Vikan - 04.09.1941, Blaðsíða 1
Nr. 36, 4. september, 1941
40 daga matarlausir
í eydimörk Ástralíu
Flugmadurinn Hans Bertram flaug ásamt véla-
manni sínum, Klausmann, til Ástralíu, en þeir
urdu ad naudlenda þar á nord-austurströndinni.
Og hófst nú hörd barátta upp á lif og dauda. —
Þeir höfðu lítið vatn og engan mat, en héldu samt
út í 40 sólarhringa. Stjórnarvöldin voru búin að
gefa upp alla von um að finna þú, og það var aðeins
tilviljun, að þeim var bjargað eftir 53 sólarhringa
frá því að þeir nauðlentu.
UM miðnætti lagði flugvélin „Atlant-
is“ af stað frá eyjunni Timor í
Suðurhöfum. Vélin hafði nægilegt
benzín til 7 '/2 stundar flugs, en mat vannst
ekki tími til að ná í. Flugmaðurinn Hans
Bertram og Klausmann vélamaður áttu að
geta náð ákvörðunarstaðnum, Port Dar-
win í Ástralíu, á fimm stundum.
Næturflugið varð örðugra en búizt
hafði verið við. Sterkur vindur hrakti vél-
ina 150 mílur úr leið og klukkan 6,58, þeg-
ar allt benzín var þrotið, lenti Bertram í
litlum flóa við eyðilega strönd. Flugmenn-
irnir gengu vel frá flugvélinni og fóru í
land.
í byrjun áttuðu þeir sig ekki á, hvað
þeir voru langt úr leið og að ströndin var
óbyggð. Þeir voru aðeins glaðir yfir, að
næturfluginu var lokið. Fyrst af öllu vildi
Klausmann ná í vatn. En hvergi var vatn
að finna. Þá fóru þeir að sjá, hvað aðstaða
þeirra var alvarleg. Ekkert vatn, engir
menn, allt var autt, tómt og þurrt. Sólin
var mjög heit og sjávarloftið jók á þorst-
ann. Þeir urðu að fá vatn! Þeir tóku vatn
af kæli flugvélarinnar, en spýttu því fljót-
lega aftur. Það kvöldaði og þeir gátu ekki
annað gert en lagst til hvildar.
Næsta dag héldu þeir ráðstefnu. Ber-
tram sá ekki aðra lausn en að þeir gengju
meðfram ströndinni, þangað til þeir kæmu
til byggða. Þeir tóku eins lítið með sér og
Framhald á bls. 3.
Þetta er flugmaðurinn
Hans- Bertram, er lenti
i 40 daga ævintýri í
eyðimörk Ástralíu.
Flugvélin „Atlantis" á
einum ,,fæti“ eftir að
búið var að taka ann-
að flothylkið undan og
gera úr þvi seglbát.