Vikan - 04.07.1940, Page 10
10
VIKAN, nr. 27, 1940
Heimilið
Matseðillinn.
Aspargessúpa.
Séu dósastilkamir notaðir, þá skerið grænu
höfðuðin af og leggið þau til hliðar. Skerið stilk-
ana í smábita og setjið í pottinn, með leginum,
sem í dósinni er, ásamt kjötsoðinu, og sjóðið. —
Skerið einn lauk í þunnar sneiðar, brúnið á pönnu
með smjöri, í tíu mínútur. Varist að láta laukinn
harðna. Látið hann út í súpuna og sjóðið 5 minút-
um lengur og hrærið stöðugt í. Bætið við hveiti-
jafningi og sjóðið enn í 5 mínútur. Síið síðan,
setjið á eldinn aftur og bætið við dálitlu af mjólk
eða rjóma og hinum áður fráteknu grænu höf-
uðum.
Súpuna má bæta með því að þeyta 3 eggja-
rauður og dálítið af rjóma í súputarínuna, og sé
súpunni hellt yfir með gætni og hrært vel í á
meðan.
Lambakótelettur.
Kótelettumar fáið þér útskomar í hvaða kjöt-
búð sem er. Berjið þær lítið eitt með buffhamri
og losið um kjötið frá rifbeininu, með vel beittum
hnif. Stráið salti og pipar á þær beggja megin,
dýfið þeim svo í hrært egg og brauðmylsnu. Setjið
síðan á pönnuna, söm þér áður emð búnar að
brúna feitina á. Þegar þær em vel þéttar, em
þær búnar. Varist að ofsteikja þær, — þá verða
þær harðar; — y2 eða % steiktar þykir mörgum
beztar og ljúffengastar. — Annars hættir flest-
um við að ofsteikja flest allt kjötmeti.
Sósuna má útbúa á vanalegan hátt, eða hafa
brætt smjör með þeim.
Húsráð.
Ef mjólkin á ekki að súrna, má aldrei geyma
hana í flöskum eða könnum. Bezt er að hella
henni í breiða, gmnna skál. Sé það einhverra
hluta vegna ekki hægt, má geyma mjólkurflösk-
umar í sagi eða í moðkassanum, svo að mjólkin
súmi síður. llát, sem er erfitt að hreinsa, ætti
aldrei að nota undir mjólk; ein aðalástæðan fyrir
því að mjólkin súmar, er sú, að ílátin em ekki
nógu vel hreinsuð.
Það er oft erfitt að sníða mjög þunn efni, t. d.
Chiffon eða tyll. En það verður lafhægt, ef efnið
er fest á þunnan pappir með títuprjónum.
Til þess að losna við kakerlakka úr matar-
skápum og skúffum má ýra benzíni yfir fjalirnar.
Benzínið drepur bæði dýrin og eggin. (Gætið yðar
fyrir eldhættu!) Borax drepur einnig kakerlakka,
ef því er stráð um gólfið og rifumar, sem þeir
hafast við í, daglega í 2—3 vikur.
Gamlir, harðir málningarblettir í fötum hverfa
algerlega, ef þeir era nuddaðir úr blöndu af terp-
intínu og ammoníaki, og síðan þvegnir úr sterk-
um sápulegi.
Fiskbein, sem festast í hálsinum, má oft losa
með því, að borða þurra brauðskorpu eða hrátt
egg■
Skósverta og ofnsverta verður bæði drýgri og
betri, ef hún er þynnt með ofurlitlu af ediki.
Dómarinn: Á skýrslu yðar, Hósías Bene-
diktsson, sé ég að þér hafði 35 sinnum
áður verið dæmdur fyrir drykkjuskap.
Hósías: Enginn er fullkominn, herra
dómari.
Fyrirlesarinn: Þetta eru ekki myndir
eftir mig, háttvirtu tilheyrendur. Það eru
myndir eftir mann, sem veit, hvað hann
er að gera.
Forðist slysin.
ÞekkiO þér Mrn ai eilurloilioii kolsjrlioji?
Kolsýrlingsloft (CO) er baneitruð loft-
tegund, sem myndast við ófullkomna
brennslu, t. d. í kolaofnum og eldavélum,
sem slæm loftrás er í, einnig þegar lampar
reykja.
Loftið úr útblástursrörum bifreiða er
þrungið kolsýrlingi og því baneitrað. Bif-
reiðar mega þess vegna aldrei vera í gangi
inni í lokaðri bílgeymslu eða verkstæði, því
að þá innilokast loftið og veldur snöggum
dauðdaga hjá þeim mönnum, sem þar eru.
Jafnvel þótt bifreiðin sé á ferð, getur kol-
sýrlingsloftið orðið ökumanninum eða far-
þegunum hættuleg, ef vélahúsið eða gólf
bifreiðarinnar er óþétt og útblástursrörið
bilað eða stíflað.
I vélahúsum báta og skipa getur sama
hætta verið á ferðum.
Kolsýrlingurinn veldur brátt miklu mátt-
leysi hjá þeim, sem anda honum að sér,
og áður en varir falla þeir í öngvit og eru
dauðans matur, ef enginn kemur þeim til
hjálpar innan skamms. Þegar komið er að
mönnum í slíku ástandi, skulu þeir bornir
út í hreint loft og lífgunartilraunir gerðar
á þeim samstundis.
Allmörg slys hafa orðið hér á landi af
völdum kolsýrlings, einkum í sambandi við
kolaofna, olíulampa, bifreiðar og dráttar-
vélar.
Flest þessara slysa hafa orsakast af því,
að þeir, sem í hlut áttu, höfðu ekki gert
sér grein fyrir hættunni — ekki þekkt kol-
sýrlinginn. ' J. O. J.