Vikan


Vikan - 15.06.1944, Page 6

Vikan - 15.06.1944, Page 6
6 VIKAN, nr. 23—24, 1944 Hann stofnaði háskóla í Neapel, sem skyldi veita embættismannaefnum lög- fræðilega menntun. Lagabætur hans kom- ust að vísu aðeins í framkvæmd á Italíu, því að vald hans á Þýzkalandi var lengst- um mjög veikt. Lénshöfðingjar þar norður frá fóru sínu fram, hver í sínu ríki. Og bxði í hópi þeirra og stjórnenda ýmissa frjálsra ríkisborga má benda á valdhafa, sem komu á lagabótum, hver innan síns yfirráðasvæðis, enda þótt upplausn ríkis- heildarinnar á árunum 1254—1273 áynni því tímabili nafnið „Óstjórnartímarnir miklu“. Viðleitni Rúdolfs 1. af Habsborg, (sem; kjörinn var Þýzkalandskonungur í lok þess tímabils og ríkti til 1290), í þá átt að fá lögum komið yfir ránsmenn og ribbalda af riddarastétt og efldan frið og reglu í ríkinu, gæti talizt hliðstæða þess lagabótastarfs, sem konungar í öðrum löndum gengust þá fyrir. Þá fór England ekki heldur varhluta af lagabótastefnu þess- ara tíma. Játvarður 1. (1272— 1307) hefir stundum verið nefnd- ur „Jústinianus Englands", eftir Jústinianusi keisara í Miklagarði (527—568), sem lét lögfræðinga sína gera lagasafn það hið mikla, sem oftast er nefnt Rómarréttur, eða þá kennt við keisarann sjálf- an („Corpus juris Justiniani“). Játvarður konungur 1. kom fastri skipan á kviðdóma og fól þeim niðurjöfnun skatta. En þar sem rík einveldisstefna setti mark sitt á lagasetningu annarra þjóðhöfðingja þessa tímabils, tekur Játvarður 1. tillit til þeirrar þróunar stjórnarfyrirkomulagsins, sem átt hafði sér stað á Englandi fyrr á Öldinni, þ. e. stofnunar „efri málsstofu“ þings með „Frelsisskránni miklu“ 1215 og „neðri málsstofu“ að ráði Simonar af Mont- Lort 1265. Hann lofaði því árið 1297 að leggja ekki nýja skatta á þegnana nema með sam- þykki þingsins. En til samanburðar við al- þingi Islendinga er skylt að geta þess, að enska þingið hafði enn mjög óákveðið valdsvið, og gat engan veginn talizt lög- gjafarþing. Aðeins aðall, klerkar og efn- aðri borgarar áttu þar fulltrúa. „Búkarl- ar“, eins og Loðinn leppur komst að orði um bændur, áttu þar engan íhlutunarrétt. Suður á Pyreneaskaga ríkti Alfons 10., nefndur „hinn vitri“ 1252—1284 yfir Leon og Kastilíu. Hann gerðist mikill löggjafi í ríkjum sínum. Cg má gera ráð fyrir því, að menn við hirð Noregskonungs hafi haft glöggar spurnir af stjórnarferli hans, því að bróðir hans var kvæntur Kristínu syst- ur Magnúsar lagabætis. Og árið áður en Loðinn leppur heiðraði Islendinga með heimsókn sinni, hafði yfir- stjórn víðlendasta og fólksflesta ríkjasam- bands á hnettinum komizt í hendur Mon- góladrottnaranum Kúblai-khan, er þá gerð- ist keisari Kínaveldis. Hann ríkti til ársins 1234, og er ein af merkustu stjórnarat- höfnum hans sú, að gangast fyrir söfnun kínverskra laga í eina mikla lögbók. Þessi voldugasti þjóðhöfðingi jarðarinnar var engan veginn ófróður um það, sem var efst á baugi í Evrópu á þeim tímum, enda þótt hann og ríki hans væru að mestu austan við sjóndeildarhring evrópskrar þekkingar. Hann kynntist ýmsum Evrópu- mönnum eins og t. d. ítalanum Marcó Póló, sem dvaldist 17 ár í þjónustu hans. Er því engin fjarstæða, að geta sér þess til, að áhugi hans fyrir lagasöfnun og við- leitni í þá átt að koma á einum lögum í öllu ríkinu eigi rót sína að rekja til þeirrar lagabótastefnu, sem sýnt hefir verið með ofangreindum dæmum, að var eitt megin- einkenni vestrænnar konungs- og keisara- hugsjónar allan síðari helming 13. aldar. Samsteypa fernra laga í Noregi í eina samræmda heild og samning Járnsíðu og Jónsbókar handa Islendingum, sem aflaði Magnúsi konungi Hákonarsyni (1263— 1280) auknefnisins „lagabætir“, er í fullu samræmi við þá konungshugsjón. Víðast hvar markaði þessi stefna spor í framfara- átt. Frumkvæði konunganna að sköpun lögbundinna réttarríkja í stað þess öryggis- leysis, sundrungar og ofbeldis, sem fylgt hafði lénsmannavaldinu þar sem „vopnin sögðu mönnum lög“, boðaði nýja og betri öld á ýmsum sviðum og hjá flestum þjóðum. Eitt land er þó hrein undantekning í þessu efni. í einu landi hafði ævaforn germönsk þingríkishugmynd öðlazt það form og þá framkvæmd fyrir atbeina spökustu manna, sem varð grundvöllur réttarríkis án þjóðhöfðingja. Þar hafði risið löggjafarþing, þar sem landslýður allur átti sína fulltrúa, þótt þeir hlytu þar sæti með öðrum hætti en nú tíðkast. Og á því þingi höfðu verið samþykkt lög, til tryggingar „frelsi, jafnrétti og bræðra- lagi“, 800—900 árum áður en lýðræðis- stefna Evrópu og Norður-Ameríku lctraði þau orð á skjaldarmerki sitt. Aðeins í þessu ríki „gerðu búkarlar sig svo digra að hyggjast ráða lögum í landi.“ Aðeins í þessu ríki boðaði frumkvæði konungsvalds- ins um lagasmíð og lagasetningu afturför, þröngvun þjóðar niður á lægra. pólitískt menningarstig en hún hafði áður staðið á. Loðni lcppi var vorkunn, þótt hann vissi það ekki né skildi, að með niðurskurði við- ræðna um Jónsbók á alþingi 1231, traðkaði hann undir fótum fagran frumgróða þjóð- félagsskipunar, sem þjóðir í öllum álfum heims myndu taka upp í breyttú formi, þegar aldir liðu fram. Og „búkarlar“ þeir, sem mæltu gegn honum, vissu það raunar ekki heldur. Vitrir menn hafa sagt, að sagan sé einna líkust vandlátu skáldi, sem gerir uppkast og varpar því síðan í bréfakörfuna, og gerir aftur uppkast, og aftur og aftur, sem öll fara sömu leið, unz það ljóð, er fullskapað, sem verður höfundi sínum til sóma og lesendum andleg nautn. 1 borgríkjum Hellena og Rómverja í fornöld gerði sagan uppkast að lýðræðis- legu stjórnarformi, sem hún ónýtti síðan. Á miðöldum samdi hún annað uppkast á. íslandi, sem einnig var stungið undir stól. Hvað verða mun um þau stjórnarform í þessum anda, sem síðar eru fram komin og þróazt hafa með öðrum þjóðum og borizt hingað frá þeim, veit hún ein. En samtímis því, að við end- urheimtum það frelsi, sem við glötuðum á síðara hluta 13. ald- ar, vaknar sú spurning hjá mörg- um, hvort það lýðveldi eða þjóð- veldi á Islandi, sem glataðist 1262, hafi í raun og veru lent í bréfakörfu sögunnar, hvort eitt- hvað af anda þess og jafnvel formi, sem féll fyrir ofurmagni tíðarandans á síðari hluta 13. aldar, myndi ekki tímabært á 20. öld. Um það skal ekkert fullyrt, en ættúm við ekki samt vegna samhengis í sögu landsins, að nefna þann viðburð, sem tengdur verður árinu 1944 — „endurreisn lýðveldls (eða þjóðveldis) á ís!andi“ fremur en „stofnun lýðveldis” á Islandi ? Nýtt á gömlum grunni. Þegar Norðmenn skildu við Svía 1905 og tóku sér fyrir konung Carl prins, son Friðriks 8. Danakonungs af Gliicksborg- arætt, gáfu þeir honum nýtt nafn. Þeir nefndu hann Hákon 7. En hvers vegna? Var ekki Karl fullboðlegt konungsnafn? Vissulega. Það nafn höfðu ágætir þjóð- höfðingjar í ýmsum löndum borið. Sjálf- ir höfðu Norðmcnn lctið fjórum konung- um með því nafni samtímis Svíum. Þeir höfðu nefnt Karl Knútsson, sem taldist Noregskonungur árlangt 1449, Karl 1., og Karl 13. Svíakonung, sem Noregur laut á árunum 1814—18, nefndu þeir Karl 2. Þá var Karl Jóhann (1818—44) eiginlega Karl 3., þótt hann væri víst sjaldan nefnd- ur með raðtölunni, því Karl 15. Svíakon- ungur (1853—1872) hét sem Noregskon- ungur Karl 4. Ekkert virtist því eðlilegra en það, að Carl prins af Gliicksborgarætt, yrði þá nefndur Karl 5. En Norðmenn höfðu þá annað í huga. Sfðasti konungur þeirra, áður en Noregur (ásamt Islandi, Grænlandi, Færeyjum,' Orkneyjum og Shetlandaeyjum) lenti und- ir Danakonung, var Hákon 6. (d. 1380)., Hátiðasalur Menntaskólans i Heykjavik. 1 þessum sal voru haldin öll þing, sem Jón Sigurðsson sat. — Hátíðasalurinn var þingsalur frá byggingu skólans og endurreisn Alþingis 1845—46 og þar til Alþingis- húsið var reist 1881. V

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.