Vikan - 04.07.1940, Side 15
VIKAN, nr. 27, 1940
15
Jill dró andan djúpt. — Ef ég má nú
loks komast að, þá skal ég skýra þetta allt
saman, sagði hún ákveðin. Og svo byrjaði
hún.
Þegar hún hafði lokið frásögn sinni,
stakk lögregluþjónninn vasabókinni í vas-
ann, húsvörðurinn varpaði öndinni léttara
og Peter skellihló. Doreen leit með kulda-
legri fyrirlitningu á Chris um leið og hún
skellti á eftir sér hurðinni.
Chris varð eftir, og Jill sagði vandræða-
lega: — Jæja, svo þér komuð til þess að
líta á teikningar hjá mér?
— Nei, sagði hann. — Ég kom til þess
að bjóða yður til miðdegisverðar með mér.
Þér neyðist til að segja já, því að ég er
svo þrár, að ég fer ekki héðan fyrr en ég
hefi fengið samþykki yðar. Ég þarf ýmis-
legt að segja yður.
— Þér hafið víst skipt um skoðun á
mér?
— Já, sagði hann, — og ég get sagt
yður nákvæmlega, hvenær það var. Hann
gekk einu skrefi nær henni. — Á ég að
endurtaka fyrir yður það, sem kom mér
til að skipta um skoðun?
Jill hörfaði aftur á bak. — Ne-nei, ekki
núna, flýtti hún sér að segja.
— Þá bíðum við betri tíma, sagði hann
auðsveipur. — En setjið nú á yður hattinn,
svo að við getum komist af stað.
Honum virtist vera full alvara á að
hreyfa sig ekki, fyrr en hún hefði sagt já.
Þessir karlmenn! hugsaði hún í annað sinn
þennan dag, en í þetta sinn á svolítið ann-
an hátt.
Jill leit á konumyndina á teikniborðinu.
Hún fann það á sér, að hún mundi aldrei
ljúka við hana. Og það undarlega var, að
henni var alveg sama.
JACK LONDON. Frh. af bls. 6.
að kenna Jack að forðast að skrifa skamm-
arbréf, en það gat hann aldrei lært.
Auk alls annars, sem hann skrifaði,
unnu þau Anna Strunsky að „Kempton-
Wace bréfunum“. Jack, sem hafði byggt
hjónaband sitt og Bessiear á skynsemis-
grundvelli, eins og hann oft kgllaði það,
skrifaði: — Líffræðilega séð er hjónaband-
ið stofnun, sem er nauðsynleg til viðhalds
tegundanna. Hin rómantíska ást er eins-
konar uppbót, sem maðurinn illu heilh
hefir fært inn í hina eðlilegu þróun. Ef
aldrei hefðu verið til neinar rómantískar
ástarsögur, ástarkvæði, vísur eða æfintýri,
mundi maður ekki geta elskað eins og
hann gerir nú. Anna Strunsky hélt því
fram, að gullroðinn kvöldhiminn, hlýtt
handtak, tár hinna þöglu sorga væri þýð-
ingarmeira en allt, sem búið hefði verið
til og fundið upp síðan fyrsti sáttmálinn
var gerður á milli karls og konu. Það er
ekki hægt að skýra blómgun lífsins, töfra
þess og bros, sem lætur sólskinið streyma
inn í hjörtu okkar, og segir okkur, að
vonir okkar sé ekki til einskis.
I lok febrúar voru þau búin að skrifa
50,000 orð, og Jack var sannfærður um,
að þetta mundi verða bók, sem seldist vel.
Til þess að flýta fyrir vinnunni, bauð hann
Önnu að koma og dvelja á heimili sínu.
Tveim árum síðar sagði hún við nokkra
blaðamenn, sem leituðu viðtals við hana:
— Ég fékk bréf frá herra London, þar
sem hann bauð mér að koma til Piedmont
að lesa yfir handritið. Konan hans og móð-
ir hans buðu mér einnig. Fyrstu dagana,
sem ég var þar, var frú London mjög vin-
gjarnleg og hafði mikinn áhuga fyrir vinnu
okkar, en eftir fimm daga var mér ljóst,
að hún gat ekki þolað mig.
Árið 1937 sagði Bessie London mér, að
hún hefði komið að ungfrú Strunsky, þar
sem hún sat í kjöltu Jacks í vinnustofu
hans. Þau hölluðu þétt saman vöngunum
um leið og þau lutu yfir handritið.
Anna Strunsky skrifar ennfremur: —
Frú London gerði ekkert sérstakt, til þess
að láta mig finna, að ég væri óvelkomin,
en af ýmsum smáatvikum komst ég að
þeirri niðurstöðu, að bezt mundi fyrir mig
að fara. Ég fór mjög á móti vilja beggja
hjónanna. Kveðjur okkar frú London voru
eins og á milli tveggja kunningja, sem
falla hvor öðrum vel í geð. Auk þess er
herra London ekki einn þeirra manna,
sem sýna öðrum konum ástleitni á sínu
eigin heimili. Hann var mjög gætinn í
framkomu við mig, og það hefir hann
alltaf verið. Að því er mér bezt sýndist,
þá var hann mjög ástfanginn af konunni
sinni.
Vængjatök flugunnar.
Hvað eru vængjatök flugunnar mörg á
mínútu? Nákvæmar rannsóknir hafa sýnt,
að þau eru æði misjöfn, eftir því, hver
flugutegundin er. Hin illræmda kálfluga
tekur aðeins 540 vængjatök á mínútu. Geit-
ungurinn tekur 6600 tök, hunangsflugan
11.400, en venjuleg húsafluga 19.800!
1 Rússlandi 1914.
1 Rússlandi var svo mikil hrifning yfir
því árið 1914, að Rússar færu í stríðið gegn
Þjóðverjum, að hópur manna í St. Péturs-
borg safnaði hálfri milljón króna í verð-
laun handa þeim rússneska hermanni, sem
fyrstur færi inn í Berlín.
Flughraði fuglanna.
Fuglarnir geta náð miklum hraða á
flugi sínu. Bréfdúfa getur flogið 56 til 69
kílómetra á klukkustund og menn vita til
að svala hefir flogið 207 kílómetra á
klukkustund.
Svör við spurningum á bls. 2:
1. Detroit.
2. Xantippe.
3. Róm.
4. 981 eða 982.
5. Nei, hún er frönsk.
6. Prestastefna.
7. Beethoven.
8. Brattahlíð.
9. Að Víðimýri í Skagafirði.
10. Hann var danskur prins.
45. krossgáta
Vikunnar
Lárétt:
1. Hagsmunamál sjómanna. — 11. Himintungl.
— 12. Skelfiskur. — 13. Grænmeti. — 14. Hvílist.
— 16. Skrautsteinn. — 19. Skyldmenni. — 20.
Stefna. — 21. Þrautseigja. — 22. Tvíræðni. ■— 23.
Leyfist. — 27. Forsetning. — 28. llát. — 29.
Stjórn. — 30. Stytt kvenmannsnafn. — 31. Frum-
efnistákn. — 34. Greinir. — 35. Iðnaðarhráefni.
— 41. Sama sem (alþjóða orð). — 42. Gera klæði.
— 43. Sjóferðir. — 47. Líkamshluti. — 49. Frum-
efnistákn. — 50. Borða. — 51. Fiskveiðar. — 52.
Ber. — 53. Umbúðir. — 56. Takið eftir. — 57.
Verkfæri. — 58. Dalverpi. — 59. Orkugjafi. —
61. Viðumefni. — 65. Hár. — 67. Gagn. 68. Kvik-
indi. — 71. Saurga. — 73. Sár. — 74. Sá, sem aflar
fiskjar.
Lóðrétt:
1. Eyða. — 2. Lofttegund. — 3. Tónn. — 4.
Straumur. — 5. Frumefnistákn. — 6. Keyr. —
7. Fugl. — 8. Rennu. — 9. Stefna. — 10. Læri.
— 11. Þeir, sem sækja sjó. — 15. Stéttarsamtök.
— 17. Atviksorð. — 18. Búfjárafurðir. — 19. For-
faðir. — 24. Stytt mannsnafn. — 25. Húsgagn. —
26. Matar. — 27. Mannsnafn. ■— 32. Svolgraði. —
33. Gleði. -— 35. Félagssamtök. — 36. Guði. —
37. = 1. lóðrétt. — 38. Beygingarending (skálda-
leyfi). — 39. Jaka. — 40. A húsi (fornt). — 44.
Kasta vatni (barnamál). — 45. Hreinsar. — 46.
Hreinlætisvörur. — 48. Krabbadýr. — 49. Sár. —
54. Húsdýr. — 55. Mælir. — 57. Nuddi. — 60.
Hyggju. — 62. Hól. — 63. Sendiboði. — 64.
Snæddu. — 66. Þjáningar. — 68. Byrði. — 70.
Tveir eins. — 71. Forsetning. — 72. Ögn.
Lausn á 44. krossgátu Vikunnar.
Lárétt:
1. Gær. — 3. Forhert. — 9. Kím. — 12. Ör. —
13. Elri. — 14. Fauk. — 16. Do. — 17. Raskað. —
20. Smárar. ■— 22. Mun. — 23. Kró. — 25. I.R.A.
— 26. Fár. — 27. Fossá. — 29. Ima. — 31. Pan.
— 32. Gor. — 33. Tsa! — 35. Arg. — 37. It. —
38. Borðfætur. — 40. I.I. — 41. Harma. — 42.
Karin. — 43. Tröð'. — 45. Sónn. — 46. Girnd. —
49. Eystu. — 51. La. — 53. Risaeðlur. — 54. S.S.
— 55. Lup. — 57. SKF. — 58. Lux. — 59. Hót.
— 60. Kál. — 62. Andir. — 64. S.R.P. — 66. Lát.
— 68. Auð. — 69. Öku. — 71. Sölnar. — 74.
Örendur. — 76. 11. — 77. Arar. — 79. Óðar. —
80. U.U. — 81. Rif. — 82. Afræður. — 83. Ölm.
Lóðrétt:
1. Görn. — 2. Æra. — 3. Flan. — 4. Orð. —•
5. Ri. — 6. Ef. — 7. Ras. — 8. Tumi. — 10. ída.
— 11. Mora. — 13. Ekur. — 15. Kári. — 18.
Smán. — 19. P.R.S. — 21. Rama. — 23. Korða. —•
24. Óstæk. — 26. Fat. — 27. Formennska. — 28.
Ástarylur. — 30. Ari. — 31. Pistill. — 32. Gor.
— 34. Aur. — 36. Girnist. — 38. Baðir. — 39.
Ristir. — 41. Hög. — 43. Nóu. — 47. Ris. — 48.
Dafna. — 49. Eðlið. — 50. Sux. — 52. Auk. — 54.
Sóp. — 56. Páll. — 59. Hmn. — 61. Lána. —
63. Dur. -— 64. Sker. — 65. Æsir. — 67. Tara. —
69. Órar. — 70. Bmm. — 72. öli. — 73. Raf. —
74. Öðu. — 75. Dul. — 78. R.R. — 79. Óð.