Vikan - 10.06.1943, Side 15
VIKAN, nr. 23, 1943
15
Er rétt að róa börn
í svefn?
Framh. af bls. 10.
það er yðar réttur að neita henni um
það, þá ætti það að vera hennar rétt-
ur að gráta. Og- að refsa henni fyrir
það eitt að gráta, er ekki rétt. Þér
getið lokað hurðinni inn í svefnher-
bergið, en gætið þess að hafa ljós,
svo að telpan verði ekki hrædd.
Að lokum vildi ég svo gefa þeim
mæðrum sem eiga ung börn, nokk-
ur heilræði: Látið það aldrei eftir
yður að róa börnin i svefn, eða að
leggjast hjá þeim, þó ekki væri nema
í eitt einasta skipti á meðan þau eru
að sofna, né að taka þau upp í yðar
eigin rúm. Börnin fara meira að for-
dæmi en að löngun, og undansláttur i
eitt einasta skipti, getur haft miklu
alvarlegri afleiðingar í för með sér,
en maður í fljótu bragði gerir sér í
hugarlund.
Ardur til hluthafa.
Á aðalfundi félagsins þ. 5. þ. m.
var samþykkt að greiða 4% —
fjóra af hundraði — í arð til
hluthafa fyrir árið 1942.
Arðmiðar verða innleystir á aðal-
skrifstofu félagsins í Reykjavík, og
á afgreiðslum félagsins út um land.
>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>>
'Rjóíó.Í
TANNKREM
hefir fyrir löngu hlotið alntenna
vidurkenningu.
H. f. Eimskipafélag íslands.
í heildsölu hjá
H.f. Efnagerð Reykjavíkur.
Sími 1755.
'»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»-
Vilhjálmur Stefánsson
UlfSmo Thule
Torróðnar gátur úr Norðurvegi
REYKJAVlK 1942 — ÁRSÆLL ÁRNASON
Með ferðabókum sínum,
sem komu út á árunum 1937—39, vann Vilhjálmur
Stefánsson svo íslenzka lesendur, að með einsdæm-
um má telja. Sala bókanna varð svo ör, að til slíks
eru ekki dæmi um svo stórt ritsafn, sérstaklega þeg-
ar tekið er tillit til þeirra erfiðu tíma, er þá voru.
Með bókinni Ultima Thule
kemur fram ný hlið á gáfum og þekkingu Vilhjálms
Stefánssonar, þar sem hann rekur hin erfiðustu
sögulegu rök, greiðir hlutlaust úr þeim, en skýrir
jafnframt ýmis mikilvæg atriði með hinni raun-
hæfu, landfræðilegu þekkingu sinni. Hver var
Pýþeas? Hvaða land var Ultima Thule? Hvernig
sigldu frumstæðar þjóðir um höfin áður en sögur
hófust? Hvernig sigla frumstæðar þjóðir, eins og
t. d. Eskimóar, enn í dag? Hvenær var ísland raun-
verulega uppgötvað? Kom Kolumbus til íslands, áð-
ur en hann hóf landaleit sína vestur um haf ? Hvernig
eyddist byggð íslendinga á Grænlandi ? Hvernig voru
ummæli íslenzka prestsins Egils Þórhallasonar, eftir
veru hans á Grænlandi?
Allt eru þetta „torráðnar gátur“,
en þeim er það sameiginlegt, að þær varða íslend-
inga öllum öðrum fremur. Bókin er gefin út í sömu
stærð og með sama sniði og Ferðabækurnar, með
mörgum kortum og myndum. Verð heft kr. 40.00,
innb. kr. 50.00. Handbundið skinnband er hægt að
fá samkvæmt sérstakri pöntun. Vegna hins gífur-
lega verðs á pappír er upplag bókarinnar takmark-
að. Tryggið yður eintak áður en upplagið þrýtur!
Send með póstkröfu hvert á land. sem er, burðar-
gjaldsfrítt sé borgun send með pöntun.
ÁRSÆLL ÁRNASON
Bankastræti 9 — Reykjavík — Sími 4556.