Vikan


Vikan - 16.05.1940, Blaðsíða 5

Vikan - 16.05.1940, Blaðsíða 5
VIKAN, nr. 20, 1940 5 Jack London fer að skoða heiminn — og kemur aftur heim til að fara í prælavinnu — og- verður pá ástfanginn í fyrsta skipti. Þriðja grein Irving Stone Skömmu eftir að Jack London lenti í sjávarháskanum, fór hann í ránsferð með „Nelson unga“. En á heimleið- inni kom einn umsjónarmaður ríkisins til þeirra og sagði þeim að hætta þessum ránsferðum, en hjálpa sér heldur. Þá var fullt af kínverskum rækjuþjófum og grísk- um laxþjófum í San Franciscóflóanum. Þegar þessir menn komust undir manna- hendur voru þeir látnir í hegningarvinnu, en fyrir hana fengu umsjónarmennirnir borgað. Jack gekk strax að því að hjálpa til við að hafa hendur í hári þjófanna. Fyrsta verk hans var að glíma við kín- versku rækjuþjófana, sem lögðu þétt net alls staðar, sem því varð við komið. Jack, „Nelson ungi“ og f jórir aðrir lögðu af stað frá Oakland á „Hreindýrinu" og smábáti þegar rökkva tók og létu sig reka yfir flóann. Rækjuskipin lágu með löngu milli- bili og mynduðu hálfmána. Net lágu frá hverju skipi, en Kínverjarnir sváfu niðri í Jack sem háseti á „Sophie Sutherland“. „Þrír röskir strákar“, Jack, Svíinn Victor og Norðmaðurinn Axel róa inn að Bonin-eyjunni. Þó að þeir væru þar um kyrrt í tíu daga komust þeir aldrei lengra en í veitingahúsin. káetu. Jack var skipað að setja „Nelson unga“ og mann að nafni George um borð í sitt hvort skipið og fara með bát sinn að þriðja skipinu. En skyndilega fylltust þil- förin af hálfnöktum Kínverjum. Jack stýrði „Hreindýrinu" með fram næsta skipi, svo að George gæti stokkið um borð. Síðan lét hann bátinn reka, en rakst þá svo harka- lega á annan bát, að stýrin brotnuðu. Kín- verji einn með gulan hálsklút rak upp óskaplegt öskur og setti haka niður í stafn- inn á „Hreindýrinu“ til að stía bátunum í sundur. Jack var hinn rólegasti, en þegar hann sá sér fært, stökk hann um borð í skipið og batt bátinn sinn við það. Nú stóð hann aleinn og vopnlaus gegnt fimm Kínverjum með langa hnífa í beltum sínum. Þeir gengu til móts við hann, en hann stakk hendinni í rassvasann, og þeir hopuðu á hæl. Hann skipaði þeim því næst að létta akkerum, en þegar þeir neituðu að hlýða skipuninni, gerði hann það sjálfur og neyddi Kínverjana til að fara um borð í „Hreindýrið". Hendina tók hann ekki upp úr tómum rassvasanum. Síðan sigldi hann báti sínum að skipinu, þar sem hann hafði skilið George eftir. Hann hélt Kínverjun- um þar í skef jum með því að miða á þá skammbyssu. En nú datt Kínverjanum með gula háls- klútinn í hug að þreifa á rassvasa Jacks, og þegar hann fann, að þar var engin skammbyssa, æsti hann félaga sína svo upp, að það munaði engu, að þeir réðust á umsjónarmennina og fleygðu þeim fyrir borð. George varð hræddur, þó að hann hefði skammbyssu og heimtaði, að Jack léti Kínverjana á land, en því neitaði hann. Þá miðaði George á hann og sagði: „Stýrðu strax í land.“ Þó að miðað væri á hann, og Kínverjarn- ir væru viðbúnir með hnífa sína, hugsaði hann um, hve skammarlegt væri að láta “1 Höfnin í San Francisco, þegar Jack var þar umsjónarmaður.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.