Vikan - 25.04.1940, Side 3
VIKAN, nr. 17, 1940
3
Hvalurinn er, eins og allir vita, stærsta
spendýrið. Jafnvel stærstu afrísku
og indversku karlfílarnir eru litlir í
samanburði við stærstu hvalina, og þá er
ómögulegt að temja. Aftur á móti hefir
tekizt að veiða lifandi ættingja risahvals-
ins, höfrunga, en þeir vekja meiri athygli
með fjöri sínu en stærð.
í stærsta lagardýrabúri, Marineland-
lagardýrabúrinu í Florida, eru tveir lifandi
höfrungar. Þeir eru á eilífum spretti allan
liðlangan daginn og leika sér að stórum
bolta, en temjast samt með hverjum deg-
inum, sem líður.
I heiminum eru mörg lagardýrabúr, og
þau stærstu eru heimsfræg. 1 Monaco,
Neapel, New York, Honolulu og Berlín eru
lagardýrabúr, sem þúsundir manna skoða
árlega. Innan skamms mun verða opnað
lagardýrabúr í Kaupmannahöfn. En lag-
ardýrabúrið í Florida er heill neðansjávar-
dýragarður, þar sem vísindamenn geta
rannsakað sjávardýrin, en jafnframt geta
Marineland-lagardýrabúrið í
Florida er stór neðansjávar-
dýragarður, þar sem hægt er
að rannsaka lífið á hafsbotni.
Eftir ALEKO E. LILIUS.
menn skoðað lífið í sjávardýragarðinum
að gamni sínu.
Það er mesta furða, hvað menn þekkja
í rauninni lítið til sjávardýranna á þess-
um vísindatímum. Enn er að mestu hula
yfir lifnaðarháttum þeirra.
Aristoteles, sem var uppi um 384 til 322
fyrir Kr., rannsakaði fyrstur manna líf
fiskanna. Hann skrifaði mikið um lifnað-
arhætti fiska við strendur Grikklands.
Rannsóknir hans voru nákvæmar, en eftir-
menn hans urðu lítils vísari. Það var ekki
fyrr en um miðja sextándu öld, sem þess-
ar rannsóknir hófust á ný.
Sílatorfa þeysist fram hjá búrglugganum.
Florida Oceanarium — sem er alþekkt
undir nafninu: ,,The Marine Studios of
Marineland, Florida", — er í stórri bygg-
ingu með mörgum tröppum og breiðum
gangstígum á þakinu. Umhverfis bygging-
una eru pálmar, kaktusar, klettar, fjara
og hafið.
Mastur eitt mikið setur sinn svip á bygg-
inguna. Lagardýrabúrin eru lögð að inn-
an með sandi, sementi og gúmmíi, svo að
fiskarnir rífi ekki slímhúðina af sér á
veggjunum. I byggingunni eru tvö ker,
annað er 30 m. á lengd, en hitt, sem er
kringlótt, 22x/> m. í þvermál. Þau taka
bæði 31/) milljón lítra af vatni. Á hverj-
um sólarhring renna 23 milljónir lítra af
fersku vatni í kerin.
Á lagardýrabúrunum eru 200 gluggar í
fimm mismunandi hæðum, og í gegnum þá
geta allir skoðað sjávardýrin.
Þótt undarlegt megi virðast, varð hug-
myndin að þessum lagardýrabúrum til í
Klettafjöllunum í Síam. Þegar Marian
Stœrsti, tamdi hákarlinn í lagardýrabúrinu í Florida. Hann er um 4 m. að lengd. Áhöfnin á „Marsvíninu“ veiddi hann með því að deyfa hann
á meðan hann var i hafinu. Þvi næst var hann fluttur i land.