Vikan


Vikan - 15.06.1944, Síða 11

Vikan - 15.06.1944, Síða 11
VIKAN, nr. 23—24, 1944 11 FRAMHALDSSAGA _________________ Poirot og lœknirinn ........... Sakamálasaga eílir Agatha Christie „Parker getur samt hafa verið þar að verki — ef Lil vill áður en honum varð hugsað til lokaðra dyra og opna gluggans. En svo hefir lionum snúist hugur — eða hræðslufát hefir gripið hann — og þá hefir hann ákveðið að neita öllu. Svona gæti legið í þessu.“ Ég jankaði því efablandinn. „En hvað sem þessu líður, þá ættum við að geta fengið vitneskju um upphringinguna á stöð- inni. Ef hringt hefir verið héðan, þá kem ég ekki auga á, hver hefði getað gert það annar en Parker. En við skulum láta þetta liggja milli hiuta — við hreyfum ekki við honum fyrr cn við erum búnir að athuga fleiri vitnisburði. Ég skal sjá um, að hann sleppi ekki. En fyrst þurf- um við að athuga dularfulla manninn, sem þér mættuð.“ Hann hafði sezt á stólinn við skrifborðið, en stóð nú á fætur og gekk að hægindastólnum. „Vopnið ætti að verða okkur leiðarvísir," sagði lögreglufulltrúinn og leit upp. „Það er einkenni- legur gripur — sérkennilegur sýnist mér." Hann hallaði sér fram og athugaði skaftið með athygli og ánægjuuml heyrðist í honum. Þvi næst tók hann um rýtinginn fyrir neðan skaftið og dró hann út úr sárinu. Hann snerti ekki rýt- inginn öðruvísi og setti hann á skál á arinhill- unni. „Já,“ sagði hann og kinkaði kolli. „Þetta er snilldarlega gert stykki. Það er ósennilegt, að margir séu til alveg eins.“ Það var orð að sönnu, að rýtingurinn var fallegur gripur. Ilann var blaðmjór og mjókkaði fram i endann; meðalkaflinn úr undnum skraut- málmi, mjög haglega gerður. Lögreglufulltrúinn kom varlcga við blaðið með einum fingri, til þcss að reyna bit þess, og gretti sig íbygginn á svip- inn. „Guð minn góður, hvað hann er beittur," sagði hann við Sheppard. „Jafnvel barn hefði getað rekið hann á kaf í mann — eins auðveldlega og að skera smjör. Það er svci mér hættulegt að hafa svona áhald á glámbekk." „Má ég athuga likið nákvæmlega núna?“ spurði ég. Ilann kinkaði kolli. „Gjörið þér svo vcl.“ Ég framkvæmdi athuganir mínar. „Jæja?“ sagði lögreglufulltrúinn, þegar ég hafði lokið athugunum mínum. „Ég ætla ekki að þrcyta yður á fræðilegum skýringum á læknamáli," sagði ég. „Það verður skýrt betur, þegar líkskoðunin fer fram. Þcssi stunga var gefin með hægri hönd manns, sem stóð fyrir aftan Ackroyd og hann hefir dáið undir eins. Eftir andlitssvip hins dauða hefir stungan komið honum algerlega á óvart. Hann hlýtur að hafa dáið án þess að vita, hver árásar- maðurinn var.“ „Kjallarameistarar geta læðst um eins og kett- ir,“ sagði Davis lögreglufulltrúi. „Það ætti ekki að þurfa að hvíla mikil hula yfir þessum glæp. Lítið þér á handfang rýtingsins." Ég gerði það. „Ég þykist- vita, að þau séu ekki augljós fyrir yðar augu,“ sagði hann, „en ég sé þau nógu greinilega." Hann lækkaði röddina: „Fingraför!" I-Iann gekk nokkur skref aftur á bak til þess að sjá, hver áhrif þetta hefði á mig. „Já,“ sagði ég hátíðlega. „Ég bjóst við því.“ Mér fannst alveg óþarfi af honum að vera að gefa í skyn, að ég væri einhver blábjáni. Ég F’orsnfrn • Sheppard læknir er að 1 “ * koma frá heimili frú Ferr- ars, en húrj hafði lálizt um nóUina. Garo- hne systir hans spyr hann spjörunum úr og heldur þvi fram, að frú Kerrars hafi framið sjálfsmörð, og að hún hafi komið manni sinuru fjrir kallarnef, er hann lézt íyrir nokkrum mánuðum. Sheppard segír söguna og er bmnn að lýsa þvi, er hann niælli Roger Ackroyd, ríkum manni, er býr í Kernloy Park. Ralph 1‘aton er uppeklis- sonur Aekroyd. Shepirard kynnist 1‘oirot. ]*eir eru nágrannar Hoger Aekroyd býður Sheppard til sin i kvöldverð og trúir hon- um fyrir þvl, að frú Kerrars hafi sagt sér, að hún hafi gefið manni sinuni eitur, og að einhver, sem vissi það, hafi gert henni lifið óbærilegt. Ackroyd fær bréf, sem frú Ferrars hefir skrifað rétt áður en hún dó og í þvi segir hun nafn þess, seni heíir of- sótt hana. en hann vill ekki lesa það allt fyrir lækninn. Sheppard fer heim, en um kl. tíu er hringt til hans og sagt að Roger Ackroyd hafi verið myrtur. Sheppard flýtir sér aftur til Fernley Park. Kjalláranieist- arinn, Parker, viðurkennir ekki að hafa hringt til Sheppards, cn læknirinn segir, að það hafi verið hann. Ungfrú Flóra hefir' verið inni hjá Ackioyd eftir að Seppard fór. hefi lesið mikið af sakamálasögum og fylgist með i blöðunum, og er ekki hæfileikaminni en fólk er flest. Ef fótspor hefðu sést á rýtingnum, þá hefði verið allt öðru máli að gegna — þá hefði ég, auðvitað látið í ljós lotningu! Ég held, að lögreglufulltrúinn hafi verið óánægður með það, að ég svipti hann þeirri skemmtun að dást að honum. Hann tók skálina með rýtingnum og sagði mér að fylgja sér inn í knattborðsherbergið. „Ég ætla að vita, hvort Raymond getur nokltuð frætt okkur um rýtinginn," sagði hann. Við lokuðum dyrunum á eftir okkur og fórum inn i lmattborðsherbergið og fundum Geoffrey Raymond þar. Lögreglufulltrúinn sýndi honum rýtinginn. „Hafið þér séð hann áður, Raymond?" „Ég held — ég er nærri viss um það, að þessi merkilcgi gripur er gjöf frá Blunt til Ackroyds. Rýtingurinn er frá Marokko — nei, hann er frá Tunis. Var glæpurinn framinn með honum? Þetta er óvenjulegt vopn til slíkra hluta. Mér kemur það ótrúlega fyrir sjónir, en samt getur varla verið um tvo rýtinga eins að ræða. Má ég ná í Blunt majór?“ íiann flýtti sér út, án þess að bíða eftir svari. „Ljómandi geðugur náungi," sagði lögreglu- fulltrúinn. „Hann er svo heiðarlegur og greindar- legur á svipinn." Ég samþykkti. I þessi tvö ár, sem Gcoffrey Raymond hafði verið einkaritari Ackroyds, hafði ég aldrei séð hann skipta skapi. Og hann var, eftir því sem mér var kunnugt, mjög góður einka- ritari. Að nokkrum mínútum liðnum kom Raymond aftur í fylgd með Blunt. „Þetta er hann,“ sagði Raymond, „það er rýt- ingurinn frá Tunis!“ „Blunt majór hefir ekki litið á hann enn,“ sagði lögreglufulltrúinn. „Ég sá það strax, þegar ég kom inn í skrifstof- una,“ sagði þessi rólegi maður. „Þér þekktuð hann þá?“ Blunt kinkaði kolli. „Þér minntust ekkert á það þá!“ sagði lög- reglufulltrúinn og var tortryggnislegur á svip- inn. „Ekki réttur staður né stund til þess," sagði Blunt. „Það getur gert illt verra að tala um slikt á röngum tirna." Ilann mætti augnaráði lögreglufulltrúans óhikandi. Það rumdi eitthvað í lögreglufulltrúanum og hann hætti að stara á Blunt. Hann fór með rýt- inginn til majórsins. „Þér eruð alveg vissir um að þekkja rýting- inn ?“ „Alveg viss — ég er í engum vafa um það!“ „Hvar var þessi dýrgripur venjulega ge'ymdur ? Getið þér sagt mér það?“ Það var einkaritarinn, sem svaraði: „Hjá silfurmununum í dagstofunni.“ „Hvað segið þér?“ spurði ég. Hinir litu á mig. „Nú, læknir?“ sagði lögreglufulltrúinn hvetj- andi. „Nei, það er annars ekkert," bætti hann við, jafnvel enn meira hvetjandi á svipinn. „Það eru smámunir," sagði ég í afsökunartón. „Það er aðeins það, að þegar ég kom til kvöld- verðar, heyrði ég að lokið á silfurborðinu i dag- stofunni var sett niður." Efi og grunur var augljós á andliti lögreglu- fulltrúans. „Hvernig vissuð þér, að það var lokið á silfur- borðinu?" Ég varð að skýra nákvæmlega frá þessu — gefa langa og þreytandi lýsingu, sem ég hefði helzt viljað vera laus við að romsa út úr mér. Lögreglufulltrúinn hlustaði með mestu þolin- mæði á frásögn mina. „Var rýtingurinn á sínum stað, þegar þér lituð á það, scm i borðinu var?“ „Ég veit það ekki," sagði ég. „Ég man ekkf svo eftir hverjum einstökum hlut — en auðvitaff hefir hann verið þar.“ „Við verðum að ná i ráðsköíiUna," sagði fuli- trúinn og hringdi bjöllunni. Ungfrú Russel kom inn nokkrum minútum sið- ar og Parker var með henni. „Ég held ég hafi ekki komið nálægt silfur- borðinu," sagði hún, þegar fulltrúinn hafði lagt spurninguna fyrir hana. „Ég var að gæta að því, hvort ckki þyrfti að vökva blómin. Æ! Jú, nú man ég það! Silfurborðið var opið — en það var ekki vant að vera það og ég. setti lokið niður um leið og ég fór fram hjá þvi.“ Hún horfði hvasst á fulltrúann. „Jahá,“ sagði hann, „getið þér sagt mér, hvort þessi rýtingur var þá á sinum stað?“ Ungfrú Russell horfði athugulum augum á vopnið. „Ég er ekki viss um það,“ svaraði hún. „Ég stanzaði ekkert til að virða hlutina fyrir mér. Ég vissi, að fólkið mundi koma á hverri stundu og ætlaði mér að vera kominn út úr stofunni, þegar það kæmi.“ \ „Þakka yður fyrir,“ sagði fulltrúinn. Hann var eitthvað hikandi. Það var svo að sjá sem hann væri að hugsa um, hvort hann ætti að spyrja hana að fleiru. En ungfrú Russell hafði tekið orð hans sem merki um, að hún mætti fara og fór út úr herberginu. „Skyldi hún vera tatari, ég gæti ímyndað mér það,“ sagði fulltrúinn og horfði á eftir henni. „Við skulum nú athuga þetta betur. Þetta silfur-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.