fara fram knattspyrnukappleikur á milh Knype-manna og Bursley-manna þennan dag. Og blöðin mæltu auðvitað hvort með sínum flokknum. Kl. 5.30 þenn- an sama dag var The Daily prentað og þar var ágæt skýrsla um kappleikinn, þar sem sagt var, að Bursley-menn hefðu unn- ið Knype-menn með 1 marki á móti 0. Hr. Myson var hreykinn. Hvað skrúðgöngunni viðvék — hr. Myson og einkaritarinn brostu hvor til annars. Nokkrum mínútum síðar þutu Daily- drengirnir út með blöðin. Afgreiðslustofa The Daily sneri út að Stanway Rent, mjórri götu, sem var á bak við Crown Square. 1 Stanway Rents var lítil búð, sem sagt var að ætti að opna þennan sama dag. Þar fékkst ókeypis brauð og sultutau. Og um leið og Daily- strákarnir komu út á götuna var búðin opnuð, og drengirnir stóðust ekki freist- inguna. Nokkrir drengir, sem voru njósn- arar, þutu inn og kölluðu síðan, hvað þar væri á boðstólum. Hópurinn fór inn og bjóst við að fara strax aftur, en þá var hurðinni lokað. Þegar þeir höfðu borðað nægju sína, bað veitingamaðurinn þá að gjöra svo vel og fara bakdyrameginn út. Þegar þeir komu út voru þeir lokaðir inni í garði. Strák- amir æptu og veinuðu, en fengu ekkert svar. Ritstjórn The Signal neitaði að hafa ginnt strákana í þessa gildru, hvað sem satt er í því. Pólk hvíslaðist á, að nú hefði verið leikið á Denry Machin. Snape-hringleikahúsið var með stærstu stofnunum í North Staffordshire. Leikend- umir ferðuðust um á skrautvögnum sín- um með allt sitt hafurtask. Aðalbækistöð þeirra var í Axe, þrjár mílur frá Han,- bridge. En auðæfi Snapes gamla voru aðal- lega frá „bæjunum fimm“. En nú var þetta hringleikahús að hverfa úr sögunni. Eig- andi þess var nýdáinn. Og nafnið, hest- amir, vagnarnir og bættu tjöldin voru komin í hendur ókunnugra. Þennan marg- umrædda dag hélt það lokasýningu sína í Oldcastle, í útjaðri „bæjanna fimm“. Eig- endur The Signal höfðu tekið skrautvagna hringleikahússins á leigu þennan dag. Og þeir áttu að vera komnir niður að skrif- stofu blaðsins í síðasta lagi kl. 5. En um f jögur-leytið komu nokkrir menn með blóm í hnappagötunum og Signal-aug- lýsingu í höndunum, másandi og blásandi til Oldcastle og sögðu, að dagskráin hefði breytzt á síðasta andartaki vegna blölv- aðra Daily-þrjótanna. Nú áttu vagnarnir að aka strax sinn úr hvorri áttinni inn í borgina. Flestir áttu að aka inn í Han- bridge og hinir inn í Bursley og Long- schaw. Þannig hefðu þeir mest upp úr auglýsingunni. Áletraðir fánar og borðar blöktu á öll- um vögnunum í tilefni dagsins. Vagninn, sem ók inn í Hanbridge, var með sex hjól- um og dreginn af sex, skjóttum hestum. I fremsta sæti hans sat fulltrúi frá The Signal og stjórnaði ferðinni. Það þýðir ekkert að dylja það lengur, að þessi fulltrúi kom The Signal ekki nokk- urn skapaðan hlut við. Það var enginn annar en Denry Machin. Denry lét vagn- ana aka fáförnustu göturnar inn í bæinn. Að lokum námu þeir staðar í Crapper Street. Denry steig út úr vagninum og gekk inn á skrifstofu blaðs síns, sem var á næstu grösum. Skyndilega ávarpaði ungur maður Denry: — Halló, Machin! kallaði hann. —

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.