Vikan


Vikan - 04.09.1941, Blaðsíða 10

Vikan - 04.09.1941, Blaðsíða 10
10 VIKAN, nr. 36, 1941 Heimilið Meðferð ungbarna. Matseðillinn. Kálfskjöt í karrísósu. 2% kg. kálfskjöt. Vatn. Salt. 50 gr. smjör. 50 gr. hveiti. % 1. kjötsoð. 1 teskeið karrí. Kjötið er þvegið og soðið í salt- vatni, þemgað til það er meyrt. Þá er það tekið upp úr og soðið síað frá. Smjörið er brætt, hveitinu bætt út í og þynnt með kjötsoðinu. Látið sjóða hægt í 5 mínútur. Karríið er hrært út í ofurlitlu soði og bætt út í. Sósan er þá ekki látin sjóða meira. Kjötið er látið á djúpt fat og sós- unni hellt yfir. Soðin hrísgrjón eru sett hringinn í kring utan með fat- inu. Hrísgrjónin eiga að vera köld. Bláberjasúpa. 1 1. bláber. 2 dl. sykur. 40 gr. kartöflumjöl. 2 I. vatn. Berin eru skoluð og sett á elda- vélina í potti með köldu vatni. Þá eru þau soðin, þangað til þau eru svo meyr, að hægt er að sía þau í gegn- um sáld (Dörslag). Súpan er siðan sett aftur á vélina, kartöflumjölið hrært út í vatni og jafningurinn sett- ur út í súpuna. Sykrinum bætt út i. Gott er að sjóða kanelstöng eða börk af sítrónu i súpunni. Súpan er borin fram vel heit með tvíbökum eða brúnwðu brauði. Enginn þekkti barnið. Mynd þessi var samanvöðluð og rifin í hendi ungrar konu, sem fannst nær dauða en lífi i rústum veitinga- húss, er sprengja hafði fallið á, í West End í London. Það seinasta, sem hún sagði, áður en hún dó, var: „Látið manninn minn fá þetta . . . uppi í sveit . . . hér.“ Það tókst ekki að finna eiginmanninn. Köflóttur sumarfrakki. Þetta er léttur sumarfrakki með hálflöngum ermum. Frakkinn er grár, með svörtum röndum, sem eru látnar liggja á eká í hliðarstykkj- unum. Berustykkið, framstykkið, bakstykkið og ermarnar eru með beinum röndum. Breitt belti er saum- að fast í frakkann og nær að saum- unum að framan. Tveir hnappar eru á beltinu að aftan. Frakkinn er fest- ur saman að framan með einum stórum hnapp. Brjóstvasamir eru fóðraðir að innan með hvítu efni. Hvít horn eru höfð ofan á hornum frakkans. Húsráð. Notið sýróp í stað sykurs í svala- drykki. Það sparar sykurinn og sýr- ópið setzt aldrei á botn ílátanna eins og sykurinn gerir oft. Burstið alla mola vel innan úr brauð- ristaranum. Það kemur í veg fyrir, Blönduð fæða, — brjóst og peli. Þegar móðirin hefir ekki nægilega mjólk í brjóstunum að staðaldri eða örðugar heimilisástæður leyfa henni ekki að leggja bamið nógu oft á brjóst (t. d. þegar móðirin þarf að ganga í vinnu utan heimilis), þá get- ur farið vel á því að bamið fái mjólk- urbland meðfram brjóstinu. Móðirin á sem sé ekki þar fyrir að hætta al- veg við að gefa baminu brjóstið; hún á þvert á móti að leggja það á brjóst, þegar hún kemst höndum undir, og þó ekki væri nema á málum, þá er það miklu betra en ekkert, svo hollur er því sopinn úr móðurbrjóstinu; svo er þvi þá gefið bland þess á milli og má haga þessu ýmislega eftir því sem á stendur. Hafi móðirin ónóga mjólk, svo að barnið fái ekki nægju sína, hvernig sem það tottar, er það þó látið sjúga brjóstið meðan það orkar og nær nokkm, en þá gefinn ábætir á eftir (mjólk, hæfilega þynnt með vatni eða seyði). Þegar svona stendur á, verður affarasælast að iáta barnið drekka blandið af barmi eða mata það með skeið; sé því gefið blandið á pela, getur það dregið þann dilk á eftir sér, að baminu þyki fyrir- hafnarminna að fá fylli sína úr pel- anum, og haldi sig því síður að brjóst- inu. Afleiðingin verður þá sú, að móðirin smá-geldist, þegar hún er svona illa sogin, og endirinn verður sá, að bamið fær pelann einan, og er áður skýrt frá því, hvert heilsutjón að þeir skemmi hann og ristaða brauðið verður bragðbetra. Lítill mjúkur bursti er sérstaklega hent- ugur til þessa. fallegum má fægja þau við og við með „peroxide." Takið mjúkan klút, vætið hann með „peroxide" og' nudd- ið sköftin á hnífunum. getur af því hlotist fyrir barnið. Engin móðir má gleyma þeim mikil- væga sannieik, að lítil brjóstamjólk er betri en engin. Sé móðirin fjarver- andi mestan hluta dagsins (í vinnu, önnur stöðug fjarvera er varla for- svaranleg fyrir móður!), þá á hún þó, eins og áður var sagt, að gefa bam- inu stnu brjóstið á morgnana, áður en hún fer að heiman, og svo oft yfir daginn, sem hún getur. Er þá bam- inu gefið blandið á öðrum tímum dagsins, en ætíð með hæfilegu milli- bili. Geti móðirin komið heim um miðjan daginn, gefur hún barninu að sjúga um leið, og þyrfti þá varla að gefa því ábæti nema einu sinni á dag, ef það fengi brjóstið þrisvar yfir dag- inn. Yngri böm þurfa þó fleiri mál- tíðir. Sumum mæðrum hættir við að láta það eftir barninu, að lofa því að sofa við brjóstið alla nóttina i rúm- inu hjá sér, og fá sér þá sopa við og við í hvert skipti, er það losar eitt- hvað svefninn. Þetta er ósiður og til ills fyrir bamið. En „örskammt er öfganna í milli“, og hitt mun vera ekki ótitt, að minnsta kosti, að móð- ir, sem finnur sig hafa oflitla mjólk eða er fjarverandi frá heimilinu allan eða mestallan daginn, hættir alveg að lofa barninu að sjúga sig. Þetta er oft af hugsunarleysi (eða ræktar- leysi!); móðirin gerir sér það ekki nógu Ijóst, að vel getur svo farið, að hún með þessu verði til þess að flýta fyrir baminu sínu. Dav. Sch. Thorsteinsson: Bamið. Bók handa móðurinni. Gólfdúka, sem farnir eru að upp- litast, má bæta, með því að mála þá tvisvar með gólflakki. HEILDSÖLUBIROÐIR: ÁRMI JÓNSSON, HAFNARSTR.5 REYKJflVÍU

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.