Vikan - 24.10.1940, Page 3
VIKAN, nr. 43, 1940
3
Esja heil úr hafil
Sjaldan hafa Islendingar beðið skipakomu með jafnmikilli
eftirvæntingu eins og nú að undanförnu. Enda var mikið
í húfi. Börn og konur og karlar, hálft þriðja hundrað manna,
var á leið heim úr greipum styrjaldarhættunnar.
Esja og hin mjög rómaða skipshöfn hennar hafa lokið þessu
hlutverki sínu með mestu prýði og sá eini skuggi virðist á heim-
komunni, að öllum skyldi ekki hleypt umyrðalaust í land, svo að
móttökur gætu farið fram og þessum löndum mætti fagna á við-
eigandi hátt.
Lengi hefir þessi hópur þráð að komast heim og orðið fyrir
ýmsum vonbrigðum og erfiðleikum í sambandi við það, og lengi
hefir fjöldi fólks beðið með óþreyju eftir ættingjum og vinum.
Það eru rammar taugar, sem draga föðurtúna til.
Gort lávarður heldur liðskönnun á meðal foringjaefna á liðsforingjaskólanum.
„Tígrisdýrið"
Gort lávarður, sem hingað kom á þriðju-
daginn þann 15. þ. m., er eftirlitsmaður
með brezka heimahernum og mun hafa
komið hingað til að líta eftir hjá brezka
setuliðinu hér.
Gort lávarður, eða ,,tigrisdýrið“, eins og
nemendurnir á liðsforingjaskólanum köll-
uðu hann, hefir verið formaður herfor-
ingjaráðsins síðan í desember 1937 og
vakti sú útnefning mikið umtal, því að
mörgum þótti gengið fram hjá sér, en hjá
öðrum vakti það hrifningu. Til dæmis sagði
Ian Hamilton hershöfðingi: „Loksins höf-
um við fengið yfirmann, sem er 100% her-
maður!“ Og jarlinn af Cavan sagði: „Ég
er ekki í minnsta vafa um það, að Gort
lávarður er bezti hermaðurinn, sem til er
í brezka hernum.“ Gort hefir fengið
fjölda heiðursmerkja fyrir hreysti og
hernaðarafrek.
Foringinn og liðs-
foringjaefni hans.
I viðurvist yfirmanna
landhers, flughers og
flota veitir Hitler liðs-
foringjaefnum hinna
þriggja deilda þýzka
hersins áheyrn, íkansl-
arahöllinni. Foringinn
er að tala við hina
verðandi foringja
þýzka hersins.