Vikan


Vikan - 16.05.1940, Blaðsíða 11

Vikan - 16.05.1940, Blaðsíða 11
VIKAN, nr. 20, 1940 11 ENDURMINNINGAR UM FERÐALÖG YFIR SPRENGISAND. Framh. af bls. 4. 100 kindur. Bárðdælingar gerðu svo út 5 menn til að leita að fénu, sem vantaði, og komu þeir aftur eftir viku leit með 30 kindur. Holtamennirnir komu nú fénu, sem eftir var, fyrir í fóður í Bárðardalnum, og lögðu síðan 4 þeirra af stað suður yfir Sprengisand. Þegar þeir voru komnir miðja vega úr. byggð fram að sandi, urðu þeir að fara skörina meðfram fljótinu (Skjálf- andafljóti) vegna ófærðar, en þá tókst svo slysalega til, að þeir misstu kofortahest fram af skörinni, og blotnaði farangur þeirra mjög, auk þess, sem þeir urðu fyrir hrakningi við þetta. Sneri ein þeirra þá aftur, en þrír héldu áfram og komust heilu og höldnu suður. Nú batnaði tíðin og lögðu hinir tveir, sem eftir voru þá af stað og náðu um síðir heim. Munu þeir hafa farið byggðir. Þeir hétu Þorsteinn Runólfsson og Sigurður Guðbrandsson. Nöfn hinna veit ég ekki, nema einn þeirra var Magnús frá Ketilsstöðum. Faðir minn fylgir f járkláðalæknunum suður yfir Sprengisand. Einhver ævintýralegasta ferðin, sem faðir minn fór sem fylgdarmaður var ferð sú, þegar hann fylgdi norska fjárkláða- lækninum, Serning( ?), suður yfir Sprengi- sand. Mun það hafa verið haustið 1858. 1 fylgd með norska dýralækninum var Teitur Finnbogason, sem var fyrsti dýra- læknir hér á landi. Var hann túlkur hans og aðstoðarmaður. Þegar þeir lögðu á Sprengisand var veður skuggalegt, og illt að rata. (Þá voru engar vörður). Öldurnar eru hver annarri líkar og vont að þekkja þær í sundur. Sá norski fór að verða óþolinmóður, og hugði, að þeir væru farnir að villast. í farangri þeirra var exi, sem átti að nota til að laga til undir tjaldið. Þrífur hann nú exina og segir: að hún skuli verða sett í höfuð fylgdarmannsins, ef hann rati ekki. Faðir minn bað Teit að segja honum, að hann gæti farið með hann þá leið, að hann hefði ekki frá tíðindum að segja, og eftir það varð hann mjúkur á manninn. Er þeir komu að Fjórðungakvísl, sem er sunnar- lega á sandinum, og er venjulega milli hnés og kviðar á hestum, varð sá norski ragur við að leggja út í. Faðir minn fór þá yfir aftur, og rak hest hans út í kvísl- ina, og gekk þá allt vel. Þeir fóru svo í Eyvindarver, sem er austan við Þjórsá; verður þá að fara yfir ána í einu lagi á Sóleyjarhöfðavaði. Faðir minn bjóst við, að hún væri djúp, og það yrði vont, að koma þeim norska út yfir; honum hugs- aðist þá að viðhafa svolítið klókindabragð. Þegar skammt var að vaðinu fóru þeir af baki til að lofa hestunum að hvíla sig svo- lítið áður en lagt væri út í. Ekki sást til vaðsins, þar sem þeir áðu, því að hæð bar á milli. Faðir minn sagðist ætla að fara og athuga vaðið, en þeir skyldu bíða á með- an. Reið hann síðan út yfir ána, og var hún í taglmark. Hann var í vaðstígvélum, og fór hann bæði úr þeim og sokkunum, áður en han reyndi ána, og þegar hann kom aftur til félaganna og sagði þeim, að hann væri búinn að reyna ána, varð sá norski rólegur, af því að ekki hafði farið upp á stígvél fylgdarmannsins. Samt samdist nú svo, að betra mundi að binda fyrir augun, því að skeð gæti, að hann sundlaði. Einnig var brugðið bandi um mitti honum; létu þeir Teitur hann svo ríða á milli sín og héldu sinn hvoru megin í bandið, og komst allt slysalaust yfir ána. Þegar búið var að leysa öryggisverjurnar af lækninum varð hann mjög hrifinn, og sagðist þakka guði og fylgdarmanninum fyrir, að hann hefði komizt lifandi yfir ána. Eftir þetta gekk ferðin vel, enda var þá stutt til byggða. Faðir minn flytur búferlum að Haga. Haustið 1869 hafði faðir minn afráðið að flytja búferlum að Haga í Gnúpverja- hreppi. Þá um haustið rak hann 100 ær suður yfir Sprengisand, og kom þeim fyrir hjá tilvonandi nágrönnum sínum til um- hirðu um veturinn. Eitthvað átti hann þar af heyi, því að Erlendur vinnumaður hans hafði verið eitthvað af sumrinu syðra við að heyja. Faðir minn hafði þá tvo vinnumenn, annar var Erlendur Björnsson, er síðast bjó í Gíslholti í Holtahrepp, en hinn Jón Guðnason, faðir Ásgríms málara og þeirra systkina. Vinnumennirnir réru einhvers staðar syðra á vetrarvertíðinni, og fóru svo ekki norður aftur, en þeir voru ekki ráðnir hjá föður mínum nema til vorsins. Jón var þó eitthvað um vorið í Haga; ég man, að hann var búinn að hlaða f járhús- tóft, þegar við komum suður. Mér er það í barns minni, þegar verið var að búa sig af stað í þetta mikla ferða- lag. Það voru smíðuð kofort undir sumt af flutningnum, og allt var tínt saman, sem hægt var að fara með og bundið í klifjar á hesta. Það var lagt af stað í byrjun júlí- mánaðar. Voru 17 manns á vegum föður míns, auk þess voru samferða okkur hjón með 2 börn. Hét maðurinn Páll. Átti hann skyldfólk suður í Mosfellssveit, og var að flytja þangað. (Þau höfðu tjald út af fyrir sig). Skal ég svo telja fólk föður míns: Hjónin: Ásmundur Benediktsson og Sigur- laug Jónsdóttir, og 6 börn, er þau áttu, það elzta 16 ára, en það yngsta 3 ára, og Jón Davíðsson, fóstri móður minnar, 73 ára. — 2 vinnumenn. Björn Guðmundsson (faðir Ingólfs1 heitins í Fjósatungu) og Jóhann Eiríksson, móðurbróðir Klemensar fyrrver- andi ráðherra. Kona hans Björg og þeirra sonur Illugi, 12 ára. — 2 vinnukonur, Ingibjörg frá Fornastöðum (móðir Ing- 1 Ingólfur fæddist í Haga 1874. Var faðir hans þá lausamaður. Hann drukknaði suður í Njarðvíkum 1878. Jónas Jónsson segir í eftirmæl- um eftir Ingólf, að faðir hans hafi drukknað í Þorlákshöfn. Það er ekki rétt. Mun Björn aldrei til Þorlákshafnar hafa komið. — Á. Á. ólfs) og Halldóra Halldórsdóttir. Svo 2 fylgdarmenn til þess að fara með hestana norður, sem lánaðir voru til fararinnar. Reiðhestar voru 17 og 8 hestar með áburði. Auk þess hafði Páll 4 hesta, svo að alls voru hestarnir 29. Það var búið um mig í kassa (ég var þá 7 ára) og sömuleiðis systur mína, sem var 6 ára. Vorum við svo sett á klakka hvort á móti öðru, og þannig ferðuðumst við fyrsta áfangann. En okkur þótti leiðin- íegt að vera í kössunum, og báðum um að mega ríða laus eins og hitt fólkið, og var látið eftir okkur að breyta til. Reið ég svo einn í hnakk, en systir mín var bundin í söðul. Fyrsta daginn var farið á fremsta bæ í dalnum, Mýri, annan daginn í Kiðagil og þriðja daginn í Arnarfell, eftir 20 klukkustunda ferð yfir sandinn. Man ég, að hestarnir voru orðnir svangir, þegar í Arnarfell kom. Þar var verið dag um kyrrt til að hvíla hestana. Var svo farið þaðan í þremur áföngum til byggða. Komum við að Haga eftir viku ferðalag, og hafði allt gengið slysalaust. Húsakynni í Haga voru mjög léleg; var baðstofan þó lökust, því að hún var kom- in að því að detta. Var strax hafizt handa með að rífa hana, og var hún byggð upp að nýju fyrir slátt. Fer ég svo ekki út í það að lýsa fleiru í Haga, því að tilgangur þessarar frásögu er einungis sá að skýra frá ferðalögum yfir Sprengisand. Hin tíðu ferðalög föður míns yfir Sprengisand komu til af því, að útlend- ingar lögðu þá oft leið sína þarna milli byggða, en það var ekki völ á jafn kunn- ugum manni til að fylgja þeim. Fór hann þá venjulega einn til baka, og var þá hátt á þriðja dag, en norður fór það eftir því, hvað útlendingarnir voru duglegir að ferð- ast. Venjulega var hann 12 klukkustund- ir yfir sandinn; sumir hafa farið það á skemmri tíma. En faðir minn var ekki reiðfantur, þó að hann hefði nóga hesta. Þjórsá var stundum djúp, en alltaf gekk samt slysalaust i þessum ferðum. Fyrsta norðurferðin mín. Ég fór norður vorið 1885 með föður mínum. Voru þau tildrög til þeirrar ferð- ar, að Coghill hestakaupmaður, sem marg- ir þekktu, hafði beðið föður minn að koma norður á Akureyri, þegar 12 vikur væru af sumri og fylgja sér skemmstu leið suður, því að hann hafði þá boðað markaði fyrir sunnan. Við lögðum af stað 11 vikur af sumri, fórum yfir Þjórsá í byggð, og svo á ferju inn yfir Tungná, sem er skammt fyrir innan byggð í Landsveit. IJr því eru ekki nema smá hvíslar alla leið norður, þegar farið er austan Þjórsár. Þá var mjög illa sprottið, og höfðum við töluvert af heyi meðferðis handa hestunum. Við höfð- um 7 hesta til fararinnar. Fyrsti áfanga- staður okkar var í Hvanngiljum; það er nokkuð innar en Klifshagavellir, sem líka er oft hafður áfangastaður. Nú mátti einu gilda, hvar áð var, því að hvergi voru hag- ar komnir. Þarna strauk frá okkur hryssa

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.