Vikan - 06.04.1944, Side 10
VIKAN, nr. 14, 1944
3L°
urimn in
n b i iii i l i u
Nokkrar uppeldisreglur.
. Eftir Garry Cleveland Myers, .. ■■■■■.- .
dr. phil.
EwMUMHHUHIUnHHMMI
Matseðillinn
Enskt baut.
1500 gr. kjöt, hálf teskeið
pipar, 300 gr. laukur, 125 gr.
smjör, 2 teskeiðar salt.
I enskt baiit þarf að hafa gott
kjöt. Kjötið er verkað og skorið í
sneiðar, þvert yfir kjötþræðina. Kjöt-
sneiðamar em barðar vel með baut-
hamrinum og gerðar kringlóttar með
hnífi. Saltinu og piparnum er stráð
öðm megin á stykkin. Laukurinn er
flysjaður og skorinn i sneiðar og
brúnaður ljósbrúnn, fyrst á pönn-
unni, síðan tekinn af og bautið í
smjörinu, móbrúnt á báðum hliðum
við góðan hita, Er það þá tekið af
og raðað á fat og laukurinn látinn
ofan á og brúnuðu smjöri helt yfir.
Með bauti em hafðar kartöflur eða
pönnuegg. Eggin eru þá látin ofan
á bautið. Kjötsneiðum má líka velta
í hveiti, áður en þær eru brúnaðar,
og sjóða svo í vatni í 10 mínútur, en
vatnið þarf að gufa burt á meðan.
Trifli.
250 gr. smákökur (makkaróni),
250 gr. romm eða sherry, 75
gr. eggjarauður, 500 gr. rjómi
eða mjólk, 15 gr. matarlím,
100 gr. sykur, 125 gr. vatn,
háli stöng vanilja.
Víninu er hellt út á kökumar, og
þegar þær eru orðnar blautar í gegn,
er þeim raðað i glerskál. Eggjarauð-
urnar eru hrærðar með sykrinum,
. þar til þær eru orðnar að sléttri
froðu. Rjóminn er soðinn litla stund
með vaniljunni og svo er honum smá-
hellt í þeyttu rauðurnar og þarf
stöðugt að hræra í á meðan. í>essu
ötlu er svo hellt í pottinn aftur, og
þegar • rétt er við að sjóða, er pott-
urinn tekinn ofan og má ekki hætta
að hræra eitt einasta augnablik, því
að þá mærna eggjarauðurnar.
Matarlímið er leyst sundur í sjóð-
andi vatni, og þegar það er vel mnn-
ið, er því hellt í eggjajafninginn.
Þegar þessi eggjafroða er orðin köld,
en ekki hlaupin saman, er henni hellt
yfir kökurnar. Þcgar á að bera þetta
á borð, skal þeyta 250—500 gr. af
rjóma og láta yfir. Láta má dálítið
af berjamauki ofan á kökurnar í
skálinni, ef maður vill.
Kökuspaði eða skeið er höfð í
þessu, þegar það er borið á borð
og borðað sem ábætir.
Tízkumynd
Glæsilegur hvítur minkafeldur. Það
var sjö ára verk að safna skinninu
í hann.
Hér fara á eftir nokkur holl ráð
handa foreldrum, sem láta sér annt
um uppeldi bama sinna.
1. Áður en fyrsta bamið fæðist
eiga öll hjón að koma sér saman um
heilbrigðar uppeldisreglur, sem nota
eigi við uppeldi barnsins, og endur-
skoða síðan þær reglur öðru hvoru
eftir því sem barnið eldist eða fleiri
börn bætast í hópinn. Foreldrarnir
eiga að leitast við að skapa heil-
brigðan félagsanda á heimilinu, þar
sem börnin jafnt og foreldrarnir eru
þátttakendur.
2. Temjið börnunum timanlega
aliar hreinlætis- og heilbrigðisregl-
ur.
3. Venjið barnið svo fljótt sem
hægt er á að virða fyrirmæli yðar,
og skilja það, að þegar þér bannið
þvl eiithvað, þá sé því sjálfu fyrir
beztu að hlýða.
4. Leitið eftir samvinnu við bam-
ið með því að fá það til að gera
það, sem þér viljið að það geri, og
takið siðan þátt í fögnuði þess, ef vel
gengur.
5. Eflið sjálfstraust bamsins.
Gerið yður að reglu, að leysa ekkert
verk af hendi fyrir það, sem þér
vitið, að það getur sjálft gert. Látið
það borða sjálft, klæða sig sjálft og
sjá að öðru leyti sjálft fyrir þörfum
sínum. Látið það svara sjálft, þegar
aðrir leggja fyrir það spurningar í
návist yðar. Lofið því að vinna og
leika sér eins og það sjálft kýs, á
meðan það er ekki öðrum eða því
sjálfu til skaða eða óþæginda, og
látið það sjálft æ meir um að velja
og hafna og taka ákvarðanir, eftir
því sem það eldist.
6. Lofið þvi að gera ýmislegt af
því, sem það langar til að gera og
getur gert, þó að það sé að öðrum
jafnaði verk fuliorðinna, svo sem að
taka þátt í ráðagerðum fjölskyld-
unnar um fjármál heimilisins og
náttúrlega verkaskiptingu á heimil-
inu. Sjáið einnig um, að strax og það
fær aldur til taki það sinn þátt 1
skyldum og réttindum innan fjöl-
skyldunnar, og þá engu síður því,
sem er miður skemmtilegt; og að
það öðlist þessa reynslu með sem
minnstum óþægindum og erfiðleikum
fyrir sjálft sig og aðra meðlimi fjöi-
skyldunnar.
7. Hvetjið það þegar frá upphafi
til að taka sér fyrir hendur skap-
andi og þroskandi leiki með hluti og
orð, eitt eða með bömum á sinu
reki.
8. Venjið það snemma á að um-
gangast önnur börn á svipuðum aldri,
og látið það sem mest sjálft um að
gera út um deilur sínar við þau —
halda fram rétti sínum og laga sig
eftir óskum annarra.
9. Sýnið því, að þér berið fulla
virðingu fyrir því sem persónu, og
hlæið aldrei að spurningum þess eða
athugasemdum, heldur svarið spurn-
ingum þess í alvöru og einlægni, og
hlustið þolinmóð á það, sem þau
hafa að segja.
10. Látið bamið finna, að það sé
einskis metið, elskað og kært öðram
meðlimum fjölskyldunnar.
11. Stigið á eigingjamar óskir
þess og hvetjið það tii sjálfsafneit-
unar og sjálfsfómar.
12. Hagið öllu uppeldi yðar
þannig, að sem minnstur ótti og kviði
fái tækifæri til að ásækja barnið.
Kennið því, í einu orði sagt, að ná
valdi yfir tilfinningum sinum.
Gerber's Cereal Food
er talið aí Iæltnum og
Ijósmæðrum vera nær-
ingarbezta barnafæða. -
Fæst í pökkum og dósum
í
Nýja ameríska sápan
er handsápa hinna
vandlátu.
F æ s t v í ð a.
öruggasta og —
bezta hand|)\ ottaefnið.
Athugið!
Fombókaverzlun vor kaup-
ir allar bækur hæsta verði.
Einnig tímarit og blöð. —
Greiösla hvort heldur er i pening-
um eða bókaskiptum.
Komið og reynið viðskiptin.
Bókaverzlun
Guðmundar Gamalíelssonar
Lækjargötu 6. - Sími 3263.
| Matarlitur, Eggjalitur
Salatolía.
| EFNAGERÐIN STJARNAN ]
I Iíemisk-teknisk verksmiðja |
i Borgartúni 4. Siml 5799. §