Vikan - 02.12.1943, Síða 8
8
VIKAN, nr. 48, 1943
Bezti sölumaðurinn!
Gissur: Rasmínu finnst, að mig vanti mann í
skrifstofuna! Til þess að hjálpa mér við hvað?
Sg er sjálfur í vandræðum með, hvað ég á að gera!
Dóttirin: Pabbi, mamma sagði, að sölumaður-
mn, sem hún er búin að ráða, mundi koma rétt
bráðum. ,
Gissur: Mig vantar engan sölumann!
Dóttirin: Vertu nú ekki svona þrár, pabbi! Því
reynirðu ekki að þóknast mömmu og gera eins og
hún segir þér?
Gissur: Það endist engum manni lif og heilsa til
þess að gera. allt, sem hún biður um!
Skrifstofustjórinn: Hann er kominn, á ég að visa
honum inn.
Gissur: Á hann vont með að rata?
Sölumaðurinn: Góðan daginn! Hér er ég kominn.
Og ég er bezti sölumaður í heimi! Hvar er borðið
mitt? Ég er ólnfur í að byrja! Eruð þér ekki
lukkulegur yfir að fá mig, félagi ?
Gissur: Hvað eruð þér með undir hendinni? Er
það blómvöndur handa sjálfum yður?
Sölumaðurinn: Nei, nei, forstjóri! Þetta eru
vindlar — einstök tegund, sem ég kaupi alltaf.
Fáið yður einn — nei, nokkra — þér megið ann-
ars hafa kassann! j£g get fengið nóg af þeim!
Gissur: En hvað þér eruð rausnarlegur! Þgkka
yður kærlega fyrir! Ég hefi vonandi ekki móðgað
yður?
Gissur: Þetta er hryllilegt! Ég fæ samvizkubit út
af að hafa gefið piltunum svona hræðilega vondan
vindil. Ég verð að ná í kassann aftur!
Sölumaðurinn: Tra-la-la. Ég þarf að skreppa út
og ná í meiri vindla.
Gissur: Ágætt!
Gissur: Gerið þér svo vel, Stefán, fáið yður
vindil! Bjóðið piltimum á skrifstofunni líka!
Stefán: Þakka yður fyrir, forstjóri!
Gissur: JE, mér er svo illt!
Stefán: Mig svimar!
Pétur: Ég er að sálast! Keyptu þór þessa vindla
eða funduð þér þá?
Jónas: Ég held ég lifi þetta ekki af!
Sölumaðurinn: Þá er ég kominn aftur!
Gissur: Þér sögðust vera bezti sölumaður í
heimi ?
Sölumaðurinn: Já, það er ekki til meiri sölu-
maður en ég!
Gissur: Jú, einn! Sá sem seldi yður þessa vindla!