Vikan - 08.04.1943, Page 4
4
I Smísaj^CL C. S. b. |
Hann er mikill fyrir sér,
en lífið tekur hann ómjúkum tökum.
Var nokkuð fallegra en Bern! Hann hét
eins og fæðingarbær hans, sviss*
neski bærinn, þar sem núverandi
eigandi hans hafði keypt hann fyrir ærna
peninga, á einni af ferðum sínum.
Það rann göfugt blóð í æðum hans. í
marga ættliði höfðu forfeður hans lagt
leið sma um snævi þakta tinda Alpaf jall-
anna, og manna á milli gengu óteljandi
sögur um afreksverk þeirra.
Allt benti til þess, að Bern mundi halda
i heiðri hinum göfugu ættareinkennum.
Frá því er hann fyrsta sinni, lítill, loð-
inn hnoðri, kom í kaupmannshúsið var
hann með þegjandi samþykki kjörinn eftir-
lætisgoð allra og yngsti meðlimur fjöl-
skyldunnar.
Það verður að segjast, sannleikanum
samkvæmt, að Bem kunni að notfæra sér
þessa aðstöðu sína. Og í hinum rúmgóða
bakgarði, þar sem allt var fullt af mat-
vörusekkjum, kössum og öðm þessháttar,
var hinn ákjósanlegasti leikvöllur fyrir
hann, og þar hafði hann í frammi öll sín
strákapör.
Ef gat sást á hveitipoka eða eitthvað
þess háttar, var enginn í vafa um, hver
var sökudólgurinn. En hann virtist hafa
sérstaklega gott lag á að hverfa, einmitt
á þeim tíma, er búast mátti við refsingu.
Fyndist svo felustaður hans að lokum, var
fólki venjulega runnin mesta reiðin og það
sem eftir var, hvarf eins og dögg fyrir
sólu er það leit í brún, sakleysisleg augu
syndaselsins, er virtust spyrja sem svo:
Hvað er nú að? Og svo geispaði hann, rétt
svo sem til þess að láta líta út sem hann
hefði steinsofið, svo ekki gæti það hafa
verið hann, sem óskundann hefði framið.
En smátt og smátt hætti Bern öllum
strákapörum og varð í hvívetna mesti
fyrirmyndar hundur. Bakgarðurinn var
ekki lengur dvalarstaður hans. Nú var
hann orðinn vörður heimilisins, og hélt sig
mest í framgarðinum. Á nóttunum lá hann
fyrir framan peningaskápinn inni í skrif-
stofu húsbóndans. Ekkert bankahólf gat
verið öruggari geymsla — svo þess vegna
var kaupmanninum óhætt að geyma þar alla
sína fjármuni; það þyrfti enginn að ætla
sér, að taka svo mikið sem eitt þerriblað
ilr skrifstofunni, ef kaupmaðurinn var ekki
viðstaddur. Bern þurfti ekki annað en láta
skína lítillega í vígtennurnar, til þess að
óboðnir gestir hröðuðu sér sem mest þeir
máttu á brott.
En eftir því sem áhrif Bems urðu meiri
á heimilinu og hann þar ómissandi, eftir
því varð hann óvinsælli út á við, vegna
ráðvendni sinnar og tortryggni.
Óvild manna varð svo almenn gegn
hundinum að þótt hann fyrirliti allt slíkt,
varð hún honum að falli um síðir.
Bern hataði af heilum hug alla ein-
kennisbúna menn. Þetta kom sérstaklega
hart niður á bréfberum, sem daglega áttu
erindi í kaupmannshúsið. Þeir, sem þekktu
hættuna, sáu sér venjulega færi að skila
af sér póstinum, meðan athygli Berns
beindist að einhverju öðru. En það var
ékki alltaf, sem þetta tókst. Það var einu
sinni, að póstþjónn einn, nýr í embætt-
inu lenti alveg í gini íjónsins. Það var
strax kallað á kaupmanninn, og þegar
hann kom inn í skrifstofuna, stóð veslings
maðurinn þar náfölur af hræðslu. Bem
hafði lagt framfæturnar upp á axlir hans
og starði á hann gapandi gini. Þetta og
fleiri atvik þessu lík, urðu mjög til þess
að auka á óvinsældir Berns.
Nokkru eftir þetta varð sá atburður,
er hafði mjög örlagaríkar afleiðingar fyrir
Bern og fyllti bikar óvildarinnar gegn
honum.
Það var þegar sjálfur borgarstjórinn
varð fyrir barðinu á Bern.
Á nýársdagsmorgun er þessi háttsetti
maður klæddur fullum embættisskrúða,
gekk um borgina til þess að heimsækja
virðulegustu íbúana, varð hann fyrir árás
hins samvizkusama varðar kaupmanns-
hússins, og það á almannafæri. Borgar-
stjórinn varð að flýja inn til nábúa kaup-
mannsins, og þaðan var svo hringt til
hans, og honum skýrt frá því, er fyrir
hafði komið og skipað að sækja hundinn
undir eins, svo að borgarstjórinn gætl
haldið leiðar sinnar.
«»....^.....^.^T..TTTT11|1T-tntT1|tttt|n>|||...TtT.m|m|trfrrr,M|[|w||||||HM<||t|| ^
a |
! Vitið þér það?
j
1
s I
| 2. Hve margir Bandaríkjaforsetar hafa |
fengið Nobelsverðlaun ?
| 3. Hvað þýðir orðið „axlarfótr"?
I 4. ■ Hve mörg böm átti tónskáldið Johann |
Sebastian Bach?
; 5. Eftir hvaða skáld er þetta erindi:
Líti ég á landabréfið
i ljóð er mér í hug.
Hreimfögur hrynjandi
hefur mig á flug.
— Gullfoss og Dettlfoss og Dynjandi. I
I 6. Hvaða land meira en tvöfaldaðist að |
stærð og íbúatölu eftir heimsstyrjöld- I
S ina ? ?
7. Hvaðan er þessi setning: „Jón Jónsson |
á mig segir stóllinn"?
i 8. Hvaða ítalskur málari skrifaði frá E
hægri til vinstri i staðinn fyrir frá :
vinstri til hægri?
: 9. Um hverja orti Loftur riki Guttorms- I
son Háttalykil?
| 10. Hvar dó norski landkönnuðurinn Roald !
Amundsen ?
: :
Sjá svör á bls. 14.
S !
1. Hver sagði: Illt er að eggja óbilgjam-
an?
VTKAN, nr. 14, 1943
Upp frá þessu átti veslings Bern slasma
æfi. Hann var settur í fjötra. En kaup-
maðurinn gat ekki, er til lengdar lét, horft.
upp á þennan vin sinn í slíku niðurlæging-
arástandi, og ákvað því að gefa hann ein-
um kunningja sínum, bónda, er bjó nokkr-
ar mílur í burtu, og lengi hafði haft auga-
stað á honum.
Það ríkti soi’g á kaupmannsheimilinu
morguninn sem Bern var sóttur og farið
var með hann til hins nýja heimkynnis.
Kaupmaðurinn lokaði sig inni, og talaði
ekki orð við nokkurn mann allan daginn
og uppi á lofti lá lítill sex ára snáði og
grét hástöfum. Það var yngsti sonur kaup-
mannsins, sem þarna missti leikbróður og
tryggan vin.
1 langan tíma á eftir syrgðu allir í kaup-
mannshúsinu Bern. Núna, er þessi fallegi,
gulbrúni. hundur sást ekki framar labba
um í garðinum eða búðinni, komu menn
smátt og smátt auga á kosti hans.
Allir — frá utanbúðarmanninum upp í
skrifstofustjórann — hrósuðu hinu fallega
dýri og öllum þess góðu eiginleikum. Þeir
þreyttust aldrei á að tala um, hvemig
hann hefði það og hvort hann mundi nú
ekki langa að koma aftur. Jafnvel póst-
þjónarnir spurðu af áhuga um hann, og
sjálfur borgarstjórinn lét svo lítið að minn-
ast glettnislega á árekstur þeirra. Kaup-
maðurinn vildi helzt ekki að á hann væri
minnst; hann hafði samvizkubit af því að
hafa selt hann, og það var honum léttir, *
er hann frétti, að núverandi eigandi Berns
hefði keypt búgarð á Sjálandi og væri
fluttur þangað.
Vordag einn, nokkrum árum seinna, lá
leið kaupmannsins um einn af suðurjózku
kaupstöðunum.
Hann var í verzlunarerindum og kom
þaraa einmitt þennan dag vegna þess, að
það var markaðsdagur.
Eftir að hafa lokið erindagjörðum sín-
um notaði hann tímann, sem eftir var þar
til lestin færi, til þess að skoða bæinn.
Allsstaðar var fullt af fólki, smábændur
með pípur í munninum stóðu og ræddu
um stjórnmál, ungir piltar og stúlkur
löbbuðu arm í arm, klædd sínum beztu föt-
um. Upp yfir allt gnæfðu svo háværar
raddir mangaranna, er þeir sögðu álit sitt
á skepnunum, sem þarna gengu kaupum
o g sölum.
Mestur var hávaðinn á markaðstorginu.
Leikið var á marga lírukassa, sitt lagið -
á hvera, og hávaðinn og gauragangurinn
var svo mikill, að kallararnir hjá trúðleika-
tjöldunum urðu að æpa af öllum kröftum,
svo að til þeirra heyrðist; frá veitinga-
tjöldunum heyrðust hlátrasköll og söngur,
og ölþefinn lagði langar leiðir á móti
manni. Hringekja var þarna á fleygiferð
og glitraði í öllum regnbogans litum.
Kaupmaðurinn, er gengið hafði á hljóðin
og hávaðann, lenti inni í þvögunni, sem
þarna beið eftir að komast að hringekj-
unni og stóð fyrr en varði næstur henni.
Ekjan snerist og allir æptu og sungu.
Framhald á bls. 14. '