Vikan - 25.04.1940, Side 4
4
VIKAN, nr. 17, 1940
Þetta er Ilia Tolstoy greifi, sonarsonur rússneska stórskáldsins Leo Tolstoy. Hann er reiðubúinn
að deyfa hákarlinn. Hann fann upp á því að deyfa fiska, og hafa ýmsir tekið það upp eftir honum.
Cooper tók þar fyrir tíu árum hina frægu
kvikmynd sína Chang, gerði hann búr í
miðjum Klettaf jöllunum fyrir villidýrin, og
þar tók hann svo myndir af þeim.
Þar af leiðandi tóku W. Douglas Burden
ásamt Ilia A. Tolstoy, sonarsyni hins
fræga rússneska skálds Leo Tolstoy, að
velta því fyrir sér, hvernig hægt væri
að nota þessa aðferð Coopers við sjávar-
dýrin.
Eftir tíu ára rannsóknir tókst þeim að
framkvæma þessa ósk sína núna fyrir
nokkrum mánuðum. Nokkrir auðmenn
studdu þá fjárhagslega. Árangurinn af
öllu þessu er sá, að bæði vísindamenn og
leikmenn hæla þessu á allar lundir.
Flestir áhorfendur standa á efsta þil-
farinu, því að þaðan sjá þeir yfir bæði
kerin. Kringlótta kerið er 3,3 m. á dýpt,
en hitt 5,4 m. Ofan af þilfarinu sér maður
stórar skjaldbökur og hvali, og það grípur
mann áköf löngun að komast niður að sjá
meira.
Maður gægist út um kýraugað, en
hrekkur ósjálfrátt frá, því að höfrungur
glápir glottandi á mann. Höfrungarnir
tveir, móðir og barn, eru gimsteinar lagar-
dýrabúrsins. Þeir draga að sér óskipta at-
hygli áhorfenda og þeim virðist vera það
ljóst.
Móðir og dóttir eru að kalla óaðskiljan-
legar. Þær leika sér um allt eins og kátir
krakkar. Þegar þær eru nokkurn veginn
kyrrar, hallar dóttirin höfðinu upp að höfði
móðurinnar.
Það er eins og þær séu alltaf hlæjandi
og njóti þess að vera til sýnis. Móðirin
vegur 400 kg. og dóttirin 150. Dóttirin
lætur móðurina oftast mata sig, en stund-
um stingur hún sér til botns, hrifsar fisk
út úr höndum kafarans og fer í eltingar-
leik við skjaldbökuna, þar til móðirin sækir
hana.
Síðan þjóta þær upp á yfirborðið með
miklum bægslagangi og blása frá sér lofti
í gegnum nasirnar. Sekúndu síðar taka þær
að leika sér á ný.
Tveir sverðfiskar renna fram hjá glugg-
anum, sem ég stend við. 1 kjölfar þeirra
sigla aðrir fiskar, sem þrífa matarleifar,
sem þeir fleygja frá sér.
Niðri á botninum stendur kafari í bað-
fötum og með hjálm á höfði. Hann heitir
Bill Zeiler og hreinsar glugga lagardýra-
búrsins að innan. FÍestum fiskunum er vel
við hann. Zeiler segir, að stór sverðfiskur
hafi einu sinni hallað sér upp að honum
og steinsofnað. Nýlega varð hann að berja
skjaldböku, sem ágirndist hann og ætlaði
að bíta í öxlina á honum.
Einu sinni meiddi stór fiskur hann illi-
lega í annað hnéð. Hann telur það aðeins
smámuni, þegar krabbarnir bíta hann í
tærnar.
Zeiler tekur þessu öllu með ró.
Hann er ekki minnstu vitund hræddur
við sjávardýrin, ekki einu sinni við hina
geysistóru hákarla. Þeir eru heldur aldrei
nærgöngulir við hann.
Nú sé ég í gegnum kýraugað haus með
mjóu trýni og hvössum tönnum. Það er
hákarl. Fiskur einn kemur syndandi, sér
hákarlinn, sem liggur kyrr, og snýr á burt
sem skjótast.
I botninum eru kóralrif og gamalt skips-
flak og á milli þeirra svífa fallegar
marglyttur. Hundruð smokkfiska liggja
niðri við botninn.
Á næstneðstu hæðinni er hægindastóll,
sem maður getur setið í fyrir framan stór-
an glugga og horft á dýralífið. Sessunaut-
ur minn sagðist hafa séð stóran humar
ráðast á fisk og flá hann.
Lagardýrabúr eru paradís fyrir ljós-
myndara. Þeir geta tekið eins margar
myndir og þeir vilja, og það er sama, hvert
þeir snúa sér, alls staðar er eitthvað til
að taka mynd af.
3000 dýr og fiskar synda um lagardýra-
búrin eins og hafið. .
I kringum lagardýrabúrið er að rísa stór
bær, sem heitir, Marineland. Þar er veit-
ingahús, bílastöð og skipalægi.
Dýrin myndu fljótlega deyja í lagar-
dýrabúrinu, ef umsjónarmennimir sæju
þeim ekki fyrir fæðu. Til þess hafa þeir 16
m. langan kútter og þrjá árabáta. Kútter-
inn heitir ,,Marsvínið“. Skipstjórinn heit-
ir Eugene Williams, faðir hans vár skip-
stjóri skipsins, sem hinn þekkti rithöfund-
ur, Zane Grey, fór á í veiði-rannsóknar-
ferðir sínar um Kyrrahafið, og Williams
hefir, eins og faðir hans, sérstaka hæfi-
leika til að „finna fisk“. ,,Marsvíninu“ er
Kafari að gefa dýrunum. Þetta er skemmtilegt,
en hættulegt starf.