Vikan - 04.03.1943, Side 2
2
VIKAN, nr. 9, 1943
Pósturinn
Kæra Víka.
Vilt þú ekki vera svo góð og segja
mér, hvað orðið magister þýðir og
er það islenzkt?
Ein fáfróð.
Svar:
..Magister" er latneskt orð og þýðir
forstöðumaður eða formaður. Á há-
skölamáli þýðir það: meistari. Hér
við háskólann geta menn aðeins orð-
ið „meistarar" í einni námsgrein,
norrænu, hafa þeir þá tekið fulln-
aðarpróf, skrifað „stóra", vísinda-
lega ritgerð. En annarsstaðar geta
menn orðið meistarar í ýmsum náms-
greinum.
Kæra Vika!
Gætir þú gefið okkur upplýsingar
um, hvort kvikmyndaleikarar muni
svara bréfum, sem skrifuð væru til
þeirra og ef svo er, geturðu þá sagt
okkur, hvort það sé nóg að skrifa
Hollyw'ood, án nokkurs annars heim-
ilisfangs? Væntum svars i næsta
blaði. Tvær forvitnar.
Svar: Þið vitið vel, að ekki eru
allir menn eins, þetta gildir einnig
um kvikmyndaleikara. Sumir þeirra
svara bréfunum sjálfir, aðrir láta
einkaritara sína gera það, og enn
aðrir svara þeim alls ekki. Það er
vafasamt, að bréf, sem ekki eru bet-
ur merkt, nái til þeirra. Annað hvort
verður að setja heimilisfang þeirra
eða þá að stíla þau á kvikmyndafé-
lag það, er þeir starfa hjá.
Kæra Vika!
Víst eru góðar lopapeysurnar! En
getur þú gjört. svo vel og sagt mér,
hvort prjónað er úr Iopa annarsstaðar
en á Islandi? Prjónakona.
Svar: Eftir þeim upplýsingum, sem
við höfum fengið, mun svo vera.
Kæra Vika!
Mig langar til að senda þér nokkr-
ar spurningar, sem ég bið þig að
svara í „Póstinum."
1. Hvað eru eftirtaldar myntir
mikið í íslenzkum peningum: Dollar,
cent, sterlingspund, penny?
2. Hve margir menn eru i einni
herdeild og hve margir í einu her-
fylki ?
3. Hvað þýðir enska orðið „Rap-
sody“?
Við myndastyttu Abraham Lincolns.
Mynd þessi er tekin í Washington fyrir framan myndastyttuna af Abraham
Láncoln Bandaríkjaforseta. Var myndin tekin, er forseti Kúbu, Fulgencio
Batista var í heimsókn i Washington og sést hann í miðjunni. Sjá grein á
næstu blaðsíðu.
4. Hvort er réttara að segja he.im-
skaut *eða heimsskaut ?
Fyrirfram þökk. „Hr. L.“
Svar:
1. Dollarinn=: 6,50 kr.; cent = 6,5
eyrir; sterlingspund = 22,26 kr.;
penny = 0,09 kr.
2. Islenzka orðið herdeild er venju-
lega látið ná yfir squads, sections og
platoon. 1 einni squad eru 12 menn
eða færri; í section 20—25 menn og
I platoon eru 40—55 menn. Herfylki
er venjulega notað yfir division og i
henni eru; í riddaraliðs-division um
10.000 manns. 1 nútíma fótgönguliðs-
division eru venjulega 15.000 manns.
3. Með orðinu „Rapsody" er í nú-
tíma tónlist átt við tónverk, sem sett
er saman úr mörgum iögum, oftast
þjóðlögum.
4. 1 orðabók Sigfúsar Blöndal er
orðið heimskaut skrifað með einu s.
Fimmtu spumingunni munum vér
reyna að svara síðar.
Kæra Vika!
Okkur iangar tii þess að leggja
fyrir þig eina spumingu, hvort sé
réttara að segja „í fyrra sumar" eða
,,í hitteðfyrra sumar“, þegar við nú,
í febrúar 1943, erum að tala um
sumarið 1941?
Með fyrirfram þakklæti fyrir svarið.
Nokkrir ósammála.
Svar: Þar sem nú er komið fram
yfir áramót, mun réttara að segja:
í hitteðfyrra sumar.
Vér vorum um daginn spurð um
aldur kvikmyndaleikarans Clark
Gable, en gátum ekki svaraö því,
barst okkur svo þetta bréf og viijum
vér þakka það.
Kæra Vika!
Yður var ekki kimnugur aldur
kvikmyndaleikarans Clark Gable, en
hann er fæddur 1. febrúar 1901. Þann
fróðleik hefi ég úr Picture Show and
Filrn Pictorial 30. jan. 1943.
Yðar vinkona,
Bugga.
P.S. Nú getið þér sagt Bimu það.
Nýjar bœkur
Arbækur reykjavíkur
2. útg. aukln og endurskoðuð. VIII + 422 bls. + 32 heilsiðo-
myndir — Árbækumar skýra frá öUu þvi markverðasta, er
gerzt hefir í Reykjavfk s.l. 150 ár.
TÍU SÖNGLÖG eftir Markús Kristjánsson.
I>etta er heildarútgá-fa af sönglögfum tónskáldsins. — Upp-
lagrið er mjög’ iítið. KaupiÖ því sönglögin frekar » (lag en
á morgun.
TARZAN STERKI.
Þessi óviðjafnanlega drengjabók, með 384 myndum, er uú
komin aftur f bókaverzlanir. Dragið ekki að kaupa Tarzan.
TJpplagið er bráðum þrotið.
h.f. leiftur.
Svar til „Ástlangin“.
Þetta er nú meiri vandaspumingin,
sem þér leggið fyrir oss. Yfirleitt
teljum vér, að ekki sé hægt að gera
neinn ástfanginn af sér. Ástin kem-
ur og fer, án þess að við ráðupi nokk-
uð við það. Áreiðanlegt er, að minna
væri um ástarsorgir í heimimím, ef
hver og einn gæti stjómað leiðum
ástarinnar eftir eigin vild. Þér getið
auðvitað reynt að sýna piltinum yðar
beztu kosti, en látið hann ekki sjá,
að þér séuð neitt að reyna að veiða
hann í net yðar.
Elsku Vikan min góða!
Svaraðu mér nú eins og svo oft
áður. Hvemig á ég að fara að ná
hárum af fótleggjunum á mér? Þú
kannt ráð við öllu. Svo þakka ég þér
fyrirfram.
Þín einlæg vina,
Elín Sv.
Svar: Nú má fá í lyfjabúðum, og
öðrum, háreyðandi krem, sem heitir
Veet; skuluð þér fá yður það, en
gætið þess að fara vandlega eftir
notkunarreglunum.
NUflX
Heildsölubirgðir:
Agnar Norðfjörð & Co. h.f.
Lækjargötu 4. Simi 3183.
©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©«
Utgefandi: VIKAN H.F., Reykjavík. — Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jón H. Guðmundason, Kirkjuatræti 4, sími 5004, pósthólf 3ð6