Vikan


Vikan - 15.06.1944, Síða 23

Vikan - 15.06.1944, Síða 23
VIKAN, nr. 23—24, 1944 23 ENDUKREISN LÝDVELDIS. Framliald af bls. 10. Öánægja magnaðist með almenningi. Mönnum þótti stjórnfrelsið frá 1874 hafa verið sýnd en ekki gefin veiði. — Harðæri bundust þá samtökum við Dana- stjórn um að sannfæra margan íslending um, að hér væri vonlaust að vera. Menn tóku að streyma til Ameríku. En rétt upp úr aldamótunum 1900 verða straumhvörf í stjórnmálalífi Dana. Afturhaldsöfl, sem eftir ófarir gegn Prússum og Austurríkis- mönnum 1864, höfðu náð töglum og högld- um, urðu nú að víkja fyrir frjálslyndari flokki, sem kenndi sig við vinstri hlið. I hópi þeirra manna, sem nú tóku völd í Danmörku, voru margir þess sinnis, að þeir töldu kröfur Islendinga um heima- stjórn á rétti byggðar. Og samkvæmt lög- um staðfestum af konungi haustið 1903 tók hér í ársbyrjun 1904 til starfa íslenzk- ur ráðherra. Það var ómetanlegt happ þjóðinni, að annar eins maður og Hannes Hafstein skyldi fyrstur veljast til þess starfa. Við hann hefir þjóðin mælt ráðherra sína fram á þennan dag. Eflaust hefir það mat verið ósanngjarnt að sumu leyti, því að röskra 100 þúsunda þjóð gat ekki alltaf haft mönnum á að skipa, sem jafn vel voru fallnir til forystu og hann, en ráðherra- metið í gáfum og glæsileiká, framkvæmda- hug og skáldlegri framsýni, var þá sett, og þá þykir íslenzkum ráðherra vel hafa tekizt, ef hann á einhverju sviði hefir náð með tær, þar sem Hannes hafði hæla. Jón Sigurðsson sem fyrirmynd og þjóð- legt, skáldlegt helgiteikn lifði fyrir hug- skotssjónum hans alla daga stjórnarferils hans. Og eftirtímanum verður það æ ljós- ara, sem frá líður, hversu mikið happ það var þjóðinni, að eiga á þeim tíma að póli- tískum forystumanni annað eins skáld og Hannes Hafstein, og annað eins yrkisefni í orði og verki fyrir slíkt skáld og Jón Sigurðsson var. Indriði Einarsson skrifaði um það skemmtilega á 100 ára afmæli Jóns Sig- urðssonar, að Jón hefði ekki litið við 12 króna regnhlíf, ef 15 króna regnhlíf var fáanleg, og álíka „burgeisamóral“ gekk hann með í vali tóbaks, og annarrar mun- aðarvöru. En það er vandfarið með þetta fordæmi hjá fátækri og nýríkri þjóð, því að sönnum höfðingsskap og flottræfildómi hættir við að hlaupa í sama dilk, og verða sammerkt á ytra borði. <* En Hannes mat lífið sama höfðingsmati og Jón, og þótt hann í ljóði létist mundu hafa verið niðurskurðarmaður, varð hann sá aðdáandi hans, sem orkti ódauðlega um hann sem þjóðfrelsishetjuna meðal þess fólks, sem Hannes stýrði, og vildi alveg sérstaklega vel. Það fór titringur um hörpu Hannesar árið 1911, þegar haldið var hundrað ára afmæli Jóns Sigurðssonar. Þær hljóm- bylgjur, sem þá liðu tært frá hörpu hans, hafa endurómað íslenzkri sál æ pg síðan. „Sjá roðann á hnjúkunum háu“, — og „Þagnið dægurþras og rígur“, hefir lifað á vörum söngvinna Islendinga fram á þenn- an dag. Og það er eins og sagan sé búin að kemba þá saman, Jón og Hannes, Hannes og Jón, þannig að lítt fróðir menn í lands- ins sögu viti naumast aðgreining á skáld- inu og yrkisefninu, hugsjóninni og fram- kvæmdinni — ljóðinu og lífinu. En gjörvallt Island ómaði af ættjarðar- ljóðum um þessar mundir. Fagurt orkti Hannes, en fagurt orktu fleiri, og í stjórn- málum voru menn ýmsir, á öndverðum meiði við hann. Hér stóð flokkabarátta, og gerðust margir í báðum herjum gráir fyrir járnum. Hannes var hamingjubarn um það eins og flest allt annað, að eiga mikla menn í forystu andstæðinga sinna. —Björn Jónsson og Skúli Thoroddsen eygðu rót- tækari og líklega að einhverju leyti alþýð- legri sjónarmið í baráttunni, en svo vel og hlýtt er um þá alla í minning eftirtím- ans, þessa forystumenn þjóðarinnar fram- an af öldinni, að við, sem nú lifum, viljum helzt hugsa okkur þá, sem samherja að sjálfsögðum réttarkröfum Islands, — og þa'ð voru þeir innst inni þrátt fyrir allt. Hannes, Björn og Skúli áttu hver á sína vísu dýrlega drauma vegna ættjarðar sinn- ar, sem ekki hafa enn rætzt, nema að hálfu. Sólskinsblettur í heiðl. Þess eru dæmi á þungbúnum dögum, er dimmir skýjabólstrar byrgja sólarsýn, að rofi til á bletti, svo geislafoss baðar og lýsir eitthvert takmarkað svæði, — þótt allt í kring sé dökkt og grátt. Veðra- duttlungum sögunnar hefir þóknazt að láta slíkt skýjarof verða yfir Islandi í ár, svo að hér er sólskinsblettur, þó að margar þjóðir heims eigi nú sólarlausa daga. En höfum við Islendingar ekki þrátt fyrir það fullt leyfi til þess að fagna því, að síðasta skrefið er stigið til fulls frelsis og sjálf- stæðis þessa lands? Sumum finnst, að svo sé ekki, meðan margar þjóðir búa við böl og harma þeirrar heimsstyrjaldar, sem enn sézt ekki fyrir endann á. En gegn þeirri skoðun mælir margt. Gera ekki flestir menn sér glaðan dag, þegar svo ber undir, enda þótt þeir viti mæta-vel, að samtímis býr f jöldi manna í heiminum og oft á næstu grösum við þá, við þján- ingar, skort, sálarangist og hvers konar mannleg mein. Og hverju væru hinir óham- ingjusömu bættari, þótt hinir, sem þykj- ast hafa ástæðu til að gleðjast, stilltu sig um það, en klæddust í þess stað sekk og ösku þeim til samlætis? Og meðan slíkur samþjáningarandi má heita næsta sjaldgæfur í lífi einstaklinga, hvernig er þá hægt að ætlast til þess að heilar þjóðir láti stjórnast af honum í samskiptum sín á milli? Það má einnig minnast þess, að þessi þjóð getur ekki annað talizt en vel að því fagnaðarefni komin, sem þetta vor hefir fært henni. Það frelsi, sem við höfum full- heimt, er ekki frá neinum öðrum tekið. Fyrir það hefir ekki neinu mannsblóðiverið úthellt hjá annari þjóð. Það er ekki einu sinni svo, að hægt sé að segja, að við eig- um það óbeinlínis styr jöldinni að' þakka. Sambandinu við Dani hefði verið slitið um þessar mundir hvort sem var. Og enda þótt svo hefði verið, að sambandsslitin væru söguleg afleiðing styrjaldarinnar, — styrjaldar, sem við eigum engan þátt í og engum Islendingi er trúandi til að hafa óskað, að yrði háð, — hafði þessi þjóð ekki neina ástæðu til annars en að fagna þeim upplitsdjörf og með góðri samvizku. Eða hefði sögunni verið eitthvað vand- gerðara við okkur Islendinga, en t. d. við allar þær þjóðir Evrópu og Asíu, sem hlutu sjálfstæði sitt upp úr fyrri heimsstyrjöld- inni ? Heill tugur ríkja hlaut um þær mundir sjálfstæði sitt við blóðuga sundur- limun þriggja keisaradæma og eins sol- dánsveldis. Eða varð þess nokkuð vart, að Finnar og Eystrasaltsþjóðirnar létu það skyggja á fögnuð sinn yfir fengnu frelsi, að leið þeirra til sjálfstæðis skyldi hafa legið yfir rústir rússneska keisaradæmis- ins? Eða mun Pólverja hafa nokkuð klýj- að við sjálfum sér fyrir það að endur- heimta land sitt aftur úr höndum þeirra þriggja stórvelda, Rússlands, Þýzkalands og Austurríkis, sem höfðu skipt því á milli sín seint á 18. öld? Eða hver hefir heyrt þess getið, að Tékkarnir Masaryk og Benes hafi látið það á sig fá, að Tékkósló- vakía þeirra yrði reist á pólitískri gröf Habsborgarættarinnar í Austurríki? Því síður vita menn nokkur dæmi hugarvíls í Arabaríkjum Vestur-Asíu út af því, að sundurlimun soldánsveldisins tyrkneska var sögulegur undanfari sjálfstæðis þeirra. Smáþjóðir hafa löngum heimt frelsi sitt, þegar eitthvað það hafði gerzt, sem batt hendur ríkisins, er sat yfir hlut þeirra. Yfirdrottnan smáþjóða, hið sífellda skil- yrði þess, að stórveldi skapist, er í senn líf stórveldanna og banamein þeirra. Stór- veldi eru lengstum skammlíf, en þjóðir líf- seigar. Vér vorum heppnir. En nú er engu ofantöldu til að dreifa í sambandi við endurheimt íslenzks þjóð- frelsis. Frá því að sjálfstæðisbarátta þess- arar þjóðar hófst, voru vopnin, sem hún beitti, ekki stál né tortímandi bál, heldur sannfærandi rök og seigur málflutningur. Hér áttust við dvergþjóð og smáþjóð, og sú viðureign var svo lítilsverð á mæli- kvarða Evrópustjórnmálanna, að sárfáir menn meðal stórþjóða höfðu hugmynd um, að hún væri til. Frá sjónarmiði stórþjóð- anna voru átök vor við Dani um sjálfstæði Islands, músabrösur milli þils og veggjar, — lítils háttar þrusk og annað ei. Og þó var þessi baráttá háð með þeim háttum, sem rembingslaust má fullyrða, að heldri þjóðir heims hefðu mátt margt læra af. Hér var sú leið farin, sem mestu vitmenn og mannvinir allra alda hafa þráð, að orðið gæti meginregla í samskiptum þjóða og Framhald á bls. 26.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.