Vikan - 04.07.1940, Blaðsíða 2
2
VIKAN, nr. 27, 1940
Vitid þér það?
1. Hvaða borg í Ameríku er sér-
staklega þekkt vegna bílaiðnað-
arins?
2. Hvað hét kona Sókratesar?
3. Hvaða borg hefir verið kölluð
borgin eilífa?
4. Hvenær fann Eiríkur rauði
Grænland ?
5. Er leikkonan Claudette Colbert
amerísk ?
6. Hvað er Synodus? k
7. Hvaða heimsfrægt tónskáld var'l
heyrnarlaust, þegar það samdi
síðustu verk sín?
8. Hvað hét bær Eiríks rauða á
Grænlandi ?
9. Hvar er fræg torfkirkia á ís-
landi ?
10. Hverrar þjóðar var Hamlet, sem
Shakespeare samde leikrit um?
Sjá svör á bls. 15.
Bjarnargreiði.
Alhr munu kannast við orðatiltækið, að
gera einhverjum bjarnargreiða, en færri
munu vita uppruna þess. Skýringuna er
að finna í einu af þekktustu ævintýrum
Lafontaine. Hann segir þar frá tömdum
bimi, sem ætlaði að reka burtu flugu af
nefi húsbónda síns, sem var sofandi. Hann
tók stóran stein og kastaði honum í flug-
una og hugðist að fæla hana burtu með því,
sem hann og gerði, en um leið braut hann
höfuðkúpu húsbónda síns, svo að greiðinn
mátti því teljast vafasamur.
*
— Hvað á ég að gera til að fá manninn
minn til þess að vera heima á kvöldin?
— Fara sjálf út!
Bóndi í Texas var sannfærður um það,
að olía væri í landareign sinni og því var
farið að bora þar. Fyrst í stað var árang-
urinn enginn, en dag nokkurn, þegar búið
var að bora ca. 1300 metra niður, gaus upp
geysimikil olíusúla og áður en lokum var
komið fyrir tók að rigna beinum, sem bor-
izt höfðu upp með olíunni. Vísindamenn,
sem rannsökuðu málið, komust að þeirri
niðurstöðu, að bein þessi væru úr risaeðl-
um og þeir héldu því fram, að borinn hefði
lent á tíu milljón ára gömlum ,,grafreit“
þessara risaeðla.
1 gamla daga litu amerískir nautgripa-
hirðar svo niður á fjármenn, að þeir síð-
astnefndu settu á sig grímur, þegar þeir
ráku féð í gegnum bæina. En í sumum
héruðum gátu nautgripaeigendur fengið
lög samþykkt, sem bönnuðu fjármönnum
að ganga með grímu. Og sagt er, að þessi
GóSfmottur
Gólfdúlcar
Linoleum
Ferðatöskur
um brunatryggingu á vörum.
Heiðraðir viðskiptamenn vorir eru beðnir að athuga,
að vér tryggjum ekki vörur þeirra í vörugeymsluhúsum
vorum gegn eldsvoða né öðrum tjónum, sem þær kunna
að verða fyrir, meðan þær liggja hjá oss, — nema þess sé
sérstaklega óskað í hverju einstöku tilfehi. Vörur, sem
liggja hjá oss, eru þannig á ábyrgð eigenda og er því áríð-
andi að þeir útvegi sér sjálfir brunatryggingu á þeim,
svo og aðrar tryggingar, sem þeir telja nauðsynlegar.
Sama máli gegnir um vörur liggjandi hjá afgreiðslu-
mönnum vorum um land allt.
Reykjavík 25. júní 1940.
H.f. Eimskipafélag íslands.
<iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii*iiiiiiiiiiiiiin,»,,,,,,ij5,
I Efni blaðsins, m. a.:
§ i
| Erum við Islendingar af Benjamíns- |
[ ættkvísl? i
Eftir séra Guðmund Einarsson. i
Í Jack London fellur við borgarstjóra- i
I kosningu, en vinnur nýja sigra á rit- 1
= höfundarbrautinni.
Eftir Irving Stone.
Í Hólaför bókiðnaðarmanna.
§ Skyrtuhnappar, smásaga.
Í Eftir Adele Leeuw.
Í Ferðir yfir Sprengisand.
Eftir Ásgeir Ásmundsson.
Í Maðurinn, sem keypti London,
i framhaldssaga. i
Eftir Edgar Wallace.
I Þáttur rnn Ólaf Erlendsson.
Í Sigga litla og ÓIi og Addi í Afríku. i
Í Skrítlusíða. — Heimilið. — Kross- |
| gáta — o. fl.
^<rill■l■■llll■ll■•lll•ll■l■l•l■■■••••■■■■•■llllllll■■■llllllllllll■llllll■lllll■ll■■■ll•■l•■•■l•■■mV^
gömlu lög séu enn í gildi í bænum Trenton
í New Jersey.
Enskir öl-prófarar, sem fram á síðustu
tíma voru við líði í ýmsum smábæjum þar
í landi, notuðu einkennilega en hagkvæma
aðferð við að prófa sykurinnihald ölsins.
Þeir helltu dálitlu af öli á tréstól og settust
síðan á hann. Eftir nokkrar mínútur stóðu
þeir á fætur. Ef stóllinn var fastur við
leðursetuna á buxunum, þá var ölið gott,
en ef hann festist ekki var ölið of þunnt
og ónothæft.
Vi k a n
HEIMILISBLAÐ
Ritstjóri: Kirkjustræti 4. Pósthólf 365.
Afgreiðsla og innheimta: Austurstræti 17.
Sími 5004. Pósthólf 166.
Verð: kr. 1,75 á mánuði, 0,45 í lausasölu.
Steindórsprent h.f.
tíTGEFANDI: VIKAN H.F., REYKJAVÍK. — Ritstjóri: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4. Pósthólf 365. — Ábyrgöarmaður:
Steindór Gunnarsson. — Framkvæmdarstjóri: Engilbert Hafberg, Austurstræti 17. Sími 5004. Pósthólf 166.